Fréttatíminn - 11.02.2011, Page 48
F ræðslan sem við stöndum fyrir snýst helst um að koma skilaboðum til fólks um hver
munurinn er á lífrænum matvörum
og þeim hefðbundnu. Það er alveg
ljóst að við Íslendingar þurfum að
fara að huga meira að heilsu okkar
og ekki síst mataræðinu. Námskeið-
in sem við stöndum fyrir hjálpa ein-
staklingum að bindast náttúrunni
og fræða þá um umhverfið í kring-
um okkur. Það er svo mikilvægt
að við göngum vel um á vistvænan
hátt,“ segir Arndís Thorarensen,
framkvæmdastjóri Maður lifandi.
Arndís segir að eingöngu sé boð-
ið upp á lífrænar vörur í versluninni
og veitingasölunni.
„Við tryggjum aðgengi fólks að
gæða matvöru. Við leggjum mikið
upp úr hollustu og allur matur hjá
okkur er án slæmra aukefna. Nýlega
bættum við mikið við vöruúrvalið.
Réttur dagsins er borinn fram alla
daga ásamt öðrum tilbúnum mat
sem kostar frá 990 krónum. Matur-
inn sem við bjóðum upp á er fjöl-
breyttur og nær til allra fæðuflokka;
kjúklinga- og grænmetisréttir, sam-
lokur, salöt og bökur. Okkur finnst
lykilatriði að standa fyrir öflugri
fjölbreytni,“ segir Arndís og bætir
við að hún hvetji fólk til að prófa að
borða lífrænan og hollan mat.
„Það er mikilvægt að taka eitt
skref í einu því það er ógerlegt að
sigra heiminn á einum degi. Að fólk
kynni sér heilbrigðan lífsstíl, holla
matvöru og prófi sig áfram er nauð-
synlegt. Inni á heimasíðu okkar,
madurlifandi.is, er fullt af fræðslu
fyrir fólk sem vill bæta bæði líf sitt
og heilsuna.“ -kp
40 heilsa Helgin 11.-13. febrúar 2011
Í World Class á Seltjarnar-nesi byrjar í síðustu vik-unni í febrúar sex vikna
þjálfunarnámskeið í súlufimi,
sem er meðal nýjustu val-
kosta í leikfimi. Sérfræðingar
í greininni segja að hún sé
nútímaleg líkamsrækt sem
byggi upp vöðvastyrk, lið-
leika, vöðvaþol og jafnvægi
og henti öllum sem vilja koma
sér í gott form.
Guðrún Lára Sveinbjörns-
dóttir er einn af þjálfurunum
og segist vonast til að sjá sem
flesta á námskeiðinu, og þá
sérstaklega stráka.
„Súludans og súlufimi
er ekki það sama. Þetta
eru töluvert ólíkar athafnir
sem byggjst að vísu á sömu
undirstöðuatriðum en þó eru
áherslurnar aðrar. Súlufimi
er helst byggð á eróbikdansi
og er þjálfunarkerfi sem ég
þróaði ásamt Camillu Hofsen
fyrir tveimur árum. Hún er
leikari og ég dansari svo að
við bættum ýmiss konar leik-
rænum tilþrifum inn í íþrótt-
ina. Þetta verður rosalega
skemmtilegt og ég vonast til
að sjá sem flesta á námskeið-
inu, sérstaklega stráka,“ segir
Guðrún Lára.
Hún tekur fram að nám-
skeiðið verði mjög einstak-
lingsmiðað.
„Við erum tvær sem
kennum á námskeiðinu, ég
og Esther Gunnarsdóttir, og
það á að veita meira öryggi
í tímanum og tryggja að
allir þátttakendur fái góða
athygli. Samkvæmt minni
reynslu fá nemendur meira út
úr tímanum þegar kennslan
er persónulegri. Þetta er
áhættusöm íþrótt sem byggist
á mikilli einbeitingu og jafn-
vægi. Tímarnir verða tvisvar
í viku, annars vegar fyrir
byrjendur og hins vegar fyrir
lengra komna,“ segir Guðrún
Lára. -kp
Súlufimi Íþrótt með leikrænum tilþriFum
Strákarnir velkomnir
– Lifið heil
Fyrir þig
í Lyfju
www.lyfja.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/L
Y
F
5
35
00
0
2/
11
KALSÍUM,
MAGNESÍUM OG SINK
– uppbyggjandi og slakandi
Mikilvæg næringarefni til að viðhalda almennri
heilsu. Kalsíum fyrir tennur, taugar og vöðva-
samdrátt. Magnesíum hjálpar til við fótaóeirð
og er vöðvaslakandi. Sink er fyrir ónæmiskerfið.
Ógerlegt að sigra heiminn á einum degi
Holle-barnaþurrmjólk –
Demeter-vottuð lífræn vara
Fáir gera sér grein fyrir magni
aukefna í hefðbundinni barnaþurr-
mjólk. Holle-þurrmjólkin er hins
vegar unnin úr 100% lífrænni
mjólk úr kúm sem fá að vera úti í
náttúrunni þar sem eingöngu fer
fram lífræn ræktun. Kýrnar eru
frjálsar og fá lífrænt vottað fóður
allan ársins hring, sem er ástæðan
fyrir gæðum þurrmjólkurinnar.
Rannsóknir hafa sýnt fram á
að vægi d-vítamíns og omega
3-fitusýra er hærra en í hefðbund-
inni ólífrænni mjólk. Bæði þessi
vítamín eru gríðarlega mikilvæg
ungbörnum. Holle-þurrmjólkin
er sú eina á markaðnum sem ber
Demeter-gæðavottun, en það er
sá lífræni gæðastaðall sem er
hvað strangastur í bransanum; oft
kallað „gullið í lífrænni vottun“.
Krakkagos
Drykkur fyrir alla hressa krakka.
Sætur með eplasafa svo að hann er
100% laus við allan sykur. Frábær
krakka- og partídrykkur.
lífræn steikingarolía (BRúNA
flASKAN)
Sólblómaolía sem er einstaklega
hitaþolin og hentar vel til steik-
ingar, á grillið, í djúpsteikingu og
marineringu. Vinsæl fyrir grill-
matinn.
Heilnæm safahreinsun – þrjár
lífrænar safategundir í kassa
Þrír bragðgóðir og lífrænir
gæðadrykkir í fallegum kassa.
Henta vel til að hreinsa líkamann
eða bara til að njóta með allri fjöl-
skyldunni. Þeir koma frá Beutels-
bacher og eru framleiddir undir
ströngustu gæðakröfum í lífrænni
ræktun.
Ef um detox er að ræða þá er
mælt með léttu mataræði meðan á
föstu stendur.
Í þessum kassa er ein af okkar
mest seldu safategundum, en það
er rauðrófusafinn sem er þekktur
fyrir hreinsandi áhrif sín á blóð,
ristil og meltingu. Hann er talinn
góður við hinum ýmsu kvillum
eins og blöðru-, nýrna- og gall-
steinavandamálum.
Hnetusmjör
Lífrænt hnetusmjör frá Himneskri
hollustu er gríðarlega vinsælt.
Það er stútfullt af hollri fitu og að
sjálfsögðu laust við transfitusýrur.
Frábært á rískex eða í heilsuhrist-
inginn. -kp
Heilsukeðjan Maður lifandi hefur starfað í rúm sex ár og stendur
fyrir þríþættri starfsemi; öflugri matvörurverslun, veitingasölu og
fræðslumiðstöð. Arndís Thorarensen, framkvæmdastjóri Maður
lifandi, segir lífræna markaðinn vera vaxandi og að nauðsynlegt
sé að við áttum okkur á hvað felist í orðinu lífrænt.
Eftirsóttustu líf-
rænu vörurnar
Yggdrasill sérhæfir sig í innflutningi á vottuðum lífrænum mat-,
snyrti- og hreinlætisvörum. Vörurnar eiga það sameiginleg að
vera í hæsta gæðaflokki frá þekktum framleiðendum og leggja
áherslu á hollar og nærandi vörur sem stuðla að betri líðan
neytenda. Sirrý Svöludóttir, markaðsstjóri Yggdrasils, segir okkur
frá fimm vinsælustu vörum fyrirtækisins.
YggDRASill
Guðrún Lára Sveinbjörnsdóttir súludanskennari.
Arndís Thorarensen, fram-
kvæmdastjóri Maður lifandi.
Sirrý Svöludóttir, markaðsstjóri Yggdrasils.