Dagfari - 01.11.2007, Side 38
STRÍÐ OG FRIÐUR
Dagfari fékk tón-
listarspekúlantinn
Kjartan Guðmunds-
son til að skrifa um
þau fimm lög sem
hann telur hafa hvað
mesta skírskotun til
friðarmála. Svörin
birtast hér að neðan.
Eins og sjá má koma
lögin hvert úr sinni
áttinni. Þarna má
finna rapp, köntrí og
nýrómantík svo að
eitthvað sé nefnt. En
öll eiga lögin — ásamt
því að skírskota til
stríðs og friðar — það
sameiginlegt að vera
alveg þrælfin.
Lög sem innihalda
mikilvægan og
beinskeyttan frið-
arboðskap eiga
það gjarnan til
að vera afspyrnu leiðin-
leg áheyrnar, því miður.
Hinsvegar erfjöldinn all-
ur til af skemmtilegum
lögum um stríð. Á þessum
topp 5 lista mínum yfir lög
um stríð og/eða frið reyni
ég aðfara milliveginn og
velja lög sem höfða til mín
af einhverjum ástæðum,
en ekki skemmir fyrir
ef boðskapurinn er á
friðsamlegu nótunum. Ég
tók eftir þvíþegar ég hafði
valið lögin að þau eru öll
u.þ.b. fimmtán ára gömul
eða eldri. Ég neita því
staðfastlega að ástæðan
fyrir þessum hruma lista
mínum sé sú að ég sé að
að verða gamall, sköllótt-
ur og leiðinlegur og kenni
því um að ungdómurinn í
dag kunni bara hreintekki
að semja og spila tónlist.
Kjartan Guðmundsson
1. MAGNÚS OG
JÓIIANN (ÁSAMT
LANDSLIÐIPOPP-
ARA) - STRÍÐ OG
FRIÐUR
Fyrsta lagið sem kemur upp í huga
mér þegar ég velti fyrir mér lögum
sem fjalla um stríð og frið. Ástæðan
er ekki ýkja flókin: lagið heitir Stríð
og friður. Hér þenur landslið poppara
raddböndin af miklum móð; Stefán
Hilmarsson, Björn Jörundur, Sigga
Beinteins og svo mætti lengi telja.
í raun mætti segja að aðeins vanti
Halla og Ladda til að reka upp nokk-
ur gól og þá væri verkið fullkomnað.
Þegar maður hefur jafnað sig á vægum
lúðahrollnum sem heltekur mann við
fyrstu hlustun kemur í ljós flugbeitt-
ur ádeilutexti, síst minna mikilvægur
en boðskapur samnefndrar bókar
eftir Leo „Sayer“ Tol-
stoj (skilst mér - ekki
að ég hafi nennt að
lesa þá eflaust ágætu
bók). Lagið hefur allt
sem prýða þarf gott
góðgerðarlag (þó ekki
viti ég til annars en að
afraksturinn af sölu
þess hafi farið beinustu
leið í vasa þeirra van-
metnu snillinga Magn-
úsar og Jóhanns), og
inniheldur heil tvö hetjugítarsóló. Ég
og vinir mínir kunnum svo vel að meta
þennan óð að við fluttum hann nokkrir
í söngkeppni á menntaskólaárunum.
Ekki veit ég hvers vegna ég er að rifja
það upp sjálfviljugur.
38
Dagfari • nóvember 2007
Snenima á ferlinum