Fréttatíminn


Fréttatíminn - 11.02.2011, Síða 6

Fréttatíminn - 11.02.2011, Síða 6
GOLF KORT IÐ VEI TIR 40% A FSLÁT T AF GO LFVÖ LLUM UMHV ERFIS ÍSLAN D AUK A NNAR RA GL ÆSILE GRA F RÍÐIN DA GOLF KORT IÐ FY LGIR M EÐ ÁR SÁSK RIFT TRYG GÐU Þ ÉR ÁS KRIFT Í SÍM A 595 6000 EÐA Á SKJA RGOL F.IS AT&T PEBBLE BEACH FIMMTUDAG – SUNNUDAG 20:00 – 23:00 DUBAI DESERT CLASSIC FIMMTUDAGUR – FÖSTUDAGUR 09:30 – 13:30 LAUGARDAGUR – SUNNUDAGUR 09:00 – 13:00 HVAÐ GERIR TIGER Í DUBAI? RISAHELGI!  Þrotabú SkiptaStjórar É g hafði nú bara ekki gert mér grein fyrir þessu,“ segir Pétur Kristins-son þegar Fréttatíminn ber undir hann þá staðreynd að hann sé sá lögmaður sem fékk flest þrotabú til skipta á landinu í fyrra. Pétur fékk átján þrotabú í fang sitt árið 2010, fimm fleiri en næstu lögmenn. Þetta kemur fram í úttekt Fréttatímans á þrotabúum sem úthlutað var til skipta árið 2010. „Það er nú ekki þannig að ég sé einhver snillingur í úrlausn þrotabúa. Ég er eini lögmaðurinn á Snæfellsnesi og þess vegna enda flest þessara búa hjá mér,“ segir Pétur sem er lögmaður í Stykkishólmi. Hann segir að flest þessara búa séu eignalaus og því ekki eftir miklu að slægjast. „Þetta er bara eitt af verkefnum lögmanna. Það er auðvitað þægilegt að fá þetta þar sem menn eru á kaupi við þetta en mest af þessu eru eignalaus bú. Það er ekki mikið upp úr þeim að hafa. Ég held að menn sækist frekar eftir stórum búum með miklum eignum,“ segir Pétur. Öll þau þrotabú sem hann hefur verið fenginn til að skipta koma úr nágrenni hans. „Þetta eru nánast eingöngu bú sem eru héðan. Það er bara Vesturlandið og sunnanverðir Vestfirðir. Ég hef til að mynda aldrei fengið bú úr Reykjavík,“ segir þrotabúskóngurinn Pétur Kristins- son í samtali við Fréttatímann. Óskar Hrafn Þorvaldsson oskar@frettatiminn.is Nánari úttekt um þrotabú á síðu 14. Þrotabúskóngur Íslands með átján þrotabú í fyrra Pétur Kristinsson, lögmaður í Stykkishólmi, skaut öllum kollegum sínum ref fyrir rass á árinu 2010 hvað varðar fjölda þrotabúa. Sex vinsæl- ustu bústjórar landsins 1. Pétur Kristinsson 18 2.-6. Andrés Valdimarsson 13 2.-6. Þorsteinn Einarsson 13 2.-6. Jónas Rafn Tómasson 13 2.-6. Smári Hilmarsson 13 2.-6. Guðrún Björg Birgisdóttir 13 Það er nú ekki þannig að ég sé einhver snillingur í úrlausn þrotabúa. Ég er eini lögmað- urinn á Snæfells- nesi og þess vegna enda flest þessara búa hjá mér. Pétur Kristinsson hafði í nógu að snúast í skiptum á þrotabúum á Vesturlandi á síðasta ári.  Verðlaun FramúrSkarandi Fyrirtæki Fimm fyrirtæki verðlaunuð Árni Páll Árnason, efnahags- og viðskiptaráðherra, afhenti í gær fimm fyrirtækjum verðlaun fyrir að skora hæst í styrk- og stöðugleikamati fyr- irtækja sem Creditinfo gerði. Alls komust 177 fyrirtæki á lista yfir framúrskarandi fyrirtæki af þeim 32 þúsund fyrirtækjum sem skráð eru í Hlutafélagaskrá. Þau fimm fyrirtæki sem voru verðlaunuð voru Alcan, Össur, HB Grandi, CCP og Stálskip. Með þessu framtaki vill Creditinfo vekja athygli á þeim fyrirtækjum sem skara fram úr og geta orðið öðrum fyrirtækjum fyrir- mynd á leið sinni að góðum árangri. Tíu efstu félögin á lista Creditinfo 1. Alcan 2. Össur 3. HB Grandi 4. CCP 5. Stálskip 6. Vistor 7. Loftleiðir-Icelandic 8. Bananar 9. KPMG 10. Nathan og Olsen Árni Páll Árnason Helgin 11.-13. febrúar 2011

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.