Dagfari - 01.10.2009, Page 11

Dagfari - 01.10.2009, Page 11
11 um voðaverk sín. Aðgerðin hefði semsé getað heppnast ef öllum hefði verið alvara. Það eina sem vantaði upp á var úthald og hol- lusta þeirra sem ekki gám gengið svo langt að brjóta þau lög sem sett eru sérstaklega í þeim tilgangi að tryggja vald hinna fáu yfir fjöl- danum. Ef öllum sem kalla sig hern- aðarandstæðinga hefði verið al- vara hefði sá hópur sýnt stuðning. Hann hefði tekið að sér að dreifa athygli lögreglumanna og þreyta þá, valda óreiðu, ögra, halda uppi hávaða, taka myndir, skrá upplýs- ingar, vera til vitnis og aðstoða þá sem meiddust eða yrðu fyrir öðrum áföllum. En þegar harka færðist í leikinn voru aðeins 5-6 hræður sem héldu sig á staðnum tíl að sýna slíkan stuðning, hinir 50 fóru og við vorum einfaldlega ofurliði borin. Jamm! Þegar ykkur hernaðarand- stæðingum fór að leiðast, fóruð þið heim. Já þið, þið sem mest talið um það sem óhæfu að Is- land skuli eiga nokkurt samneyti við hernaðarbandalög, fóruð af vettvangi í miðri aðgerð, rétt eins og þetta væri gleðskapur en ekki barátta. Skilduð um 20 aðgerðasinna eftir óstudda og fóruð heim til að ná því að sjá sjálf ykkur í sjónvarpinu, berjan- di pott eða otandi mótmælaskilti í mörg hundruð metra fjarlægð frá húsinu. Þið hvötmð aðra tíl að reka NATO af íslandi og bjarga íslandi úr NATO, það vantaði ekki, en löggan þurftí ekki an- nað en að reka upp nokkur valds- mannsleg öskur og sýna kylfurnar til að koma ykkur úr sjónmáli. Og þessvegna verður ísland aldrei leyst undan þátttöku í stríðsrek- stri. Vegna þess að það eru of fáir sem nenna að standa uppi í hárinu á yfirvöldum lengur en háltíma í senn og of fáir sem hafa hugrek- ki tíl að fylgja kröfum sínum eftir með beinum aðgerðum. Vegna þess að hernaðarandstæðingar eru samskonar druslur og gungur og hæstvirtír ráðherrar vorir. Eg áfellist fólk ekki fyrir hugleysi en ég er drulluspæld út í þá sem mættu á staðinn fyrir úthalds- leysið. Misskiljið mig ekki, ég er ekki að segja að ykkur sé sama eða að afstaða ykkar snúist meira um félagslíf en pólitík. Auðvitað gremjast hernaðarandstæðingum umsvif NATO á Islandi. Sumurn gremjast þau alveg jafn mikið og hundinum gremst umferð ókun- nugra bíla um ímyndað yfirráðas- væði sitt. Einnig hann finnur sig knúinn tíl að gjamma dálítíð þegar þeir koma. DAGFARI

x

Dagfari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagfari
https://timarit.is/publication/968

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.