Dagfari - 01.11.2007, Side 23
Ríkisstjórnin vill þotur sem þessa
egar bandarískt herlið hvarf
burt frá íslandi fyrir rúmu
ári gaf þáverandi ríkisstjórn
út yfirlýsingu um ný verkefni
íslenskra stjórnvalda tengd
vörnum landsins. I henni kom m.a.
fram að setja þyrfti á laggirnar sam-
starfsvettvang stjórnmálaflokkanna
um öryggi íslands á breiðum grund-
velli. Þar með má segja að ríkisstjórnin
hafi viðurkennt áralangt tómlæti, því
ekki hafði hún frarn að þessu lagt mikið
á sig við að vinna stefnu um öryggi og
varnir íslands. Þó má finna í stefnu
um nýskipan lögreglumála ákveðnar
vísbendingar urn vilja ráðamanna til
að tengja saman löggæslu og varnar-
mál. í fyrrnefndri yfirlýsingu ríkis-
stjórnarnnar er lögð áhersla á aukið
samstarf lögreglu, landhelgisgæslu,
slökkviliða og björgunarsveita „þann-
ig að tryggja megi þátttöku varaliðs
hvarvetna þar sem þess kann að verða
þörf í landinu.“‘ Þannig má ljóst vera
að þessum aðilum er ætlað ákveðið
hlutverk í öryggis- og varnarmálum
þjóðarinnar. I grein þessari er ætlunin
að ráða í áform núverandi ríkisstjórn-
ar varðandi þennan málaflokk. Spilin
l Yfirlýsing ríkisstjórnavnmar um ný verkefni
íslertskra stjórnvalda við brottfór varnarliðs-
ins (26. sept. 2006), sótt af: http://www.forsaet-
israduneyti.is/media/frettir/Nyverkefni.pdf
sem ríkisstjórnin hefur á hendi í þeim
efnum leynast m.a í frumvarpi til fjár-
laga 2008. Við skulum kíkja nánar á
þau en rifja fyrst upp vissan aðdrag-
anda sem vert er að skoða.
Varalið ásamt öryggis- og grein-
ingarþj ónustu
Björn Bjarnason dómsmálaráðherra
fjallaði nánar um áðurnefnda yfirlýs-
ingu á fundi Samtaka um vestræna
samvinnu og Varðbergs sl. vor. Þar
skýrði hann betur markmiðið með
stofnun sérstaks varaliðs: Það skyldi
skipað 240 manns, sem kæmu „úr
röðum björgunarsveitarmanna,
slökkviliðsmanna, sjúkraliðsmanna,
öryggisvarða, friðargæsluliða og fyrr-
verandi lögreglumanna eftir sérstaka
þjálfun á vegum ríkislögreglustjóra.“
Með þeim liðsauka „gæti lögreglan
kallað út um 1000 manna þjálfað
lið“ eftir þörfum.2 Töluverð umræða
spannst vitaskuld um þessa tillögu
en Björn sór af sér að hann hefði með
henni í hyggju að stofna sérstakan
íslenskan her.
2 Björn Bjarnason: „Okkar ábyrgð - öryggi og
varnir íslendinga. Erindi á fundi Samtaka unr
vestræna samvinnu og Varðbergs, 29. mars,
2007.“, s. 6. Sótt af: http://www.domsmala-
raduneyti.is/media/frettir/erindi.pdf
í sama erindi minntist Björn einnig
á nýstofnaða greiningardeild lögregl-
unnar, sem hefur verið nokkuð um-
deild, en Björn er ekki í nokkrum vafa
um að hafi þegar sannað gildi sitt. í
þingumræðum um ný lögreglulög í
febrúar 2006 vísaði hann á bug þeirri
gagnrýni að með greiningardeildinni
væri verið að koma á laggirnar ís-
lenskri leyniþjónustu. Enda þótt
henni sé ætlað að eiga náið samstarf
við „stjórnvöld og alþjóðastofnanir,
þar sem skipst er á trúnaðarupplýs-
ingum“ sagði Björn starfsemi henn-
ar ekki eiga neitt skylt við leyniþjón-
ustustarfsemi. Engu að síður væri enn
ekki tekið á ,,heimild[um] þessarar
deildar [...] í þessu frumvarpi, það er
sérstakt álitaefni sem þarf að fjalla um
á Alþingi“.3 Hins vegar boðaði Björn
í Varðbergsræðu sinni að hann vildi
stofna „öryggis- og greiningarþjón-
ustu“ sem væri undir eftirliti Al-
þingis og hefði „heimildir til að hefja
rannsókn mála, án þess að fyrir lægi
rökstuddur grunur um, að afbrot hefði
verið franiið" og nefndi forvarnir gegn
lnyðjuverkum í því sambandi.4
3 Umræður á Alþingi um „Lögregluiög og fram-
kvæmdarvald ríkisins í béraði." (14.02.2006).
Sótt af: http://www.altbingi.is/raeda/132/
rad20060214T144502.html
4 Björn Bjarnason: „Okkar ábyrgð - öryggi og
varnir Islendinga...“, s. 6.
Dagfari • nóvember 2007
23