Dagfari - 01.11.2007, Side 13
POL POT (PANTÚM)
Pol Pot er á pissupotti í pútnahúsi.
Pol Pot er með persónuleikaþroskaþrjóskuröskun og
parkinsons í popparapartí, pissandi í sig
á plágustigi í peysufötunum.
Pol Pot er með persónuleikaþroskaþrjóskuröskun og
prumpandi pappírsfætur, púkablístru í pjásustað
á plágustigi í peysufötum,
pardusdýr í parukkgæru, pluðraðri og plutrulegri.
Prumpandi pappírsfótum, púkablístrum í pjásustað,
og plötusnúðsins prakkarastrikum á Plútó,
pardusdýri í parukkgæru, pluðrari og plutrulegri.
Paklt leggur púkk í sekk fyrir Pol Pot.
Plötusnúðsins prakkarastrik á Plútó,
popplög fyrir púðraða punglinga og punglaga púðlinga á meðan
pakk leggur púkk í sekk fyi-ir Pol Pot
og pelíkanar með pompadúr spila Pirates of Penzance.
Popplög fyrir púðraða punglinga og punglaga púðlinga! - Á meðan:
pörin paraballanna passa sig á Pol Pot
og pelíkanar með pompadúr spila Pirates of Penzance
á píanó, penníblístrur og púðurdósir.
Pörin paraballanna passa sig á Pol Pot,
þessum prjálgjarna pörupilti sem pissar
á píanó, penníblístrur og púðurdósir,
án purkunar ineð penisnum pastursmiklum.
Þessi prjálgjarni pörupiltur sem pissar
- Pol Pot er með persónuleikaþroskaþrjóskuröskun —
án purkunar með penisnum pastursmiklum:
Pol Pot er á pissupotti í pútnahúsi.
Eiríkur Örn Norðdahl
Dagfari • nóvember 2007
13