Dagfari - 01.11.2007, Qupperneq 17

Dagfari - 01.11.2007, Qupperneq 17
\ vw/11 v C*EPUAEIÍHB«N ÍNAFNILMfcWS " HÖFW5lKÍ»t YANKEE Mynd: Harpa Stefánsdóttir Um mánaðamótin okt- óber/nóvember voru staddir hér landi um 30 æðstu yfirmenn breska vopnaframleiðslufyrir- tækisins BAE Systems. Þeir funduðu á Hilton-Nordica-hótelinu í Reykjavík og vissu fáir af kornu þeirra hingað til lands fyrr en eftir að fundahöldin hófust og fjölmiðlar gripu málið álofti. Þetta er eitt stærsta vopnaframleiðslu- fyrirtæki heims, en hjá því starfa um 96 þúsund manns. Meðal þeirra ríkja, sem keypt hafa af því vopn, eru Indónesía, Sádi-Arabía, Zimbabwe og ísrael. Það hefur iilotið mikla gagn- rýni mannréttinda- og friðarsamtaka og verið sakað um spillingu og rnútur. Breska spillingarskrifstofan, SFO (Se- rious Fraud Office), hefur rannsakað viðskipti þess í sex löndum, það er Tanzaníu, Tékklandi, Katar, Rúmeníu, Suður-Afríku og Chile. Breska blaðið Guardian birti árið 2005 fréttir af því að fyrirtækið hefði greitt Augusto Pi- nochet háar fjárhæðir fyrir að liðka fyrir viðskiptum í Chile. Einnig þykja viðskipti þess í Sádí-Arabíu vafasöm. Þess má geta að fyrirtækið hefur komið að framleiðslu kjarnavopna. Af tilefni fundarins gáfu SHA út svohljóðandi ályktun um málið hinn 2. nóvember 2007: „Samtök hernaðarandstæðinga gagn- rýna harðlega fund stjórnenda vopna- framleiðslufyrirtækisins BAE Systems í Reykjavík. Vopnaiðnaðurinn er án nokkurs vafa óviðfelldnasta atvinnu- grein samtímans. Fyrirtæki á borð við BAE byggja afkomu sína á stríðsreksti og blóðsúthellingum. Hendur þeirra manna sem nú funda á Hilton-hótel- inu við Suðurlandsbraut eru litaðar blóði og heimsóknir slíkra manna til íslands eiga ekki að líðast. Samtök hernaðarandstæðinga hvetja alla landsmenn til að senda fram- leiðendum og sölumönnum drápstóla skýr skilaboð: þeir eru ekki og munu ekki verða aufúsugestir hérlendis.“ Fleiri ályktuðu gegn fundinum. Stjórn Ungra vinstri-grænna sendi frá sér ályktun hinn 1. nóvember 2007. Þá gáfu Ungir jafnaðarmenn í Hafn- arfirði út ályktun á aðalfundi sínum hinn 3. sama mánaðar, auk þess sem borgarstjórnarflokkur vinstri-grænna jy ... rétt- ast væri að slökkva áfriðarsúl- unni... í Reykjavík ályktaði hinn 6. sama mánaðar. í ályktun stjórnar Ungra vinstri- grænna segir meðal annars: „Ung vinstri-græn minna á að ný- lega var afhjúpuð friðarsúla í Viðey og að í því samhengi var rætt um að Reykjavík yrði friðarhöfuðborg heims- ins. Á meðan stríðstólaframleiðendur funda óáreittir í Reykjavík er ljóst að allt slíkt tal er hræsni. Ung vinstri- græn telja að réttast væri að slökkva á friðarsúlunni, að minnsta kosti á meðan stríðstólaframleiðsla er skipu- lögð í borginni.“ Við svipaðan tón kveður í ályktun borgarstjórnarflolcks vinstri-grænna í Reykjavík, en þar segir meðal annars: „Borgaryfirvöld hafa á síðustu misserum viljað kynna Reykjavík sem miðstöð friðar og má í því sambandi nefna Friðarsúlu Yoko Ono sem sett var upp í Viðey á dögunum. Fundir og kaupstefnur vopnaframleiðenda geta ekki samiýmst því markmiði og sömu sögu má raunar segja um ráðstefnur á borð við þá sem hernaðarbandalagið NATO hélt hér nýverið." Ályktun aðalfundar Ungra jafnaðar- manna í Hafnarfirði hljóðar svo: „Ungir jafnaðarmenn í Hafnarfirði harma fund stríðsmangaranna í breska vopnaframleiðslufyrirtækinu BAE Systems á Hilton-Nordica-hótel- inu. Þetta fyrirtæki hefur hiklaust selt vopn til allra handa einræðis- og kúgunarstjórna. Má þar nefna sölu á svonefndum Hawk-herþotum til Zimbabwe sem notaðar voru í hinu hörmulega borgarastríði í Kongó, sem og sölu á sams konar þotum til Indó- nesíustjórnar sem beitt var í þjóðar- morðinu á Austur-Tímor. Það er ein- staklega óviðeigandi að þessir menn skuli funda hér í ljósi þess að nýlega var sett upp minnismerki í Reykjavík um hinn mikla og einlæga friðarsinna John Lennon. UJH hvetja til þess að framvegis verði komið í veg fyrir allar ráðstefnur vopnaframleiðenda hér á landi með sarna hætti og komið var í veg fyrir ráðstefnu klámframleiðenda fyrr á árinu. Þá lcrefjast UJH sem endranær tafarlausrar úrsagnar úr kjarnorkuvopnabandalaginu NATO.“ Dagfari • nóvember 2007

x

Dagfari

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagfari
https://timarit.is/publication/968

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.