Fréttatíminn - 11.02.2011, Side 58
50 dægurmál Helgin 11.-13. febrúar 2011
Plötuhorn Dr. Gunna
Sound of the
Planet
Ikea Satan
Ikea Satan er tríó.
Unnur Kolka trommar,
Pétur Úlfur Einarsson
syngur og leikur á
gítar og Hannes Þór er
á bassa. Sound Of The
Planet er þriggja laga
seigur rokkköggull með
blúsmetalísku yfirbragði
og minnir allnokkuð á
rokkgerð Jacks Whites.
Öll lögin eru virkilega
fín, teppalagt sjúskrokk
á ensku, melódískt og
einhvern veginn mitt
á milli helvítis og Ikea.
Tríóið vinnur nú efni á
stóra plötu sem á að
koma út með vorinu. Sú
verður vonandi jafn góð
og þetta stöff.
holland Island Bar
light
California Cheeseburger
Holland Island Bar Light er
fyrsta plata hljómsveitarinn-
ar California Cheeseburger.
Ari Eldon, Riina Pauliina og
Pétur Úlfur starfrækja þetta
band með trommaranum
Kormáki „Komma“ Geir-
harðssyni og spila glimrandi
gott popprokk sem á ættir
að rekja aftur í brimbretta-
popp Beach Boys, Velvet
Underground (þá helst lögin
sem trommustúlkan Moe
Tucker söng) og áfram upp
tónlistarsöguna allt yfir
í gáfumannapopp í Belle
& Sebastian. Á þessari 13
laga plötu er hellingur af
skemmtilegu og afslöppuðu
sólskinspoppi – eðalstöff,
en kannski ekki alveg það
byltingarkenndasta.
Sex on the Beach
Black Valentine
Black Valentine
virðist vera Pétur Úlfur
Einarsson einn að búa
til tölvutónlist sem er
laus í reipunum og til-
raunakennd. Hann vinnur
með sömpl og lúppur og
útkoman liggur einhvers
staðar á milli plötunnar
Play með Moby og raftil-
raunaefnisins sem Morr-
útgáfan þýska gefur út,
auk þess sem gítarrokkað
efni er haft með í bland.
Fína spretti má hér finna
og aðra la la. Sex On The
Beach er önnur plata
Black Valentine og er
stefnt að því að hún og
fyrri platan, Rehab Is For
Quitters frá 2009, komi út
saman á geisladisk.
Vetrarhátíð verður haldin í Reykjavík nú um helgina, frá föstudegi til
sunnudags, 11.-13. febrúar. Vetrarhátíðin hefur í áratug boðið borgarbúum
upp á fjölbreytta menningarviðburði. Í ár verður hún borin uppi af þremur
stoðum; Safnanótt á föstudagskvöldinu, Heimsdegi barna í Gerðubergi á
laugardeginum og Kærleikum á sunnudeginum, að því er fram kemur í til-
kynningu Höfuðborgarstofu. Hátíðin hefst með opnunaratriði í Hallargarð-
inum við Fríkirkjuveg kl. 19 í kvöld, föstudag.
Á Safnanótt taka yfir þrjátíu söfn á höfuðborgarsvæðinu öllu þátt í dag-
skrá sem ber yfirskriftina Íslendingur? Spurningunni er varpað fram á
afmælisári Jóns Sigurðssonar, en í ár eru 200 ár frá fæðingu hans. Sér-
stakur ókeypis safnanæturstrætó gengur á milli safnanna. Leiðsögumenn
með grænar húfur fræða farþega um það sem er í vændum á næsta safni
og sprella ögn. Í stíl við húfurnar verða söfnin með græn ljós yfir dyrum til
að vísa gestum veginn.
Vetrarhátíð lýkur með Kærleikum sem hefjast um sólsetur á Austurvelli á
sunnudaginn, kl. 17.30. Þar verður mikið sungið og knúsað. -jh
vetrarhátíð uPPákomur um helGIna
Fjölbreyttir menningarviðburðir í borginni
P lötuútgáfa heimsins er í upp-námi. Fáir undir fertugu kaupa lengur geisladiska, hörðustu
músíkáhugamenn kaupa vínylplötur,
en yfirleitt er fólk bara að hlaða niður
músík í tölvurnar sínar. Fyrst sífellt
færri kaupa diska, til hvers þá að gefa
þá út? Sú spurning verður æ meira
aðkallandi. Það er dýrt að gefa út
vínylplötu og salan ekki orðin það
úrbreidd aftur að slík útgáfa svari
kostnaði nema í meiriháttar tilvikum.
Lausnin hlýtur því að vera fólgin í því
að gefa bara út „rafrænt“ og það er sú
stefna sem Ching Ching Bling Bling
(www.chingchingblingbling.com),
upprennandi útgáfa í Reykjavík, hef-
ur tekið. Reyndar koma útgáfurnar
hjá þeim stundum út á diskum líka.
Mörgum finnst plötur ekki hafa
„komið út“ nema hægt sé að hand-
leika útgáfuna, en þetta er tilfinning
sem eflaust mun hverfa með tím-
anum. Kannski mun það líka breytast
að sérstakt „umslag“ fylgi rafrænum
útgáfum því það er í sjálfu sér algjör
óþarfi að láta ferkantaða mynd fylgja
með rafrænum skjölum.
Ching Ching Bling Bling hefur
gefið út slatta af tónlist en þær þrjár
„plötur“ sem fjallað er um, eru þær
nýjustu. Þær eiga það sameiginlegt
að vera fluttar á ensku og að Pétur
Úlfur Einarsson kemur við sögu á
þeim öllum. Pétur er afkastamikill
jaðarmaður, hefur líka samið tónlist,
m.a. undir nöfnunum Peter & Wolf
og Pornopop (m.a. á hinni vanmetnu
og Sigur Rósar-legu plötu … and the
slow songs about the dead calm in your
arms).
Eins og gengur er allt vaðandi í
tóndæmum á heimasíðu útgáfunnar
og þar að auki geta skráðir notendur
hlustað á plöturnar í heild sinni á
Gogoyoko-vefnum. Ég mæli sterklega
með að fólk með eyrun í lagi tékki á
Ching blinginu. -dr. Gunni
Safnanótt í
Reykjavík.
Yfir þrjátíu
söfn á höfuð-
borgarsvæð-
inu taka þátt.
chInG chInG BlInG BlInG
Rafrænt rokkbling
California
Cheeseburger
frá vinstri:
Ari, Pétur,
Riina og
Kommi.
Verndargripir goðanna
Hrafnar Óðins
Engin venjuleg dýr!
Dvergar fóru að drullumalla
Rómversk hljóðfærasmiðja
Suðræn og seiðandi danssmiðja
Drekasmiðja
Kínverskur dreki
Leikbrúðusmiðja Seifs og Afródítu
Drakúla
Galdrasmiðja Merlins
Freyjuklattar og Valkyrjuglögg (útieldun!)
Í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi
og frístundamiðstöðinni Miðbergi
Listsmiðjur kl.13-16
Menningarmiðstöðin Gerðuberg • Gerðubergi 3-5 • 111 Reykjavík
Sími 575 7700 • gerduberg@reykjavik.is • www.gerduberg.is
Nánari upplýsingar um smiðjurnar á www.gerduberg.is
á Vetrarhátíð í
Reykjavík 2011
laugardaginn
12. febrúar kl.13-17
Hátíð elds og dreka kl. 16 -17
Fréttablaðið DV
Sýnt vegna fjölda áskoranna í Íslensku óperunni
25. febrúar · Miðasala hefst 1. febrúar · 511 4200 · opera.is
HANDRIT OG LEIKSTJÓRN
JÓN ATLI JÓNASSON
L
E
Y
N
IV
O
P
N
IÐ
Opið virka daga 12-18
laugardag 12-16
Grensásvegi 8 -108 RVK
Sími: 517-2040
Góðir skór
á börnin
www.xena.is
St. 20-27
kr. 6.495.-
St. 28-35
kr. 6.995.-
St. 20-27
kr. 6.495.-
St. 28-35
kr. 6.995.-