Fréttatíminn - 17.05.2013, Blaðsíða 12
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
1
3
-0
5
2
2
NÝSKÖPUN EYKUR
VERÐMÆTI
Arion banki styður við nýsköpun í atvinnulífinu
Fjölmörg fyrirtæki í viðskiptum við Arion banka hafa nýsköpun
að leiðarljósi í sinni viðskiptaþróun og eru að ná eftirtektar-
verðum árangri.
Við bjóðum þér á námskeið
Mörg framsæknustu fyrirtæki heims nota Business Model Canvas
við að þróa starfsemi sína og efla nýsköpun. Við bjóðum þér á
námskeið um Business Model Canvas í höfuðstöðvum Arion banka
30. maí nk. kl. 9–10.30.
Skráning og nánari upplýsingar á arionbanki.is.
LANDHELGISGÆSLAN
BETRI NÝTING TÆKJA
MEÐ VERKEFNUM
ERLENDIS
S amtök um bíllausan lífsstíl eru ekki á móti einkabílnum heldur viljum við leiðrétta og jafna sam-
gönguhvata. Allt skipulag samfélagsins
og skattaumhverfi eiga að hvetja til fjöl-
breytni en ekki fábreytni eins og nú er,“
segir Magnús Jensson, arkitekt og for-
maður Samtaka um bíllausan lífstíl. Að
mati Magnúsar er það hugarfar ríkjandi
á Íslandi að best sé að fara allra sinna
ferða á bíl. Í úthverfum borgarinnar eru
sárafáir fullorðnir á ferli og þá helst með
hund. „Það þykir í lagi að vera úti án bíls
ef maður er með hund eða að skokka,“
segir Magnús.
Bíllinn hluti af sjálfsmynd
„Þegar fólk fer allra sinna ferða akandi
verður bílinn óhjákvæmilega stöðutákn
og segir til dæmis til um það hvort fólk
sé stórhuga eða ekki. Fólk tjáir sig með
því hvernig það birtist. Það reynist
mörgum erfitt að borga af margra
milljón króna bílum til að halda ákveð-
inni stöðu,“ segir Magnús og bætir við
að fólk eigi ekki að þurfa bíl til þess að
vera svalt.
Kostnaður við bifreiðar er almennt
næst dýrasti kostnaðarliður hvers heim-
ilis á Íslandi á eftir húsnæðiskostnaði.
Matarinnkaup eru svo númer þrjú og
skemmtun í síðasta sæti. Ef vægi bílsins
væri minna væru lífsgæðin og ráð-
stöfunartekjur meiri, að mati Magn-
úsar. „Árlega lætur fjöldi fólks lífið í
umferðarslysum auk allra hinna sem
slasast alvarlega. Hægt yrði að draga
úr þessu með því að nota aðra öruggari
samgöngumáta en einkabílinn,“ segir
Magnús og bætir við að skýrsla Hag-
fræðistofnunar hafi sýnt að kostnaður
samfélagsins vegna umferðarslysa
árið 2009 hafi verið 23 milljarðar eða
um hundrað þúsund krónur á hvern Ís-
lending. Magnús nefnir einnig að mikill
kostnaður vegna bílamenningarinnar
lendi á samfélaginu öllu, líka þeim sem
ekki nota bíla og tekur dæmi um öll þau
bílastæði sem borgin og sveitarfélög
eiga og eru dýr og taka mikið pláss.
Tonn af járni
Magnús segir það engum hollt að upp-
lifa samfélagið sitt í gegnum bílrúðu,
hlustandi á útvarpið og bætir við að
það sé ekkert eðlilegt við það að fara
alltaf með tonn af járni með sér hvert
sem maður fer en það er þyngd smá-
bíls, stórir jeppar vega allt að tvö tonn.
„Helstu hættur í lífsmynstri nútíma-
mannsins eru hreyfingarleysi, innivera
og slæmt mataræði. Bíllinn á stóran þátt
í hreyfingarleysinu og inniverunni,“
segir Magnús.
Vítahringur
Magnús telur að sú bílamenning sem
ríkir á Íslandi sé margþættur vítahring-
ur sem þurfi að rjúfa. Ein birtingarmynd
vítahringsins er sú staðreynd að margir
foreldrar keyra börn sín allra þeirra
ferða. Svo eru kannski foreldrar sem
vilja að börn sín alist upp við það að fara
fótgangandi í tómstundir og skóla en
þeir foreldrar séu hikandi vegna þeirrar
miklu bílaumferðar sem er við skóla og
íþróttahús. Foreldrar keyra því börn sín
um allt vegna allra hinna foreldranna
sem keyra börn sín um allt.
Borgarskipulagið
Að mati Magnúsar er það stærsta verk-
efni borgaryfirvalda að leita leiða til
að þróa Reykjavík frá því að vera grá
borg malbiks og mengunar yfir í það að
verða græn 21. aldar borg. „Reykjavík
er ein dreifbýlasta borg í heimi og á Ís-
landi eru fleiri bílar á mann en nokkurs
staðar í heiminum og líka fleiri bílar en
ökuskírteini. Það er líka athyglisvert að
á höfuðborgarsvæðinu eru fleiri bílar
á mann en á landsbyggðinni. Maður
hefði haldið að þéttleikinn hjálpaði fólki
að fara fótgangandi en svo virðist ekki
vera,“ segir Magnús.
Hvatar til fjölbreytni
Magnús segir ósanngjarnt að vinnuveit-
endur umbuni starfsfólki sem kemur á
bíl, til dæmis með því að hafa til reiðu
ókeypis bílastæði. Sum fyrirtæki bjóða
einnig upp á bílastyrki. Sá sem kemur á
hjóli eða gangandi fær ekkert af þessu.
Magnús er einnig gagnrýninn á skatt-
kerfið og þá staðreynd að þegar fólk not-
Samgöngumál Hvetja þarf fólk til að nota fjölbreyttari Samgöngumáta
Bílamenningin er vítahringur
„Bíllinn er hluti af sjálfsmynd fólks. Sá hugsunarháttur er ríkjandi að flott fólk eigi
flottan bíl og því þarf að breyta,“ segir Magnús Jensson, arkitekt og formaður Samtaka
um bíllausan lífsstíl. Að hans mati er sú bílamenning sem ríkir á Íslandi margþættur
vítahringur sem þarf að rjúfa og hafa samtökin þróað hugmyndir um það hvernig hag-
kerfið geti hvatt fólk til að nota fjölbreyttari samgöngur en nú tíðkast.
Bensínkostnað-
ur þegar keyrt
er frá Reykja-
víkurtjörn að
Elliðaárósum
er um það bil
jafn hár verði
eins tómats.
12 viðtal Helgin 17.-19. maí 2013