Fréttatíminn - 11.02.2011, Page 6
GOLF
KORT
IÐ VEI
TIR
40% A
FSLÁT
T
AF GO
LFVÖ
LLUM
UMHV
ERFIS
ÍSLAN
D
AUK A
NNAR
RA GL
ÆSILE
GRA F
RÍÐIN
DA
GOLF
KORT
IÐ FY
LGIR M
EÐ ÁR
SÁSK
RIFT
TRYG
GÐU Þ
ÉR ÁS
KRIFT
Í SÍM
A 595
6000
EÐA Á
SKJA
RGOL
F.IS
AT&T PEBBLE BEACH
FIMMTUDAG – SUNNUDAG 20:00 – 23:00
DUBAI DESERT CLASSIC
FIMMTUDAGUR – FÖSTUDAGUR 09:30 – 13:30
LAUGARDAGUR – SUNNUDAGUR 09:00 – 13:00
HVAÐ GERIR TIGER Í DUBAI?
RISAHELGI!
Þrotabú SkiptaStjórar
É g hafði nú bara ekki gert mér grein fyrir þessu,“ segir Pétur Kristins-son þegar Fréttatíminn ber undir
hann þá staðreynd að hann sé sá lögmaður
sem fékk flest þrotabú til skipta á landinu
í fyrra. Pétur fékk átján þrotabú í fang sitt
árið 2010, fimm fleiri en næstu lögmenn.
Þetta kemur fram í úttekt Fréttatímans á
þrotabúum sem úthlutað var til skipta árið
2010.
„Það er nú ekki þannig að ég sé einhver
snillingur í úrlausn þrotabúa. Ég er eini
lögmaðurinn á Snæfellsnesi og þess vegna
enda flest þessara búa hjá mér,“ segir
Pétur sem er lögmaður í Stykkishólmi.
Hann segir að flest þessara búa séu
eignalaus og því ekki eftir miklu að
slægjast. „Þetta er bara eitt af verkefnum
lögmanna. Það er auðvitað þægilegt að fá
þetta þar sem menn eru á kaupi við þetta
en mest af þessu eru eignalaus bú. Það er
ekki mikið upp úr þeim að hafa. Ég held
að menn sækist frekar eftir stórum búum
með miklum eignum,“ segir Pétur.
Öll þau þrotabú sem hann hefur verið
fenginn til að skipta koma úr nágrenni
hans. „Þetta eru nánast eingöngu bú
sem eru héðan. Það er bara Vesturlandið
og sunnanverðir Vestfirðir. Ég hef til að
mynda aldrei fengið bú úr Reykjavík,“
segir þrotabúskóngurinn Pétur Kristins-
son í samtali við Fréttatímann.
Óskar Hrafn Þorvaldsson
oskar@frettatiminn.is
Nánari úttekt um þrotabú á síðu 14.
Þrotabúskóngur
Íslands með átján
þrotabú í fyrra
Pétur Kristinsson, lögmaður í Stykkishólmi, skaut öllum kollegum
sínum ref fyrir rass á árinu 2010 hvað varðar fjölda þrotabúa.
Sex vinsæl-
ustu bústjórar
landsins
1. Pétur Kristinsson 18
2.-6. Andrés Valdimarsson 13
2.-6. Þorsteinn Einarsson 13
2.-6. Jónas Rafn Tómasson 13
2.-6. Smári Hilmarsson 13
2.-6. Guðrún Björg Birgisdóttir 13
Það er nú ekki
þannig að ég sé
einhver snillingur í
úrlausn þrotabúa.
Ég er eini lögmað-
urinn á Snæfells-
nesi og þess vegna
enda flest þessara
búa hjá mér.
Pétur Kristinsson hafði í nógu að snúast í skiptum á þrotabúum á Vesturlandi á
síðasta ári.
Verðlaun FramúrSkarandi Fyrirtæki
Fimm fyrirtæki verðlaunuð
Árni Páll Árnason, efnahags-
og viðskiptaráðherra, afhenti
í gær fimm fyrirtækjum
verðlaun fyrir að skora hæst í
styrk- og stöðugleikamati fyr-
irtækja sem Creditinfo gerði.
Alls komust 177 fyrirtæki
á lista yfir framúrskarandi
fyrirtæki af þeim 32 þúsund
fyrirtækjum sem skráð eru í
Hlutafélagaskrá. Þau fimm fyrirtæki sem voru
verðlaunuð voru Alcan, Össur, HB Grandi, CCP
og Stálskip. Með þessu framtaki vill Creditinfo
vekja athygli á þeim fyrirtækjum sem skara
fram úr og geta orðið öðrum fyrirtækjum fyrir-
mynd á leið sinni að góðum árangri.
Tíu efstu
félögin á lista
Creditinfo
1. Alcan
2. Össur
3. HB Grandi
4. CCP
5. Stálskip
6. Vistor
7. Loftleiðir-Icelandic
8. Bananar
9. KPMG
10. Nathan og Olsen
Árni Páll Árnason
Helgin 11.-13. febrúar 2011