Dagfari - 01.10.2009, Qupperneq 38

Dagfari - 01.10.2009, Qupperneq 38
DAGFARI ERU KONUR LÍKLEGRI TILAÐ HALDA FRIÐINN? EFTIR DRÍFU SNÆDAL Baráttan fyrir jafnrétti kynjanna hefur tekið á sig ótal myndir í geg- num tíðina úti um víða veröld. Táknmyndir hafa verið búnar til í baráttunni og þannig höfum við á Islandi vanist að líta á hina sterku fjallkonu, hag- sýnu húsmóðurina, konuna á vin- numarkaðnum og konuna sem berst fyrir menningu og friði. — Skyldi mynd kvenfrelsis í dag þó ekki vera konan sem vinnur fulla vinnu, klífur metorðasdgann og verkstýrir heimilinu „í frístun- dum“? I löndum sem háð hafa vopnaða frelsisbaráttu hefur táknmynd kvenfrelsis afmr á mód verið „herkonan“. í tímaridnu Melkor- ka sem gefið var út hér á landi á fimmta og sjötta áratugnum ham- par Þóra Vigfúsdóttir kvenréttín- dahreyfingunni í Asíu: „Það er í þessari frelsisbaráttu, sem konur Asíu hafa kastað andlitsblæjunni, tákni kúgunar og niðurlægingar, brotið rimla kvennabúranna og streymt út á vígvöllinn“. Ein af hetjum byldngarinnar á Kúbu er konan Teté Puebla sem fór fyrir herdeild kvenna sem neitaði að sitja heima á meðan karlarnir byl- tu þjóðfélaginu. Sjálfur Fidel Cas- tro barðist fýrir rétd kvenna til að taka upp vopn með rökunum að konur væru betri hermenn en karlar vegna þess að þær byggju yfir meiri aga. Það er kannski mergur málsins. í sögunni sem rituð er af sigurveg- urum byltingarinnar á Kúbu er þátttaka kvenna í stríðum sett fram sem sigur kvenfrelsisbarát- tunnar frekar en að þær hafi verið kallaðar til verka til að styrkja vígstöðuna sem er þó nær sanni. Þegar nauðsynlegt er að styrkja herina er hugmyndum um hina sterku konu vígvallarins fleytt fram til að hvetja konur til dáða. Táknmyndir kvenfrelsis eru því ekki alltaf settar fram af konum sem krefjast frelsis heldur býr stundum (jafnvel oft) annað að baki. Það er því undir hælinn lagt hvernig kvenfrelsisbaráttan er háð og hvaða viðmið eru notuð sem merki um árangur. Hér á landi var eðlishyggjan til langs tíma all- sráðandi í kvenfrelsisbaráttunni: Konur voru álitnar vera hag- sýnni, meðvitaðri um umhverfið, lýðræðissinnaðri og síðast en ekki síst friðsamari. Hugmyndin um mæður sem myndu aldrei senda syni sína í stríð var ríkjandi og notuð sem rök fýrir því að konur ættu jafnvel meira erindi á val- dastóla en karlar. Ferill kvenna á valdastólum gefur hins vegar ekki tilefni til að ætla að þær séu sérstaklega friðsamari en karlar. Margrét Thatcher be- itti hervaldi miskunnarlaust gegn Argentínu í Falklandseyjastríðinu og viðbrögðum hennar við kjarabaráttu breskra kolanámu- manna getur aðeins verið lýst sem herskáum. Sem forsætisráðherra Israela gaf Golda Meir hernum fyrirskipun um að sýna vægðar- leysi í Yum Kippur-stríðinu og fékk nafnbótina „Járnfrúin“ lön- gu áður en Thatcher hlotnaðist sá heiður. Arfleifð Elísabetar 1. Bre- tadrottningar er aukið veldi sem sótt var með hervaldi og varla verður sagt að Katrín mikla hafi setið á friðarstóli. Svona mætti lengi telja en þess ber að geta að konur sem hafa náð slíkum völ- dum gera það í skjóli karllægra gilda og með því að samþyk- kja þann valdastrúktúr sem ríkir fyrir. Þannig gangast þær inn á hervaldið og verða jafnvel enn harðskeyttari en karlarnir til að sanna sig í hlutverki þjóðarleiðto- ga. Fyrir það öðlast þær sess í sö- gunni og hljóta langan valdaferil að launum. Ef við viljum halda í hugmyn- dina um móðurina sem sendir son sinn ekki í stríð þá verðum við að viðurkenna að ofangre- indar konur eru ekki „alvöru konur“. Það er frekar hæpið því þá lendum við í þeirri gryfju að skilgreina hvaða eða hvers kyns konur eru ekta og hverjar ekki. I baráttunni um jafnan aðgang kynjanna að völdum er erfitt að ætla sér að skilgreina hvaða konur eiga rétt á auknum völdum ////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////M^ 38

x

Dagfari

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagfari
https://timarit.is/publication/968

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.