Dagfari - 01.10.2009, Síða 33

Dagfari - 01.10.2009, Síða 33
33 kvenna á aldrinum 16-44 ára og er skaðlegra en krabbamein, um- ferðarslys og stríð. Að búa við ógnir heimilisofbeldis, nauðgana, fátæktar, hungurs og sjúkdóma, það er að vera fastur/föst á þrepi tvö í pýramídanum. En að búa í heimi þar sem að útgjöld á hnat- træna vísu til að stemma stigu við og meðhöndla alnæmi og HIV- veiruna, sjúkdóm sem heimtir um 3 milljónir mannslífa ár hvert, eru bara sambærileg við þriggja daga útgjöld til vopnaframleiðslu heimsins — það er að búa í heimi sem hefur dæmt okkur öll til að sitja föst á þrepi tvö. Hví eyðum við þá hundruðum milijóna í svokölluð öryggismál á ári hverju og sitjum uppi með þennan heim? Stjórnvöld hafa úthlutað NATO nokkur hundruð milljónir á ári hverju og kalia það öryggisbandalag og segja að þann- ig stuðlum við að öruggari heimi. En NATO berst ekki gegn fátækt eða loftslagsbreytingum eða nauðgunum. NATO leggur áhers- lu á að efla herlið aðildaríkjanna, eiga bestu herþoturnar og vera í stuttu máli, gífurlega vel búnir tækjum, tólum og mannafla til að fara í — og sigra í stríðum. Þess má geta að í dag eru óbreyt- tir borgarar á milli 80-85% fór- narlamba í stríðum og stór hluti þessa hóps samanstendur af konum, börnum, veikum og öl- druðum. A stríðshr jáðum svæðum verður oft aukning á heim- ilisofbeldi og mansali, auk þess sem konur og börn eru um 80% allra flóttamanna í heiminum í dag. Stríð og hernaður gera heiminn ekki að öruggari stað heldur óöruggari stað. Hernaðarbanda- lög stuðla ekki að friði heldur þrífast á stríði. Þau eru óörygg- isbandalög sem að líta framhjá þeim hættum sem steðjar að mannkyninu vegna misskiptingu og kúgunar. Þriðji heimurinn he- fur verið í svelti síðan áður en NATO var stofnað en banda- lagið hefur ekkert gert til að tryggja öryggi sveltandi barna. Og við erum föst á þessu skeri, á þrepi númer tvö, og hendum hundruðum milljóna í NATO ár hvert til að tryggja öryggi. En eina öryggið sem er þannig tryggt er starfsöryggi þeirra sem vinna við að framleiða skriðdreka, byss- ur og sprengjur. Alvöru öryggi er að búa ekki við ógn ofbeldis inná heimilinu, þegar þú gengur ein heim að kvöldlagi án þess að á þig sé ráðist, eða þegar mánaðarmótin nálgast og síðasti launatékki dugar í raun eins lengi og þörf krefur. En það er ekki sjálfgefið. Þess vegna verðum við að endurskilgreina öryggið ef við ætium einhvern tí- man að komast af þrepi tvö og áfram upp á toppinn. FRIÐARMERKIÁ MIKLATÚNI Heimsgangan í þágu friðar og tilveru án ofbeldis er alþjóðlegt verkefni sem ætlað er að vekja athygli á baráttunni fyrir friði í heiminum. Hér á íslandi hafa samtök húmanista haft forgöngu um verkefnið, en fengið sér til stuðnings fjölda félagasamtaka úr ólíkum áttum. Til að marka up- phaf þessa alþjóðlega átaks var ákveðið að mynda stór friðarmer- ki með þátttöku fjölda fólks með kyndla í sem flestum löndum. A Islandi var friðarmerkið myn- dað á Miklatúni að kvöldi föstu- dagsins 2. október. Aftakaveður var mestallan daginn, en skyn- dilega skall á logn rétt áður en samkoman átti að hefjast. All- Sf»*‘*"' y * '?n' * * ' •••»’ ' I * • 4 * . V, * * * ’ • •• v V XV • •* • nokkur fjöldi fólks mætti og tók þátt í þessari fallegu athöfn eins og meðfylgjandi mynd sýnir. """'/////////////////////////////////////////////////////////////////////////////^^^^ DAGFARI

x

Dagfari

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagfari
https://timarit.is/publication/968

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.