Kjarninn - 22.08.2013, Blaðsíða 3
Þjóðarsátt um
stéttaskiptingu
lEiðari
Þórður Snær Júlíusson
thordur@kjarninn.is
Deildu með
umheiminum
B
jarni Benediktsson, nú fjármálaráðherra, sagði í
eldhúsdagsumræðum 13. mars að ef Sjálfstæðis
flokkurinn kæmist til valda yrði gerð ný
þjóðar sátt. Þessar áherslur rötuðu inn í stefnu
yfirlýsingu nýrrar ríkisstjórnar. Í lok júlí sýndi
Bjarni aðeins á spilin og hvað ætti að felast í þjóðarsáttinni.
Þá lét hann hafa eftir sér að launahækkanir á almennum
vinnumarkaði væru óheppilegar og að sameiginlegt átak
þyrfti til að forðast aukna verðbólgu og kjararýrnun. Kæla
þyrfti hagkerfið og komandi kjarasamningar ættu að leika
lykilhlutverk í þeirri kælingu.
Allt er þetta skynsamlegt hjá nýja fjármála ráðherranum.
Launahækkanir þurfa að haldast í hendur við aukna
verðmæta sköpun. Það hafa þær ekki gert undanfarið. Laun á
almenna vinnumarkaðinum hækkuðu um 14 prósent á árun
um 2008 til 2012 og litlu meira hjá opinberum starfsmönnum.
Ljóst er að þær hækkanir eru meiri en hagvöxtur á sama
tímabili. Til að stemma stigu við áframhaldandi innistæðu
lausu launaskriði almúgans hefði verið eðlilegt að sýna
fordæmi og halda aftur af hækkunum á launum forstjóra og
forstöðumanna. Það var ekki gert.
Þess í stað ákvað kjararáð að hækka laun forstöðumanna
ýmissa ríkisstofnana afturvirkt til 1. ágúst í fyrra um 16 til 20
prósent. Starfsmenn í fjármálaþjónustu, hjá lífeyrissjóðum og
í vátryggingastarfsemi hækkuðu um 11,2 prósent í launum í
fyrra. Vísitala launa þeirra hækkaði um 29 prósent á árunum
2009 til 2012. Við bætist að starfsmenn Landsbankans, sem
er nánast að öllu leyti í eigu ríkisins, fengu hlut í bankanum,
metinn á 4,7 milljarða króna, gefins frá þrotabúi hans fyrir
að vera duglegir að rukka inn ákveðin lánasöfn. Fullur
hlutur hvers starfsmanns nemur fernum mánaðarlaunum.
Þetta hefur allt gerst samhliða því að enn er í gildi allsherjar
ríkisábyrgð á innlánunum sem starfsemi fjármálafyrirtækja
hvílir á.
Til að stemma stigu við áfram
haldandi innistæðulausu
launaskriði almúgans hefði
verið eðlilegt að sýna fordæmi
og halda aftur af hækkunum á
launum forstjóra og forstöðu
manna. Það var ekki gert.
Til viðbótar kom fram í tekjublaði Frjálsrar verslunar
að 200 launahæstu forstjórar landsins voru með 2,3 millj
ónir króna að meðaltali á mánuði í fyrra. Laun þeirra
höfðu hækkað um 300 þúsund frá ári til árs. Regluleg laun
fullvinnandi launamanna á íslenskum vinnumarkaði voru
402 þúsund krónur að meðaltali á árinu 2012. Meðallauna
hækkun forstjóranna nemur því um 75 prósentum af heildar
launum meðallaunamannsins.
Þessi þróun er augljós vísir að aukinni stéttaskiptingu
á Íslandi og versta veganesti sem hægt er að taka með sér
inn í mikilvægustu kjarasamningaviðræður í aldar fjórðung.
Hinir ríku verða ríkari á meðan launafólk er hvatt til að
færa fórnir með hagsmuni heildarinnar að leiðarljósi,
þrátt fyrir að jafn lítil innistæða sé fyrir launahækkunum
forstjóranna og starfsmanna á plani. Hinir ríku eiga líka
margir hverjir peninga erlendis sem þeir geta komið með í
gegnum fjárfestingaleið Seðlabankans, og fengið fyrir vikið
20 prósenta afslátt á eignum hérlendis. Eignafólk er líklegra
til að taka þátt á verðbréfamarkaði, sem hefur hækkað um
tugi prósenta á undanförnum árum, að hluta til vegna áhrifa
gjaldeyrishafta. Við bætist að ríkisstjórnin ætlar að ráðast í
hundraða milljarða króna skuldaniðurfellingar, sem lenda
að mestu hjá tekjuháum. Rúsínan í pylsuendanum er síðan
áform hennar um að afnema lágmarksútsvar. Þá geta hinir
ríku hópað sig enn frekar saman í sveitarfélögum þar sem
þeir greiða mjög lága skatta.
Í ávarpi sínu á þjóðhátíðardaginn sagði Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson forsætisráðherra að Ísland hefði „ekki verið
stéttskipt á sama hátt og mörg önnur lönd og það er einn af
mörgum góðum kostum þess að byggja þetta land“. Það stétt
skiptingarleysi, hafi það einhvern tímann verið til staðar,
virðist vera á hröðu og markvissu undanhaldi, að hluta til
vegna aðgerða ríkisstjórnarinnar. Verði ekki brugðist við
þessari þróun í aðdraganda kjarasamninga í haust gæti hún
fest sig rækilega í sessi.
Laugavegi 71, 101 Reykjavík
Sími 551-0708
kjarninn@kjarninn.is
www.kjarninn.is
Ritstjóri: Þórður Snær Júlíusson
Framkvæmdastjórar: Gísli Jóhann
Eysteinsson og Hjalti Harðarson
Kjarninn miðlar ehf.
gefa Kjarnann út.