Dagfari - 01.10.2009, Blaðsíða 7

Dagfari - 01.10.2009, Blaðsíða 7
 Allur þessi viðbúnaður var í takt við þá ímynd sem Sarkozy Frakklandsforseti hefur skapað sér að hann sé sterkur leið- togi sem líður ekkert rugl, enga óvirð- ingu við valdið. Við það bættist að sjálfur Barack Obama var væntanlegur á svæðið. Líklega hefði Sarkozy gert nánast hvað sem er til að tryggja að allt færi vel fram svo ekki mætti gefa í skyn að hann hefði ekki stjórn á hlutunum; í stuttu máli sagt, til að hann yrði ekki að athlægi. Ferðasaga Dagur 1: Koman til borgarinnar Strax í lestinni frá Þýskalandi til Frakk- lands tók að bera á ótal lögreglumönnum, gráum fyrir járnum, og það gaf tóninn fyrir ferðina. Mikill viðbúnaður blasti við okkur strax í útjaðri borgarinnar. Á hverju horni voru óeirðalöggur. Við komum til borgarinnar fimmtudaginn 2. apríl og þá þegar voru almennnings- samgöngur í lamasessi svo að ekki var um annað að ræða en ganga að tjaldbúðum mótmælenda. Þangað komum við þreytt, fótalúin og svolítið hrakin í búðirnar, sem voru á stóru túni í úthverfi óralangt frá borgarkjarnanum, eftir að hafa gengið næstum alla leið frá miðborginni með far- angurinn okkar. Búðargestir brugðust illa við þegar við fórum að taka myndir og sögðu það vera bannað. Þegar við vorum búin að tjalda þá mundum við að við vor- um ekki með neitt til að drekka og hél- dum þá í bjórleiðangur. Það er skemmst frá því að segja að við bárum ekki árang- ur sem erfiði og enduðum á því að drekka íslenskt brennivín fyrir svefninn vegna þess að það var eini vökvinn sem við vorum með. Þessu næst fórum við að sofa en yfir tjaldbúðunum sveimuðu herþyrlur alla nóttina. vistargrundvöll hernaðarbandalagsins og hvernig það reynir að réttlæta sig í breytt- ri heimsmynd, NATO í samhengi hnatt- væðingar og kreppu og margt, margt fleira. Bæði Noam Chomsky og Tariq Ali átm að fara með framsögur við setningu ráðstefnunnar, auk annarra, en forföl- luðust því miður báðir. Þessi ráðstefna ein og sér hefði klárlega verið næg ástæða fyrir samtök á borð við SFIA til að senda fulltrúa á vettvang. landamærin. Viðbúnaðurinn í borginni varð meðal annars til þess að fyrirlesarar fesmst á flugvellinum, vegna þess að þeir komu á svipuðum tíma og Obama. Þá læstist allt. En með stopulum sporvagnaferðum komumst við þó á ráðstefnustaðinn fyrir rest, í samfloti með ýmsum aðgerðasin- num úr búðunum. Þegar ráðstefnunni lauk voru almenn- ingssamgöngur hættar að ganga og við þurftum að ganga af stað í átt að búð- unum. Tekið skal fram að búðirnar voru staðsettar við íbúðarhverfi og aðkoman að hverfinu var mjög ljót þegar við kom- um til baka af ráðstefnunni. Svartblokkin svokallaða hafði ekki setið aðgerðalaus á meðan við vorum að fræðast; hún var búin að hlaða vegartálma úr allskonar drasli á götunni, strá glerbrotum yfir mal- bikið og safna grjóti í innkaupakerrur til að verjast lögreglunni, auk þess að brjóta bílrúður og rústa strætóskýli fyrir íbúum hverfisins. Dagur 2: Ráðstefnan Þegar stórar mótmælaaðgerðir eru skipu- lagðar í Evrópu er algengt að samhliða þeim séu haldnar ráðstefnur sem fjalla á fjölbreyttan hátt um tilefni þeirra. Svo var einnig í Strassborg. Það er óhætt að segja að á ráðstefnun- ni hefðu allir róttæklingar getað fundið eitthvað við sitt hæfi, slíkt var úrvalið af málstofum sem haldnar voru þennan dag í íþróttamiðstöð Illkirch í Strassborg. Af þemum hinna óh'ku málstofa má nefna andspyrnu í Mið-Austurlöndum, NATO út frá kynjafræðilegu sjónarmiði, stöðuna í Afghanistan, loftárásirnar á Við rölmm og skoðuðum okkur um og fylgdumst með hóp af svartklæddu fólki með grímur fyrir andlitinu sem var að reyna að ná eftirlitsmyndavél niður úr ljósastaur. Þau voru að langa stund, enda staðráðin í að ná niður hinni illu mynd- vél, og reyndu m.a. að fella sjálfan ljósas- taurinn með því að fara á fjóra fætur og grafa undan honum með höndunum. Allan tímann sveimuðu herþyrlur yfir staðnum. Þeim tókst að lokum að gera myndavélina óvirka, þó enn hafi hún hangið utan á staurnum, og uppskáru svoh'til fagnaðarlæti áhorfenda. A sama tíma reyndu þau grímuklæddu að banna fólki að taka myndir af atburðinum, og reyndar að vera yfir höfuð með myn- davélar á lofti. Eftir að hafa fylgst með atlögu þeirra að ljósastaurnum þorðum við ekki öðru en að setja myndavélarnar í vasann. Dagur 3: Gangan Sjálfur mótmæladagurinn var frekar rugl- ingslegur. Það var ekki mikil samræming í búðunum og t.d. ekki auglýst að um nóttina stæði til að setja upp vegatálma við fundarstað NATO. Þeir vegatálmar reyndust síðan áhrifaríkasta mótmæla- leiðin vegna þess að með þeim tókst að tefja beinlínis sjálf fundahöldin, jafnvel þótt það væri ekki nema um stundar- korn. Þennan dag lágu samgöngur alveg niðri og við gengum í nokkrar klukku- smndir ásamt öðrum mótmælendum þangað sem mótmælagangan átti að byrja. Á samkomustaðnum var svið þar sem fólk flutti ræður og (vafasöm) tón- listaratriði. Oll þessi samkoma var fremur ruglingsleg en gaf okkur ágætt tækifæri til að virða fyrir okkur alla þá flóru mót- mælenda sem saman voru komnir þarna. Tahð er að um 20.000 manns hafi tekið þátt í göngunni; hún hefði verið fjöl- mennari, nema hvað einhverjum mót- mælendum var ekki hleypt yfir þýsku Það verður að segjast að oft var erfitt að átta sig á hvað svartblokkinni gekk til. Þetta svartklædda unga fólk sem er orðið að einu af helsm einkennum fjöl- damótmæla í Evrópu var óneitanlega mjög framtakssamt og grýtti m.a. lögg- una af miklum móð, en tilgangurinn með allri þessari virkni var ekki alltaf augljós. Meðal minnisstæðra uppákoma var þegar nokkur svartklædd ungmenni rústuðu bensínstöð á leiðinni til aðal fundarstað- arins, að því er virtist til að ná sér í vatn, og drösluðu síðan slökkvitækjum út úr stöðinni h'ka og tóku að sprauta úr þeim yfir göngufólk eins og óvitar. En það var þó nokkuð forvitnilegt fyrir íslenska friðarsinna sem ekki höfðu séð sh'kar að- farir áður. Stuttu eftir að þau náðu eftirlitsmynda- véhnni niður fór mikinn, svartan reykjar- mökk að bera við himinn. Það spurðist út á meðal mótmælenda að svartblokkinn hefði kveikt í hóteh við hhð fundarstaðar mótmælenda á meðan gestir voru þar inni. Taka skal fram taka fram að hótelið er staðsett í íbúðarhverfi. Á meðan við biðum ásamt öðrum eftir leyfi frá lögre- glunni til að hefja gönguna keyptum við okkur í svanginn og fórum að leita ok- kur að lautu til þess að setjast með nestið okkar í mesta sakleysi. í því heyrðum við læti, hmm upp og sáum hóp af óeirðar- lögreglumönnum koma hlaupandi í átt að svæðinu og kasta táragassprengju sem lenti rétt hjá okkur og við björguðum okkur á hlaupum. Smtm eftir þá upp- Balkanskaga 1999, stríð og vistfræði, til- ''''////////////////////////////////////////////////////////////////////////////^^^^ DAGFARI

x

Dagfari

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagfari
https://timarit.is/publication/968

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.