Fréttatíminn - 11.02.2011, Qupperneq 64
Apparat Organ
Quartet á toppinn
Apparat Organ Quartet skellti
sér á toppinn á Tónlistanum, lista
Félags íslenskra hljómplötuútgef-
anda, í síðustu
viku með disk-
inn Pólýfónía.
Sveitin velti Ellý
Vilhjálms og
þreföldum safn-
diski hennar af toppnum. Ellen
Kristjánsdóttir skaust í annað
sætið með nýjan disk sinn Let Me
Be Here. Breska söngkonan Adele
er á toppi Lagalistans með lag
sitt Rolling in the Deep. Þar með
lýkur tæplega tveggja mánaða
einokun Diktu-lagsins Goodbye á
toppi listans. -óhþ
Gillz á grensunni
Egill Gillzenegger er ófeiminn við
að hneyksla og hefur, eins og við
var að búast, vakið mikla athygli
með Mannasiðaþáttum sínum á
Stöð 2. Hann telur mögulegt að
atriðið í þættinum í gær, fimmtu-
dag, – þar sem hann kenndi
mönnum þrjár leiðir til að koma
sér í flókna kynlífsstellingu sem
varla er á færi nema hraustustu
manna – verði það umdeildasta í
allri þáttaröðinni. Þessi kennslu-
stund skaut stjórnendum Stöðvar
2 í það minnsta skelk í bringu og
þar á bæ voru haldnir nokkrir
fundir um það hvort óhætt væri
að hleypa atriðinu í loftið. Eftir
japl, jaml og fuður fékk Gillz sitt
í gegn og atriðið fékk að hanga
inni.
Fullt út úr dyrum í
Bústaðakirkju
Heilarinn Þór Gunnlaugsson
hefur haldið kyrrðarstund
fyrsta mánudag hvers mánaðar í
Bústaðakirkju.
Þessar stundir
virðast vera
að slá í gegn
því eftir rólega
byrjun, þar sem rúmlega 100
manns mættu á fyrstu stundirn-
ar, var fullt út úr dyrum síðast-
liðinn mánudag. Alls voru um
700 manns mættir til að fylgjast
með Þóri sem var í viðtali við
Fréttatímann fyrir nokkrum
vikum. Þar lýsti hann því hvernig
hann uppgötvaði hæfileika sína á
gamals aldri eftir að hann hætti
að vinna hjá lögreglunni.
HELGARBLAÐ
... fær Andri Vilbergs-
son sem sýndi mikið
snarræði og bjargaði
ungum dreng úr
bráðum lífsháska á
Tjörninni aðfaranótt
sunnudags.Austurströnd 3, 170 Seltjarnarnesi. Sími: 531 3300 ritstjorn@frettatiminn.is www.frettatiminn.is
HELGARBLAÐ
70%
Höfuðborgarbúa
lesa Fréttatímann
Samkvæmt könnun á vikudekkun 18.-28. nóvember
meðal 16 ára og eldri úr Viðhorfahópi Capacent.
HELGARBLAÐ
70%
Höfuðborgarbúa
lesa Fréttatímann
Samkvæmt könnun á vikudekkun 18.-28. nóvember
meðal 16 ára og eldri úr Viðhorfahópi Capacent.
HELGARBLAÐ
f r r
l r tt tí
Samkvæmt könnun á vikudekkun 18.-28. nóvember
meðal 16 ára og eldri úr Viðhorfahópi Capacent.
HELGARBLAÐ
0%
Höfuðborgarbúa
lesa Fréttatímann
Samkvæmt könnun á vikudekkun 18.-28. nóvember
meðal 16 ára og eldri úr Viðhorfahópi Capacent.
Miðasala Hverfisgötu I 551 1200 I leikhusid.is I midi.is
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐGSB, Mbl.
„Mikill fengur að fá nýtt og velskrifað barnaleikrit
á fjalirnar“. SG, Víðsjá
„Þetta er fjörug sýning, full af óvæntum smáum og stórum
atriðum og sniðugum lausnum“. SA, TMM
„Gleði“