Fréttatíminn


Fréttatíminn - 11.02.2011, Side 44

Fréttatíminn - 11.02.2011, Side 44
Hallberg Hallmundsson, bók- menntamaður, þýðandi og frömuður í þýðingum milli íslensku og ensku, lést hinn 28. janúar. Hallberg var kominn af almúgafólki á Suðurlandi en komst til mennta, lauk námi í sögu og landafræði frá Háskólanum og stundaði vetrarlangt framhalds- nám í spænsku í Barcelone sem var fátítt. Hann var blaðamaður við það merka blað Frjálsa þjóð frá 1954 til 1960 en vann á þeim tíma ýmis störf fyrir Valdimar Jóhannsson í Iðunni. Hallberg kynntist 1960 konu sinni Mary, sem stundaði hér nám í ís- lensku, og fluttist með henni vestur til New York þar sem hann bjó æ síð- an og hafði lifibrauð sitt af ritstörf- um. Hann sendi frá sér að staðaldri ný ljóðasöfn og var útlendingur á ís- lenskum ljóðakri; yrkisefni hans og viðmið lutu öðrum hugmyndum en algengar og gjaldgengar voru í ís- lenskum skáldskap. Þau hjónin voru á áttunda og níunda áratug síðustu aldar afkastamiklir þýðendur bóka af íslenskum stofni, en á liðnum tutt- ugu árum hefur Hallberg sent frá sér í eigin útgáfu stórt safn þýddra ljóða, einkum eftir ensk og banda- rísk skáld; síðast þessara kvera var safn ljóða eftir Lorca. Á þessum ára- tug sendi hann frá sér í smákverum þýdd ljóð íslenskra skálda. Hallberg var eitt fárra dæma í ís- lenskri bókmenntasögu um mann sem orti samfellt á íslensku en lifði og starfaði í erlendu samfélagi. Þess gætti fyrst og fremst í hugmynda- heimi hans sem var stækkaður af návist við stærra og fjölbreyttara samfélag en þreifst í fámenni eyjar- innar sem ól hann. Aðrir höfundar sem skipa þann bekk eru Hannes Sigfússon og Guðbergur Bergsson. -pbb Breska leiksskáldið David Hare nýtur þeirra forréttinda um þessar mundir að leikhúsin í Sheffield eru að ráðast í sviðsetn- ingu nokkurra verka hans. Hare þekkja íslenskir áhorfendur af nokkrum verka hans sem ratað hafa á íslensk svið, enn fleiri þekkja handrit hans fyrir kvikmyndir; Lesarann og Stundirnar sem bæði voru tilnefnd til Óskarsverðlauna. Hann á líka að baki þrjár merkilegar kvikmyndir sem leikstjóri en þær eru miður kunnar: Strapless og Paris by night hafa ekki sést hér á landi en Weatherby um valdatöku Thatcher var sýnd hér í sjónvarpi á níunda áratugnum. Hare hefur lengi verið eitt pólitískasta leikskáld Breta: síðasta verk hans fyrir svið fjallaði um bankahrunið. Í viðtali við Telegraph í vikunni lýsti hann ástandinu í heimalandi sínu svo að þeir sem hefðu klessukeyrt samfélagið hefðu sest aftur undir stýri. Fyrr samdi hann verk um Íransstríðið og átti þá að baki þríleik um kirkjuna, dómskerfið og lestirnar ensku og einkavæðingu þeirra. Verkin sem munu sjást á sviði í Sheffield eru Plenty, Racing Demon og Breath of Life. Sjálfur vinnu hann nú að frumsömdu handriti fyrir BBC sjónvarp um MI5 með gömlum samstarfsmönnum: Bill Nighty og Michael Gambon. -pbb Yfirlit um Hare  Bókadómur Wikileaks – stríðið gegn leyndarhyggju t veir blaðamenn á Guardian hafa tekið saman bók um stóra lek-ann sem Julian Assange, Wiki- leaks-forstjóri með meiru, stóð fyrir með aðstoð ritstjóra nokkurra stórblaða aust- an hafs og vestan. Höfundar bókarinnar stóðu í miðju stormsins og höfðu aðgang að öllum þátttakendum ef frá eru taldir bandarískir embættismenn sem voru til varna fyrir stjórnkerfi Bandaríkjanna. Bókin kemur út samtímis í nokkrum löndum og er þrátt fyrir blaðamennsku- kenndan stíl og hraða vinnslu einstök heimild um hið svokallaða frjálsa kerfi upplýsinga sem hefur heldur betur sett ofan í ljósi þeirra uppljóstrana sem Wiki- leaks hefur afhjúpað. Sagan sem blaðamennirnir rekja er spennandi þótt þeir gangi býsna langt í lýsingum sínum, býsna berorðum, um persónulega hagi Assange og taki heldur lítið tillit til þess hversu gífur- legri pressu hann er undir. Sumt af því má kalla illa rökstutt níð, til þess fallið að draga heilindi hans og erindi í efa. Varðar okkur til dæmis mikið um þrifn- aðarhætti hans, sem verða efnisatriði í persónulýsingu hans eins, en ekki annarra? Bókin kemur út hjá forlagi Veraldar og er skreytt myndum í bak og fyrir af nafnkunnum samstarfsmönnum Ass- ange, Birgittu Jónsdóttur og Kristni Hrafnssyni, sem eru raunar auka-auka- persónur í fléttunni. Með því tiltæki er bókin íslenskuð í erindi sem er ekki alls kostar rétt þótt Ísland hafi verið dvalarstaður Assange um tíma meðan á vinnslu gagna hans stóð. Afhjúpanir Wikileaks hafa þegar haft gríðarleg áhrif og er ekki enn séð fyrir endann á þeim hræringum sem opinberun gagna hefur hrint af stað: Túnis, og í beinu framhaldi Egyptaland og fleiri harðstjórnarlönd, skjálfa þessar stundir undan kröfum almennings um bætta stjórnunarhætti. Nú munu takast á þjóðarhagur margra ríkja og hagur þeirra sem ráða. Hlutur Bandaríkjanna er einkum athyglisverður og utanríkis- stefna þeirra er löskuð til langframa. Sannast hér það sem Matthías Johann- essen sagði í Draumalandinu: Stórveldi á enga vini. Þeir sem telja sér trú um vináttu þjóðstjórna nær og fjær eru flón. Þetta verður enn ljósara ef litið er til hagsmunagæslu Bandaríkjastjórnar hér á landi og nú verður skýrara í hversu mikilli villu menn hafa vaðið sem lengst hafa gengið í stuðningi sínum við stefnu bandarískra hernaðarhagsmuna. Sagan sem rakin er í bókinni er reyf- arakennd en nokkrir kaflar, einkum um tæknilega útfærslu á dreifingu gagna eftir öryggisleiðum, eru heldur snúin lesning en forvitnileg leikmanni þegar komið er í gegnum torfið. Annars er þýðingin lipurleg. Bókin er opinberun og kallar á frekari gagnrýna skoðun á hverju Wikileaks hefur áorkað. Það er því hlálegt að lesa íslenskar greinar sem snúast gegn þeirri kröfu sem nú er uppi um gegnsæi. Hér ætti enn að herða heimtur á fullu gegnsæi, hvaða grunnur er að baki stjórnvaldsákvörðunum í stóru og smáu. Hinn opinberi embættis- maður verður að taka blað frá munni og leyndarhyggjunni að linna.  Wikileaks – stríðið gegn leyndarhyggju David Leigh og Luke Harding Þýðandi Arnar Matthíasson Veröld 2011 36 bækur Helgin 11.-13. febrúar 2011  minning um Bókmenntamann múmínálfar í efsta sæti Halastjarna, ein af bókunum um hina finnsku Múmínálfa, er í efsta sæti á barna- bókalista Eymundsson þessa vikuna – 40 árum eftir að hún kom út í fyrsta skipti á Íslandi. Bækur Páll Baldvin Baldvinsson pbb@frettatiminn.is A. R. Gurney er eitt þeirra bandarísku leikskálda sem enn eru að þótt komin séu á efri ár. Nýtt verk eftir hann, Black Tie, var frumsýnt í vikunni og lýsir hugmyndum og hugstoli hinnar hvítu engilsaxnesku millistéttar á austurströndinni. Gagnrýnandi Wall Street Journal fagnar því sem staðfestingu þess að drama um hugmyndir og átök kynslóða eigi enn aðgang að sviðum vestanhafs til að glæða millistétt- ina menntuðu þar vissu um að leikhúsið þrífist best með orðræðu fólks sem hugsar. Hið vel gerða verk eigi enn einhvern séns í hringiðu leikhúsa þar sem orðræðunni er víða úthýst í markvissri viðleitni nýrra kynslóða til að gefast upp á orðræðu en hygla myndinni sem meginviðfangsefni sviðsins. Lítil von er til að verk höfunda á borð við hann eigi hér erindi á svið þótt örfá slík verk rati þangað; Geitina og Elsku barn má nefna. Líkast til er Bragi Ólafsson einn vísir þess að leikritun sem byggir á orðræðu komist að. -pbb Millistéttar drama Hallberg allur Lekaleiðir Bókin um sögu Wikileaks er opinberun. Sagan er reyf- arakennd og einstök heimild um hið svokall- aða frjálsa kerfi upplýsinga. Julian Assange, Wikileaks-forstjóri með meiru er í aðalhlutverki bókar Guardian blaðamannanna. A. R. Gurney. Höfundar bókarinnar stóðu í miðju stormsins og höfðu aðgang að öllum þátt- takendum ef frá eru taldir bandarískir embættis- menn sem voru til varna fyrir stjórnkerfi Bandaríkj- anna. David Hare. Lj ós m yn d/ M or gu nb la ði ð Oddi – umhverfisvottuð prentsmiðja. Höfðabakka 7, 110 Reykjavík, sími 515 5000, www.oddi.is af vörum á myndabókavef25 afsláttur í febrúar Myndabók 21x21, 20bls 6.990kr með 25% afslætti 5.243kr Verð er gefið upp með vsk. og miðast við afhendingu hjá Odda Höfðabakka 7. Afsláttur gildir ekki með öðrum tilboðum. www.oddi.is

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.