Fréttatíminn - 17.05.2013, Síða 9
Aðeins ein
kona er því
örugg um
ráðherrastól
í röðum
Framsókn-
armanna
sem gerir
Sigmundi
Davíð jafn-
framt erfið-
ara um vik
að ganga
framhjá
Vigdísi.
Ármúla 30 | 108 Reyk jav í k | S ími 560 1600 | w w w.borgun . i s
J
ó
n
s
s
o
n
&
L
e
’m
a
c
k
s
•
jl
.i
s
•
s
Ía
Með Borgun tekur þú við öllum kortum – hvar og hvenær sem er
Fáðu frekari upplýsingar á www.borgun.is eða í síma 560 1600
Sundföt
Borgarferð
til Frankfurt
Myndavél14.990 kr.
63.900 kr.
89.900 kr.
Pizzuveisla 7.400 kr.
Loksins virka
debetkort á netinu
Það eru álíka mörg debet- og kreditkort í umferð á Íslandi.
Tekur þín vefverslun við öllum kortum?
og hins vegar innanríkisráðuneytinu. Ekki hefur verið
endanlega gengið frá því hvernig skiptingunni verður
háttað en líklegast þykir að atvinnuvega- og nýsköp-
unarráðuneytinu verði í grófum dráttum skipt upp
í orkumál, iðnað og nýsköpun annars vegar og hins
vegar landbúnað, sjávarútvegsmál og ferðamál.
Einar K. verður forseti
Endanleg skipting þessara ráðuneyta ræður tals-
verðu um hvernig skipting ráðherrastóla verður eftir
flokkum og hvaða þingmenn fá hvaða ráðherrastól.
Líklegasta skiptingin er hins vegar eftirfarandi: Fram-
sóknarflokkur skipar forsætisráðherra, utanríkisráð-
herra, umhverfisráðherra, félags- og tryggingamála-
ráðherra (helmingur velferðarráðuneytis) og annan
hluta atvinnuvega- og nýsköðunarráðuneytisins.
Sjálfstæðisflokkurinn skipar fjármálaráðherra, heil-
brigðisráðherra, menntamálaráðherra, innanríkisráð-
herra og hinn hluta atvinnuvega- og nýsköpunarráðu-
neytisins.
Sjálfstæðismenn hafa nokkurn veginn raðað sínu
fólki í ráðherrastóla þótt ákvörðunin verði ekki geir-
negld fyrr en lokaákvörðun um skiptingu ráðuneyta
hefur verið tekin. Ráðherrar úr röðum Sjálfstæðis-
flokksins verða Bjarni Benediktsson sem verður fjár-
málaráðherra, Kristján Þór Júlíusson sem að öllum
líkindum verður heilbrigðisráðherra, Hanna Birna
Kristjánsdóttir sem verður atvinnuvegaráðherra,
Illugi Gunnarsson sem verður menntamálaráðherra
og Ragnheiður Elín Árnadóttir sem þykir líkleg í stól
innanríkisráðherra. Einar K. Guðfinnsson verður að
öllum líkindum forseti Alþingis, en hann hefur lýst
yfir áhuga á ráðherrastól og kom vel út úr kosningum
í kjördæmi sínu, jafnvel betur en Kristján Þór, sem
þó er talinn líklegri að hneppa ráðherrastól. Kristján
Þór mun segja sig úr embætti annars varaformanns
Sjálfstæðisflokksins því samkvæmt ákvörðun síðasta
landsfundar flokksins getur sá sem gegnir því emb-
ætti ekki einnig verið ráðherra.
Spurning um Vigdísi
Framsóknarmenn eiga erfiðara með að úthluta ráð-
herraembættum sínum. Stærsta vandamál þeirra er
hversu umdeild Vigdís Hauksdóttir er, en hún vann
stórsigur í Reykjavík suður og getur því gert kröfu um
ráðherrastól. Hún hefur jafnframt meiri þingreynslu
en flestir úr þingflokki Framsóknarflokksins, fjögur
ár. Sá sem hefur einnig verið nefndur sem mögulegur
ráðherra er oddviti hins Reykjavíkurkjördæmisins,
Frosti Sigurjónsson, sem er nýr á þingi. Val Sigmund-
ar Davíðs stendur því á milli þeirra tveggja. Aðrir sem
öruggir eru um ráðherrastól eru Eygló Harðardóttir,
Sigurður Ingi Jóhannsson og Gunnar Bragi Sveins-
son. Aðeins ein kona er því örugg um ráðherrastól í
röðum Framsóknarmanna sem gerir Sigmundi Davíð
jafnframt erfiðara um vik að ganga framhjá Vigdísi.
Rammaáætlun endurskoðuð
Meðal annarra atriða í stjórnarsáttmálanum má nefna
endurskoðun nýsamþykktrar rammaáætlunar um
vernd og orkunýtingu landsvæða því flokkarnir eru
sammála um að pólitík hafi ráðið of miklu á kostnað
álits sérfræðinga. Við þetta gætu svæði í biðflokki
komist í virkjunarflokk. Framsóknarflokkurinn seg-
ist vilja auðlindaákvæði í stjórnarskrá og að lagt verði
á auðlindagjald af nýtingu auðlinda. Hvorugur flokk-
urinn virtist mjög áhugasamur um breytingar á stjórn-
arskrá á nýliðnu þingi og verða breytingar á stjórnar-
skrá varla framarlega á forgangslista. Auðlindagjald
er ekki meðal ályktana Sjálfstæðisflokksins, en fyrir
þeim er fordæmi og því gæti Sjálfstæðisflokkurinn
mögulega sæst á slíkt gjald. Í utanríkismálum verður
áherslan lögð á norðurslóðamál og stefnt verður að
gera fríverslunarsamninga við fleiri ríki, á borð við
þann sem gerður var við Kína nýverið.
Sigríður Dögg Auðunsdóttir
sigridur@frettatiminn.is
fréttaskýring 9 Helgin 17.-19. maí 2013