Dagfari - 01.11.2007, Síða 3

Dagfari - 01.11.2007, Síða 3
NNýlegar skoðanakannan- ir sýna að meira en helm- ingur Bandaríkjamanna er hlynntur því að ráðast á íran, til að koma í veg fyrir að landið eignist kjarnorkuvopn. Fjórir af hverjum íimm telja að ef Iranir byggju yfir kjarnorkuvopnum myndu þeir láta hryðjuverkamönnum þau í té og tveir af hverjum þremur telja írani líklega til að ráðast á Bandaríkin. Þetta eru sláandi tölur, sem leiða í ljós hversu áhrifaríkur stöðugur hræðslu- og stríðsæsingaáróður getur verið. Á sama tíma og heimsbyggðin horfir upp á hörmungar stríðsins í írak, sem hverri sálu má vera ljóst að var stofn- að til með lygum og fölsunum, virðist forsprökkum bandarískrar heims- valdastefnu ætla að takast að endur- taka leikinn og það án þess svo mikið að hafa fyrir að skipta um plötu. Það er við aðstæður sem þessar að friðarhreyfingar heimsins hafa mikilvægustu hlutverki að gegna. Verkefni okkar er að fletta ofan af stríðsæsingaöflunum og andæfa mál- flutningi þeirra sem tala fyrir hernaði og vígvæðingu. Blóðvellirnir í írak eru lifandi sönnun þess hvað er í húfi í þeirri baráttu. Það er auðvelt að láta hugfallast and- spænis afli áróðursvélar hernaðar- sinna, sem hafa flest helstu stjórn- málaöfl á sínu bandi og megnið af fjölmiðlum. Andspænis slíku valdi virðast sjálfssprottnar grasrótarhreyf- ingar magnlitlar. Veruleikinn er hins vegar sá að hin alþjóðlega friðarhreyf- ing hefur unnið ýmsa stórsigra í sögu sinni, þegar tekist hefur að virkja samtakamátt fólksins. í því sambandi má nefna baráttuna gegn kjarnorku- kapphlaupi risaveldanna á níunda áratugnum, sem vísast hefði endað með gjöreyðingarstríði ef friðarsinnar hefðu ekki tekið í taumana. Ár er nú liðið frá því að Samtök hern- aðarandstæðinga tóku upp núver- andi nafn sitt. Við nafnbreytinguna var því spáð að á komandi misserum yrði sífellt stærri þáttur í starfsemi samtakanna fólginn í að berjast gegn vaxandi hernaðarhyggju í íslensku þjóðfélagi og tilraunum til að flækja ...þungavigt- armenn úr stétt vopna- sala og -framleið- enda telja sig aufusugesti hér... ísland enn frekar í vígbúnaðarkerfi NATO-ríkja. Þeir spádómar hafa svo sannarlega ræst. Á liðnu ári höfum við horft upp á íslenska ráðamenn fara land úr landi til að reyna að lokka hingað erlenda heri í stað þess bandaríska, sem góðu heilli er á braut. Það er keppikefli stjórnvalda að hér séu sem stærstar og tíðastar heræfingar, með tilheyrandi vígtólasýningum í höfnum landsins, lágflugsæfingum á hálendinu og ann- arri óáran. í Reykjavík eru haldnar stórar ráðstefnur á vegum NATO og þungavigtarmenn úr stétt vopnasala Mynd: Harpa Stefánsdóttir og -framleiðenda telja sig aufúsugesti hér. Ekki er frammistaða íslendinga á er- lendum vettvangi heldur til að hrópa húrra fyrir. í Afganistan taka íslenskir friðargæsluliðar þátt í hernámsverk- efni NATO-ríkja, sem síst hefur reynst til þess fallið að koma á friði í þessu stríðsþjáða landi. Það er barist af sama lcrafti í Afganistan nú og fyrir hálfum áratug. Munurinn er sá að núna hafa vestrænir fjölmiðlar misst áhugann og því erum við ekki lengur ónáðuð með fréttum af afleiðingum gjörða okkar þar í landi. Verkefni íslenskra hernaðarand- stæðinga eru ærin. Á næstu misserum bíður oklcar barátta gegn heræfing- um og heimsóknum herskipa. Krafa okkar urn friðlýsingu íslands fyrir umferð og geymslu kjarnorku-, efna- og sýklavopna stendur óhögguð. Hervæðing borgaralegra stofnana á borð við lögreglu og landhelgisgæslu er okkur vitaskuld þyrnir í augum og sama máli gegnir um svokölluð friðargæsluverkefni sem eru í raun lítt dulbúin hermennska. Samhliða þessu munu íslenskir hernaðarandstæðing- ar vitaskuld tjá afstöðu sína til helstu pólitísku deilumála samtímans og þrýsta á íslensk stjórnvöld um að beita áhrifum sínum og tala máli friðar og afVopnunar á alþjóðavettvangi. Virk íslensk friðarhreyfing hefur sjaldan verið jafnmikilvæg og ein- mitt núna. Forsenda hennar er að sem flestir leggi hönd á plóg og taki þátt í starfinu. Oft var þörf, en nú er nauðsyn. Stefán Pálsson formaður SHA Dagfari • nóvember 2007 3

x

Dagfari

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagfari
https://timarit.is/publication/968

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.