Dagfari - 01.10.2009, Side 14

Dagfari - 01.10.2009, Side 14
DAGFARI HERNAÐARBANDALAG í TILVISTARKREPPU EFTIR SVERRI JAKOBSSON Fyrir tíu árum, á hálfrar aldar afmæli hernaðar- bandalagsins NATO, voru talsmenn þess býsna kokhraustir. Þeir töldu sig hafa unnið kalda stríðið, tryggt eilífa sigurgöngu markaðsafla og jafnvel bundið enda á framþróun sögunnar. Bækur eins og From Plato to Nato eftir David Gress voru gefnar út þar sem hern- aðarbandalaginu var veittur sess við hlið mesm andans manna mannkynssögunnar. Slíkt yfirlætið árið 1999. var Núna, tíu árum síðar, heyrist æ oftar rætt um það að hernaðar- bandalagið sé í andarslitrunum. Spurningin er jafnvel ekki hvort NATO muni gefa upp öndina heldur hversu hratt og hversu miklum skaða bandalagið nái að valda í dauðakippunum. Það sem hefur breyst er að papp- írstígrisdýrinu var hleypt út á veiðar; eftir endalok kalda stríð- sins var enginn tilgangur lengur með starfi NATO. í stað þess að leggja hernaðarbandalagið niður var hins vegar leitað nýrra verk- efni. Það þandist út í ausmrátt og allt að landamærum Rúss- lands. Og í mars 1999 blandaði bandalagið sér í borgarastyrjöld í Serbíu. Markmiðið var að sýna yfirburði þess gegn veikburða Serbíuher með loftárásum en þær bitnuðu í ríkum mæli á óbreyttum borgurum, tjón serbneska hersins var óverulegt og enginn NATO- hermaður tók minnsm áhættu. Að lokum var svo samið um málamiðlun sem var nálægt því sem hægt var að semja um fyrir átökin. NATO hernam Kosovo en náði ekki að koma í veg fyrir þjóðernishreinsanir af sama tagi og höfðu komið átökunum af stað til að byrja með. Hernáms- stjórnin í Kosovo hefúr svo verið gagnrýnd harðlega fyrir spillingu Þegar Bandaríkin réðust inn í Afganistan árið 2001 flykktu NATO-ríki sér að baki innrásinni enda þótt hún hefði ekki verið borin undir bandalagið. NATO tók síðan að sér að létta á Ban- daríkjaher þegar hann réðst inn í Irak 2003 og veitti þar með óbeinan smðning við hernám Iraks. Hernám Afganistan hefur æ síðan verið samstarfsverkefni Bandaríkjanna og NATO. Það hefur hins vegar ekki gert ástandið friðvænlegra í landinu. Þvert á móti hefur ástandið í Afganistan ekki verið verra síðan hernámið hófst og ýtt undir umræðu um að NATO sé úr sér gengið. V//////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////m^^ 14

x

Dagfari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagfari
https://timarit.is/publication/968

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.