Dagfari - 01.10.2009, Qupperneq 28

Dagfari - 01.10.2009, Qupperneq 28
DAGFARI LITTU VEL UT AF FIGHTERS+LOVERS 0 OG BERSTU F Ihittifyrra var ég, einu sinni sem oftar, staddur á Café Oskar, félagsmiðstöð kom- múnista í Árhus í Dan- mörku, og það vildi svo til að mig vantaði eld. Eg keypd mér því kveikjara, gylltan að lit, frekar lélegan og alldýran — 18 krónur danskar kostaði hann - og studdi um leið við hryðjuverkastarfsemi. Eða sá var úrskurður hæstaréttar Danmerkur nú í mars síðastlið- num. Þetta var nefnilega fjáröflu- narkveikjari, útgefinn af Fighters + Lovers. Árið 2002 voru sett lög í Dan- mörku um að hver sá sem „styddi hryðjuverkastarfsemi á beinan eða óbeinan hátt“ gæd átt allt að tíu ára fangelsi yfir höfði sér. Þá er spurningin: Hver skilgreinir hver er hryðjuverkamaður og hver á í réttmætri frelsisbaráttu? Átd að styðjast við einhverja lista sem komu frá Bandarík- junum, Evrópusambandinu eða kannski Nató? Foreningen Opror („Félagið Uppreisn“) ákváðu að láta reyna á réttinn tíl að styðja þjóðfrelsisbaráttu. Sjö félagar stofnuðu fatafyrirtækið Fighters+Lovers sem, samkvæmt eigin lýsingu, starfar „á mörkum tísku, menningar og stjórnmála“. Þau framleiddu s.s. stuttermaboli, og fleiri vörur, sem þau seldu á samstöðuverði, með fyrirheid um að láta andvirði €5 af hver- jum seldum bol renna til þjóð- frelsisbaráttu sem yfirvöld litu á sem hryðjuverkastarfsemi. Fyrir valinu urðu tvenn samtök, Vo- pnuð byltingarsamtök Kólumbíu (FARC) og Alþýðufýlkingin fyrir frelsun Palestínu (PFLP). Bolirnir voru með merkjum samtakanna, svo ekki var um að villast. FARC eru stærstu og elstu star- fandi skæruliðasamtök í Suður- Ameríku. Söfnunin átd að fjár- magna útvarpsstöð handa þeim í Kólumbíu. Rikisstjórn Kólumb- íu var fljót að koma eindreg- num mótmælum til ríkisstjórnar Danmerkur. „Það er óásættan- legt að menn séu að fjármagna hryðjuverkahópa,“ sagði utan- ríkisráðherrann Carolina Barco af því tilefni. Hún hefði kannski átt að líta sér nær, ríkisstjórn Kól- umbíu heldur nefnilega sjálf úti umfangsmikilli hryðjuverkastarf- semi gegn sínum eigin borg- urum. Dauðasveitir herja t.d. á verkalýðshreyfinguna og myrða leiðtoga hennar í tugatali á ári hverju. Dauðasveitir þessar eru einatt reknar og fjármagnaðar af sömu hagsmunaaðilunum og stjórna ríkinu bak við tjöldin — svæsnu bandalagi kókaínbaróna, landeigenda og stórauðvalds — og skipaðar mönnum sem ganga þess á milli í einkennisbúningum hers eða lögreglu. Ríkisstjórn Kólumbíu er sjálf hryðjuver- kastjórn og það á ekki að þurfa að hafa mörg orð um að and- spyrna gegn slíkri stjórn er ekki bara réttmæt og eðlileg, heldur er hún beinlínis nauðsynleg. Já, hún er skylda. Plakatagerð í Palestínu í Palestínu standa PFLP ekki í baráttu við „eigin“ ríkisstjórn, heldur hernámsveldi Israels. Veraldlegu og vinstrisinnuðu samtökin PFLP eru næststærstu aðildarsamtök Frelsissamtaka Palestínu (PLO), eftir Fatah- flokknum. Markmið þeirra er að losa Palestínu undan ísraelsku hernámi og stofna eitt sameigin- legt, veraldlegt og lýðræðislegt ríki sem fer ekki í manngrein- arálit. Öfugt við Fatah-samtökin eru PFLP ekki tilbúin til þess að slá af kröfum sínum. Samtökin halda uppi vopnaðri baráttu gegn hernáminu, og varla þarf að taka fram að hernámsveldið Israel kal- lar þau hryðjuverkasamtök. En fyrir utan andspyrnuna reka þau skóla, heilsugæslustöðvar og aðra samfélagslega starfsemi víða, bæði á hernumdu svæðunum og í flóttamannabúðum í nágran- nalöndunum. Söfnun F+L á að borga fýrir stúdíó til að hanna og prenta veggspjöld. Árið 2007 færðu F+L út kvíar- með fleiri bolum, undir nar I //////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////^^^^ 28

x

Dagfari

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagfari
https://timarit.is/publication/968

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.