Kjarninn - 22.08.2013, Page 46
Hvað næst?
Njósnamálið tók síðast nýja og nokkuð óvænta stefnu í
byrjun vikunnar þegar Brasilíumaðurinn David Miranda
var tekinn fastur á Heathrowflugvelli í London. Miranda er
sambýlismaður Glenn Greenwald, sem hefur skrifað flestar
fréttirnar upp úr skjölunum sem Snowden lak til hans.
Miranda var á leið heim til Brasilíu frá Þýskalandi, þar sem
hann hafði dvalið hjá Lauru Poitras, kvikmyndagerðarkonu
sem hefur unnið flestar fréttirnar með Greenwald. Miranda
var yfirheyrður um líf sitt og fréttir sambýlismannsins, en
ekkert um hryðjuverk, þrátt fyrir að vera haldið á grundvelli
hryðjuverkalaga. Þá tók lögreglan tölvu hans, farsíma og
myndavél meðal annars, en hann hefur nú farið fram á að fá
allar eigur sínar til baka án þess að lögregla taki af þeim afrit
eða skoði þær.
Málið hefur vakið gríðarlega athygli og reiði. Brasilísk
stjórnvöld hafa krafist útskýringa á því hvers vegna Miranda
var yfirheyrður og honum haldið í níu klukkustundir á
flugvellinum. Nánast engin fordæmi eru fyrir því að fólki
sé haldið svo lengi í yfirheyrslum af þessu tagi. Greenwald
sjálfur, aðrir blaðamenn og fjölmiðlar hafa gagnrýnt
bresk stjórnvöld harðlega ásamt ýmsum mannréttinda
sérfræðingum og samtökum. Greenwald segir aðgerðunum
augljóslega ætlað að senda ógnandi skilaboð. „Aðgerðir Breta
eru alvarleg ógn við blaðamenn alls staðar.“ Undir þetta hafa
fjölmargir tekið, meðal annars ritstjóri The Guardian, Alan
Rusbridger, sem greindi frá því í kjölfar handtökunnar að
stjórnvöld í Bretlandi hefðu krafist þess að hætt yrði að flytja
fréttir upp úr gögnum Snowdens. Hann segir stjórnvöld hafa
verið tilbúin að fara með málið fyrir dómstóla og á endanum
hafi embættismenn fylgst með þegar afrit af gögnunum voru
eyðilögð í höfuðstöðvum blaðsins.
Bandaríkjamenn neita því að hafa haft nokkuð um mál
Miranda að segja en stjórnvöld hafa viðurkennt að hafa
fengið upplýsingar um að til stæði að handsama hann áður
en það var gert. Sömu sögu segir breska stjórnin, hún hafi
fengið upplýsingar um málið en hafi ekki skipt sér af
6/10 kjarninn mAnnRéTTInDI