Kjarninn - 22.08.2013, Blaðsíða 75

Kjarninn - 22.08.2013, Blaðsíða 75
Deildu með umheiminum Pistill Ingibjörg Sólrún Gísladóttir framkvæmdastjóri un Women í Afganistan Hvað er fram undan í afganistan Lýðræðisþróun andspænis afturhaldsöflum Þ egar alþjóðlegar hersveitir undir forystu Bandaríkjamanna fóru inn í Afganistan í árslok 2001 var hinn yfirlýsti tilgangur að handsama Bin Laden og ganga milli bols og höfuðs á Al­ Kaída og afgönskum hryðjuverkasveitum honum hliðhollum. Talibanar höfðu þá stjórnað landinu frá 1996 en þeir náðu undirtökunum í skelfilegri borgarastyrjöld sem geisaði eftir fall kommúnistastjórnarinnar árið 1990 þar sem fjórar Mudjahedin­fylkingar tókust á um völdin. Innrásin í Afganistan naut umtalsverðs stuðnings á Vesturlöndum, bæði vegna árásarinnar á Tvíburaturnana í New York 11. september 2001 en eins vegna hins, að heimsbyggðin hafði fylgst í hryllingi með stjórnarháttum talibana; trúarofstækinu, refsigleðinni og kvenhatrinu. aðeins lítill hluti aðstoðarinnar verður eftir í landinu En eins og dæmin sanna er eitt að fara inn í land með herlið og annað að komast út aftur og geta með sanni sagt að árangur hafi náðst sem réttlætt geti mannfórnir og ómældan kostnað af stríðsrekstrinum. Talið er að um 45.000 manns, hermenn og almennir borgarar, hafi látist af völdum átakanna í Afganistan og fjárframlög frá alþjóðasamfélaginu hafa verið gríðarleg, bæði í formi framlaga til öryggismála sem og þróunar­ og mannúðarmála. Framlagið hefur vaxið ár frá ári; á árinu 2005/2006 nam framlagið rúmlega fjórum milljónum Bandaríkjadala en 2010/2011 hafði framlagið fjórfaldast og nam 15,7 milljörðum Bandaríkjadala, sem jafngilti allri landsframleiðslu Afganistans á því ári. Það verður þó að hafa í huga að alþjóðleg framlög til Afganistans verða ekki nema að takmörkuðu leyti eftir í Afganistan því stór hluti þeirra fer úr landi aftur í formi vopnakaupa, margvíslegs vöruinnflutnings og greiðslna til verktaka, ráðgjafarfyrirtækja og alþjóðlegra starfsmanna. Er jafnvel talið að aðeins um 38 prósent framlaganna komi yfirleitt inn í afganska hagkerfið. Eftir rúman áratug í Afganistan er alþjóðaherliðið nú farið að draga sig til baka og stefnir að því að vera á brott með allar hersveitir, aðrar en þær sem nauðsynlegar eru til að þjálfa afganska herinn, fyrir lok ársins 2014. Brottflutningur herliðsins mun hafa gríðarleg áhrif í landinu; hernaðarleg, pólitísk og efnahagsleg. Kvenkyns fórnarlömbum stríðsátakanna fjölgar Hin efnahagslegu áhrif felast ekki síst í því að um 100.000 hermenn munu verða á brott og álíka margir alþjóðlegir starfsmenn verktakafyrirtækja sem vinna í tengslum við alþjóðaherinn, en með þeim hverfur fjöldinn allur af þjónustustörfum, bæði beinum og afleiddum, sem afganskir starfsmenn sinna. Þá er talið líklegt að samhliða brotthvarfi alþjóðhersins muni mörg ríki draga úr framlögum sínum til þróunar­ og mannúðarmála í landinu. Að vísu er talið að aðeins um 6–10 prósent af vinnuaflinu séu í störfum sem fjármögnuð eru með alþjóðlegum framlögum en það munar um öll störf, því um helmingur þjóðarinnar hefur ekki næga atvinnu og vegna fjölgunar þurfa 400 til 500 þúsund ný störf að verða til á hverju ári. Í öryggismálum verða áhrifin mjög sýnileg en afganski herinn hefur smám saman verið að taka yfir landsvæði sem áður voru undir stjórn alþjóðahersins og á sumum þessara svæða eru áhöld um hversu vel hafi til tekist. Afganski herinn hefur að mörgu leyti staðið sig vel í baráttunni við árásarsveitir en þær eru aðeins hluti vandans því á mörgum svæðum eru aðrir en talibanar undir vopnum sem geta ógnað friði og öryggi. Afganskar konur hafa miklar áhyggjur af öryggi sínu, meðal annars vegna þess að víða er löggæslan í molum og margir fyrrverandi ofbeldis­ og hryðjuverkamenn hafa verið munstraðir í löggæsluhlutverk í svokölluðu Afghan Local Police (ALP), sem eru vopnaðar löggæslusveitir, stofnaðar af Bandaríkjamönnum, sem lúta hvorki aga­ né eftirlitsvaldi innanríkisráðuneytisins. Á síðasta ári fækkaði almennum borgurum sem voru fórnarlömb stríðsátakanna í Afganistan að vísu í fyrsta skipti síðan 2006 um 12 prósent en hins vegar fjölgaði konum og stúlkum í þessum hópi um 20 prósent. Þá virðast fleiri konur verða fyrir skipulögum árásum en á síðasta ári voru til dæmis tvær konur, sem voru yfirmenn útibús kvennamálaráðuneytisins í Laghman­héraði, drepnar með stuttu millibili. Morðingar þeirra hafa enn ekki verið handteknir enda virðist oft sem lítil alvara fylgi leitinni að meintum árásarmönnunum. Konur og kosningar Hver hin pólitísku áhrif verða af brotthvarfi alþjóðahersins á enn eftir að koma í ljós en árin 2014 og 2015 verða mjög pólitískt mikilvæg því á árinu 2014 verða forsetakosningar og samhliða kosið til 36 fylkisþinga eða Provincial Councils, og árið 2015 fara svo fram þingkosningar. Það er því ljóst að það verða stjórnarskipti í landinu og í fyrsta skipti í sögu Afganistans mun einn þjóðkjörinn forseti taka við af öðrum. Það er því mjög mikilvægt að vel takist til um skipulag kosninganna; öryggi frambjóðenda og kjósenda verði tryggt, kosningaþátttaka verði almenn og ásakanir um kosningasvindl hverfandi. Konur hafa 25 prósenta kvóta á þjóðþinginu og höfðu hann líka á fylkisþingum en í júlí samþykkti þingið ný kosningalög sem minnka kvóta þeirra á fylkisþingum niður í 20 prósent, sem er reyndar varnarsigur, því til stóð að taka þann kvóta alfarið af þeim. Þátttaka kvenna í kosningunum, bæði sem frambjóðendur og kjósendur, er hins vegar gríðarlega mikilvæg og nokkurs konar prófsteinn á lýðræðisþróunina í landinu. Kvenkyns frambjóðendur hafa aftur á móti áhyggjur af öryggi sínu og kvenkyns kjósendur óttast að karlar í þeirra fjölskyldu og/eða heimabyggð reyni að hindra að þær komist á kjörstað. Framkvæmd kosninga í landi eins og Afganistan er gríðarlegt verkefni og sú stofnun sem sér um framkvæmd kosninga, Independent Election Committee (IEC), þarf að þjálfa 4000 nýja starfsmenn til að vinna að kosningunum. Samkvæmt upplýsingum frá innanríkisráðuneytinu verða 6000 kjörstaðir í landinu og af öryggisástæðum þarf að leita á öllum kjósendum en af því aðeins konur geta leitað á konum þarf að þjálfa um 13.000 konur til öryggisstarfa fyrir kosningar. Friðsamleg stjórnarskipti eða borgarastyrjöld Ef vel tekst til í komandi kosningum og stjórnarskipti fara friðsamlega fram er það gríðarlegur áfangi í lýðræðisþróun Afganistans, sem fór tvisvar á síðustu öld í gegnum lýðræðisþróun sem endaði í byltingu og vopnuðum átökum, fyrst á þriðja áratugnum og svo 1973. En það eru enn mörg ljón í veginum og of snemmt að spá fyrir um hvernig til tekst. Eitt slíkt ljón eru talibanarnir, því enginn veit hvort og þá hvernig þeir munu reyna að hafa áhrif á kosningarnar. Opnun skrifstofu þeirra í Katar með stuðningi Bandaríkjamanna er sjálfsagt liður í því að ná einhvers konar samkomulagi við þá fyrir kosningar og áður en alþjóðaherliðið hverfur á brott úr landinu. Samkomulag við þá og þokkalega friðsamlegar kosningar væri þá sá árangur sem alþjóðasamfélagið gæti þakkað sér og sinni aðkomu á undanförnum áratug. Hitt gæti líka gerst að allt færi á verri veg og talibanar tækju ákvörðun um að hunsa og jafnvel trufla kosningarnar með aðgerðum sínum og árásum og bíða af sér brottför alþjóðaherliðsins. Í því tilfelli er hætt við að lýðræðisferlið í Afganistan og tilraun til að koma landinu inn í nútímann myndi enn eina ferðina enda í blóðugum innbyrðis átökum. Margir Afganar búa sig undir hið versta og allir sem maður talar við hafa skoðað með hvaða hætti þeir geti komist úr landi ef mál þróast á versta veg. Það sem gæti hins vegar komið í veg fyrir slíka þróun er sú staðreynd að talibanar í Afganistan eru vígamóðir og sundraðir og eiga ekki jafn auðvelt og áður með að fá fjárhagslegan stuðning til aðgerða, þar sem þeir eiga í harðri samkeppni við sveitir íslamista í Malí, Nígeríu, Sýrlandi og víðar og stuðningur frá Pakistan fer minnkandi, enda sýpur Pakistan nú seyðið af aðgerðum þeirra þar í landi. afturhaldsöflin sækja í sig veðrið Nú þegar sést hilla undir brottför alþjóða hersins og jafnvel friðarsamninga við talibana er eins og almenningur, stjórnvöld og alþjóðasamfélagið fari að búa sig sálfræðilega undir innkomu þeirra í stjórn landsins. Flestir fara að róa á bæði borð, fylgja í orði kveðnu lýðræðisumbótum en láta uppivöðslu afturhaldsafla ómótmælt. Þá er gjarnan sagt að það borgi sig ekki að ögra afturhaldsöflunum og því sé betra að þegja. En hversu lengi getur það gengið? Í þinginu er tekist á um lög um afnám ofbeldis gegn konum og afturhaldsmenn halda þeim í gíslingu. Samt eru þetta lögin sem allt alþjóðasamfélagið lítur til sem grundvallarlaga um réttindi kvenna. Og Karzai segir ekki margt. Í júlímánuði kynntu bandarísk stjórnvöld til sögunnar 200 milljóna dollara áætlun til að styrkja stöðu kvenna en varla var blekið þornað á fréttatilkynningunum þegar einn helsti trúarlegi ráðgjafi Karzai forseta tilkynnti að hann myndi ekki hafa afskipti af yfirlýsingu sem gefin var út af klerkum í Deh Salah í Baghlan­fylki þess efnis að konur mættu ekki vera á ferli án karlkyns ættingja, og loka ætti öllum snyrtivöruverslunum á svæðinu, því þær væru vændishús. Nú þegar hefur komið til átaka út af þessu og borgarstjórinn í Deh Salah verið drepinn þegar hann reyndi að framfylgja yfirlýsingunni. Það sem vekur athygli í þessu máli er að talibanar eru ekki ráðandi í Deh Salah því svæðið var hreiður Norðurbandalagsins á sínum tíma. spilling og misskipting En ef við gefum okkur samt að vel takist til í þeim hernaðarlegu og pólitísku umskiptum sem fram undan eru á árinu 2014 eru engu að síður blikur við sjónarrönd sem vert er að gefa gætur. Gríðarlegt innflæði fjármagns í landið á undanförnum áratug hefur gert mörgum kleift að sanka að sér auði og völdum, meðal annars gömlum stríðsherrum með blóðugar hendur, og misskipting hefur aukist; hinir ríku verða ríkari á meðan 36 prósent þjóðarinnar eru undir fátæktarmörkum. Flestir reyna að maka krókinn meðan hægt er og hygla ættingjum, og sveitungum og spilling og mútur eru allsráðandi. Samhliða þessu hefur menntun aukist í landinu, sérstaklega meðal ungs fólks, en tveir þriðju hlutar þjóðarinnar eru undir 25 ára aldri. Stór hluti þessa unga fólks kemst hins vegar hvorki í framhaldsnám, vegna skorts á námstækifærum, né heldur fær það vinnu við sitt hæfi, en um helmingur þeirra sem útskrifast úr framhaldsskólum fer í ófaglærð störf. Eins og dæmin sanna í Norður­Afríku getur skapast eldfimt ástand þegar saman fara stórir hópar ungs, menntaðs fólks sem fær engin tækifæri og svo misskipting, spilling og vanhæf stjórnvöld. Ef ný stjórnvöld í Afganistan ná ekki tökum á þessu ástandi og takast ekki af fullri alvöru á við spillinguna í landinu gæti þróun mála orðið með einhverjum þeim hætti sem enginn sér fyrir núna, því enginn veit á hvaða sveif þetta unga fólk leggst. Það er hins vegar borin von að stjórnvöldum takist að snúa þróun mála til betri vegar ef þau halda áfram að mylja undir gamla stríðsherra og gefa íhaldssömum klerkum undir fótinn, á sama tíma og þau telja alþjóðasamfélaginu trú um að þau vilji virða mannréttindi, þar á meðal réttindi kvenna, og takast á við spillinguna. Sú spurning hlýtur líka að vera áleitin hversu lengi alþjóðasamfélagið ætlar að láta orð stjórnvalda duga í stað þess að gera skýlausa kröfu um að þeim fylgi athafnir. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir er yfirmaður un Women í Afganistan og hefur gegnt því starfi frá haustinu 2011. Hún er fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar, utanríkisráðherra og borgarstjóri í Reykjavík. 01/01 kjarninn PISTILL
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127

x

Kjarninn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kjarninn
https://timarit.is/publication/958

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.