Dagfari - 01.11.2007, Qupperneq 16
Skot úr Orrustunni um Alsír
á þessum lista en hér á hann ræki-
lega heima. Hann gerði þessa dásam-
legu gamanmynd 1942 og þrátt fyrir
að vera einn vinsælasti kvikmynda-
gerðarmaður I Iollywood þorði ekkert
stúdíóanna að snerta á henni svo hún
er gerð sjálfstætt. Söguþráðurinn er
einfaldur: Hópur leikara þarf að kom-
ast frá Póllandi og til þess dulbúa þeir
sig sem Hitler og föruneyti.
Powell og Pressburger
Frumlegustu kvikmyndagerðarmenn
allra tíma gerðu fjölda af óvenjuleg-
um og yndislegum „stríðs“-myndum.
Margar þeirra eru á mörkum stríðs-
mynda en þær eru þess virði að skoða:
39th Parallel, One of Our Aircraft is
Missing, the Canterbury Tales, I Know
Where I’m Going, A Matter of Life and
Death og the Life and Death of Colonel
Blimp. Sú síðastnefnda gerist í hvorki
meira né minna en þremur stríðum
og var nærri bönnuð af Churchill, sem
hlýtur að vera gæðastimpill.
M*A*S*H og Catch 22
Gerum bara grín að þessu öllu sam-
an: Búið er að minnast á nokkrar
stríðs-„gaman“-myndir nú þegar en
hér fylgja tvær í viðbót sem merkilegt
nokk eru frekar skyldar og frá sama
ári: M*A*S*H og Catch 22 (1970).
í báðum myndunum er gert grín að
öllum stríðsrekstri og nær allir sem
að stríði koma eru aular. Sæmilega
nálægt sannleikanum sem sagt.
Rússneskar stríðsmyndir
Rússarnir kunna þetta: Rússar hafa
í gegnum tíðina gert margar merkar
stríðsmyndir. Hér verður minnst
sérstaklega á þrjár: Ballaða her-
manns (1956), Trönurnar fljúga
(1957) og Komið og sjáið (1985). Sú
síðastnefnda krefst sérstakrar athygli:
Þetta kann að vera merkasta og besta
stríðsmyndin af þeim öllum af þeirri
einföldu ástæðu að hún raunverulega
sýnir stríð sem helvíti á jörðu og er
líklega raunsæjasta stríðsmynd sem
gerð hefur verið.
Das Boot
Styrkur kafbátamyndarinnar felst í
því að sýna óþægindin sem felast í
þrengslum og einangrun. Engin er
betri heldur en stórvirki Wolfgangs
Petersen, Das Boot (1981), sem sýnir
ekki bara þetta, heldur líka hversu
lengi menn eru án hvíldar og í stöðugri
vinnu, allan tímann bíðandi eftir
hættu og dauða.
Heimildarmyndir
Heimildarmyndir um stríð eru marg-
ar og misgóðar. Meðal þeirra bestu
eru: San Pietro (1945), Sorgin og vork-
unnin (1968), níu tíma helfaramyndin
Shoah (1985), In the Year of the Pig
(1969) og Hearts and Minds (1974).
Hér hefur sjónvarpið að miklu leyti
vissa yfirburði og toppurinn er senni-
lega World at War, tugir klukkustunda
sem taka seinni heimsstyrjöldina fyrir
að öllu leyti.
Klassíska strídmyndin
Af mörgu að taka, en sérstaklega The
Story of GI Joe (1945), The Big Red
One (1980) og Saving Private Ryan
(1998).
Grave of the Fireflies
Þetta kann að hljóma undarlega:
Japönsk teiknimynd í Anime stíl frá
1988. En þessi stófenglega mynd slær
öllum við þegar kemur að því að sýna
erfiðleika þess að vera saklaus borgari
á stríðstíma. Hún fjallar um systkini
sem hafa misst foreldra sína og þurfa
að að berjast fyrir hverjum munnbita.
Falleg og sorgleg bæði í senn.
Lengra verður ekki með góðu móti
komist, en hægt væri að minnast á
fjölda annarra. Fyrir þá sem hafa
áhuga á að kynna sér þessar myndir
og mun fleiri
mælir ritari
eindregið með
þeirri ágætu
bók 1001 Mo-
vies you must
see before you
die, sem fæst
í allnokkrum
bókabúðum
hér á landi. Hjalti Nönnuson
Dagfari • nóvember 2007