Kjarninn - 22.08.2013, Page 47
aðgerðum lögreglu. Bresk stjórnvöld hafa varið
ákvörðunina og segja lögreglu hafa orðið að bregðast við
einstaklingi sem hafi haft meðferðis „mjög viðkvæmar,
stolnar upplýsingar sem gætu hjálpað hryðjuverkamönnum“.
Hins vegar hafa þau ekki fengist til að ræða um eyðileggingu
gagnanna við fjölmiðla.
Margir hafa í kjölfar þessara nýjustu atburða velt
vöngum yfir framhaldinu fyrir blaðamennsku og hreinlega
upplýsinga frelsið. Kristinn Hrafnsson, talsmaður Wikileaks,
sagði til dæmis aðgerðir gegn fjölmiðlum vísi að upprisu
fasima í Bretlandi, Bandaríkjunum og öðrum vestrænum
ríkjum, jafnvel á Íslandi. Þar vísuðu enda stjórnvöld
hugmyndinni um að veita Snowden hæli strax á bug á þeim
forsendum að hann yrði að vera á Íslandi til að sækja um
hæli.
Þegar Snowden kom fram í byrjun júní sagðist hann hafa
fylgst með og beðið eftir því að stjórnvöld leiðréttu þær öfgar
sem farið hefði verið út í undanfarin ár. Það hefði hins vegar
ekki gerst heldur hefði sífellt verið bætt í. Hugmyndir um
frjálslyndi hefðu breyst og einkalíf þar minnkað. Þessu vildi
hann breyta.
Eftir uppljóstranir hans hafa fleiri Bandaríkjamenn
meiri áhyggjur af því að borgaraleg réttindi þeirra séu
virt að vettugi heldur en af hryðjuverkaógn, í fyrsta skipti
frá 11. september 2001. Það er umtalsverð breyting hjá
þessari stórþjóð, sem hingað til virðist hafa sætt við sífellt
meiri fórnar kostnað vegna stríðsins gegn hryðjuverkum.
Samkvæmt nýjustu rannsóknum Pewrannsóknarsetursins
telur naumur meirihluti Bandaríkjamanna að dómstólar hafi
ekki náð að setja nægilegar skorður á gagnasöfnun NSA og
70 prósent þeirra telja að gögnin sem safnað er séu notuð til
annars en að rannsaka hryðjuverk.
Þrátt fyrir allt hefur njósnamálið stóra ýtt upp á yfir
borðið mikilvægum spurningum um jafnvægið á milli
öryggis og einkalífs, upplýsingafrelsi og fleira. Á næstu
mánuðum gætu svörin litið dagsins ljós.
7/10 kjarninn mAnnRéTTInDI
Smelltu til að horfa
á viðtal Kristins
Hrafnssonar við
Russia Today
Smelltu til að
skoða rannsóknir
Pew á skoðunum
Bandaríkja manna
betur