Dagfari - 01.10.2009, Side 13

Dagfari - 01.10.2009, Side 13
13 trúar Suðurnesjamanna taka nú opnum örmum. Islenskir fjölmiðlar hafa étið upp fréttir frá fyrirtækinu sjálfu um stórfelld áform þess og umsvif. Stórum spurningum er þó ósvarað, s.s. um hverjir standi í raun að baki fyrirtækinu og hvert eðli starf- seminnar sé. Þó má ljóst vera að í raun er hér um hreina hern- aðarstarfsemi að ræða, þótt rekin sé af einkafyrirtæki. Vitað er að E.C.A. Programs falaðist eftir aðstöðu í Kanada fyrir svipaða starfsemi fyrir tveimur árum. Kanadísk yfirvöld féllust ekki á að veita slíkt leyfi. Hvað réði þeirri ákvörðun? Samtök hernaðarandstæðinga hafa fylgst grannt með fréttum af herþotumálinu og sendi mið-nef- nd SHA frá sér harðorða álykt- un vegna þessa. Alyktunin var á þessa leið: Samtök hernaðarand- stæðinga lýsa miklum von- brigðum sí- num vegna frétta af hugmynd- um um stofnun hergagnageymslu og æf- ingaaðstöðu fyrir NATO-heri á Keflavíkurflugvelli. Þrjú ár eru nú liðin frá því jákvæða skrefi sem lokun herstöðvar Bandarík- ja-manna hér á landi var. íslend- ingar eiga sem þjóð að leggja sitt að mörkum til að stuðla að afvo- pnun og vinna að friðsamlegri heimi. Það gerum við ekki með því þjónusta hernaðarmaskínur grannríkjanna. Allt tal um að orrustuþotur og herþyrlur þær sem hér kunna að vera geymdar muni ekki bera vopn er aumt yfirklór. Það er enginn eðlismunur á því að þjónusta herþotur og þjálfa herflugmenn annars vegar, en varpa sprengjum í þarlægum löndum með þes- sum sömu vélum hins vegar. í fréttum af málinu hefur talsvert verið fjaflað um hversu mörg störf kynnu að skapast vegna starfseminnar, en minna hefur farið fyrir umræðu um hversu margir muni láta fl'fið vegna hennar. Samtök hernaðarandstæðinga vekja athygfl á því að í stefnuy- firlýsingu ríkisstjórnarinnar segir að hún ætfl sér að gera Island að vettvangi fyrir friðarumræðu og leggja áherslu á barátm fyrir friði og afvopnum í heiminum. Vandséð er að hergagnageymslur og þjálfunarbúðir hermanna sam- rýmast þessari stefnu. Hugmyndir af þessu tagi eru ekki samboðnar virðingu íslensku þjóðarinnar og ættu með réttu að ganga gegn siðferðisken- nd landsmanna allra. Ljóst er að enginn friður mun ríkja um þessa fýrirhuguðu starf- semi, verði hún að veruleika og Samtök hernaðarandstæðinga munu beita sér af krafti gegn henni. '^'//////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////^^^^ DAGFARI

x

Dagfari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagfari
https://timarit.is/publication/968

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.