Fréttatíminn - 17.05.2013, Qupperneq 26
É g gerði mér fyrst grein fyrir að ég væri öðru-vísi þegar ég var fimm ára. Þá var ég í afmæli hjá frænku minni sem var jafngömul mér og
ég vildi fá að vera í kjól eins og hún. Mamma mín og
mamma hennar ákváðu að ég fengi að prófa kjól af
frænku minni. Í smá stund var ég alveg himinlifandi.
En þegar ég kom í kjólnum fram byrjaði allt fullorðna
fólkið að hlæja að mér því þeim fannst svo fyndið að
sjá strák í kjól. Þá vissi ég að þetta var ekki í lagi,“
segir Svanhvít Ada Björnsdóttir.
Svanhvít er transkona, hún fæddist árið 1979 og var
gefið nafnið Svanur. Hún vissi fljótt að hún væri ekki
eins og fólk er flest. Svanhvít leið vítiskvalir á grunn-
skólaaldri, var lögð í hrottalegt einelti og sökkti sér
í tölvuleiki. Hlutverkaleikir voru í mestu uppáhaldi
því þannig gat hún flúið raunveruleikann og þóst vera
einhver önnur. Eftir sjálfsvígstilraun rétt fyrir þrítugt
ákvað Svanhvít að það væri nú eða aldrei sem hún
kæmi út úr skápnum sem hún sjálf. Hún hefur á þriðja
ár verið í hormónameðferðum og í dag, föstudaginn
17. maí, leggst hún undir hnífinn og fer í aðgerð á
kynfærum.
Við settumst niður í vikunni sem er að líða og
ákváðum að ég kæmi til hennar í vinnuna. Svanhvít
hefur síðustu sex ár starfað hjá tölvufyrirtækinu CCP
og við komum okkur þar fyrir í mötuneytinu á efstu
hæð, rétt þegar erill hádegisins var að líða hjá. Svan-
hvít starfar á þriðju hæðinni en þegar ég spyr hvað
hún geri vandast málið. „Ég er technical artist. Það
er ekki til neitt gott íslenskt orð yfir það. Í rauninni er
ég milliliður á milli listamanna og tæknimanna. Mér
finnst þetta mjög fínt,“ segir hún.
Eiginlega má segja að draumur fimm ára stúlku
í líkama stráks sé nú að rætast. Svanhvít er orðin
kona sem vinnur við eitt af áhugamálunum sínum.
Hún rifjar upp þegar hún sem lítil stúlka með leynda
drauma stalst í fataskáp bæði móður sinnar og systur.
„Mamma átti alveg dásamlega silkikjóla, svona frá
sjötta áratugnum. Mér fannst þeir svo fallegir og
svo gaman að vera í þeim,“ segir Svanhvít dreymin.
„Ég sagði systur minni frá því um daginn að ég
hefði stolist í dótið þeirra og það kom alveg á hana.
Hún sagði að sig hafi aldrei grunað það.“ Svanhvít
segist hafa verið mjög þrjósk og alltaf neitað að fara í
strákaleg föt. Hún vissi þó að ekki gekk að ganga um
í stelpufötum og ákvað að Adidas-íþróttagallar væru
ásættanlegur meðalvegur.
Leit á lífið sem hreinsunareld
Svanhvít hóf skólagöngu í Laugarnesskóla og þar
var hún minnt daglega á að hún væri öðruvísi. „Ég
var lögð í mikið einelti og kölluð Kapteinn Homo af
strákunum. Þegar eineltið var sem verst grét ég mig í
svefn á hverju kvöldi og óskaði þess að ég hefði aldrei
fæðst. Fyrstu tvö árin faldi ég mig í frímínútunum.“
Hún eignaðist loks einn góðan vin í Laugarnesskóla,
hávaxinn dreng sem er enn vinur hennar í dag.
„Hann var svo stór að fólk þorði ekki í okkur bæði,“
segir hún brosandi. Eftir að þau fóru að vera saman
minnkaði líkamlega ofbeldið en það andlega jókst.
Tólf ára fór Svanhvít því í skóla utan hverfis, Haga-
skóla. „Ég fór þangað til að flýja eineltið,“ segir Svan-
hvít en eineltið hélt áfram í nýjum skóla og á endanum
hafði hún hvorki orku né vilja til að reyna að verja sig
lengur: „Mér var bara alveg sama ef einhver hótaði
mér. Ég sýndi ekki lengur ótta heldur svaraði þeim:
„Gerðu það bara!“ Mér var orðið sama um lífið.“
Strax í gagnfræðaskóla var Svanhvít mjög upptekin
af spurningunni: „Af hverju gat ég ekki fæðst kona?“
og langaði hana bara að bíða eftir því að lífið yrði búið
til að hún gæti endurfæðst sem kona. „Í Biblíunni er
talað um hreinsunareld. Ég leit á lífið sem hreinsun-
areld þar sem ég þurfti að þjást þar til eitthvað betra
tæki við.“
Skotin í Kevin Costner
Upp úr þrettán ára aldrinum fór hún að uppgötva sig
sem kynveru. „Ég sá mig alltaf sem konu með karl-
mönnum,“ segir Svanhvít og verður leyndardóms-
full á svip. „Fyrsti gaurinn sem ég var skotin í lék í
gömlu Robin Hood-myndinni, Kevin Costner. Þarna
var ég öðruvísi en hinar stelpurnar sem voru skotnar
í Christian Slater sem lék í nýju Robin Hood-mynd-
inni.“ Stórt bros færist yfir andlit Svanhvítar.
„Kevin Costner er svo myndarlegur! Eftir það
var ég skotin í Alec Baldwin, þegar hann var
svona aðeins byrjaður að eldast og verða enn
karlmannlegri. Ég hugsaði um mig sem konu
með þeim þegar ég fór að uppgötva kynþörf-
ina. Ég gat aldrei hugsað mér mig sem gaur
með neinum, hvorki körlum né konum,“ segir
hún.
Það var á svipuðum tíma sem hún fór að
spila mikið spunaleiki og tölvuleiki, og segir
hún að unglingsárin hefðu orðið bærilegri eft-
ir að hún uppgötvaði þessar nýju flóttaleiðir frá
veruleikanum. „Þegar ég var 13 ára fórum við
vinirnir að spila spunaspil. Mér fannst algjör
draumur að geta þóst vera önnur manneskja.
Eftir allt eineltið var ég farin að hata mig svo
mikið að ég naut þess að vera einhver annar.
Ég valdi stundum að vera gaurapersóna til
að þetta væri ekki of augljóst en yfirleitt var
ég stelpupersóna. Þá sagðist ég auðvitað
vera að grínast og bjó jafnvel til skrýtnar
stelpupersónur.“ Einn af fyrstu leikjunum
sem hún heillaðist af var hinn klassíski
Dungeons and Dragons. „Svo fór ég að
spila Shadow Run sem gerist í fram-
tíðinni. Svo spilaði ég líka mikið World
of Darkness. Sá leikur var búinn til af
fyrirtækinu White Wolf sem sameinaðist
CCP árið 2006. Það er svolítið skondið að
vinna hjá fyrirtæki sem er á þennan hátt hluti
af æsku minni,“ segir Svanhvít. Í raun kunni
hún svo vel við sig í tölvuheimum að notkunin
varð á endanum að tölvufíkn, fíkn sem henni
tókst að vinna bug á þegar hún fór að finna
sjálfa sig í raunveruleikanum.
Ósmekkleg hlutgerving kvenna
Anna Kristjánsdóttir vélstýra fór í kynleið-
réttingaraðgerð fyrir um átján árum. Þegar
Svanhvít heyrði sögu Önnu vissi hún að
þær ættu margt sameiginlegt. En Anna
mætti gríðarlegri andstöðu í samfé-
laginu eftir aðgerðina, var úthrópuð
á götum úti og jafnvel lamin. „Hún
mætti svo miklu mótlæti.
Fólk var virkilega vont
við hana og ég var enn
hræddari. Eigin-
lega fór ég enn
dýrpra í skápinn
þegar ég sá
hvernig fólk
kom fram við
hana.“ Svan-
hildur varð
síðan
fyrir
hug-
ljóm-
un
þeg-
ar
Svanhvít Ada Björnsdóttir var lítil stúlka, föst í líkama drengs, þegar hún stalst til að máta
silkikjóla móður sinar. Hún vissi alltaf að hún var öðruvísi og það vissu líka krakkarnir sem
lögðu hana áralangt í einelti. Svanhvít flúði inn í heim tölvuleikja þar sem hún gat skapað
sér annað líf. Rétt fyrir þrítugt kom hún út úr skápnum sem transkona, hefur aldrei verið
ánægðari með lífið og í dag gengst hún síðan undir hina eiginlegu kynleiðréttingaraðgerð.
„Ég elska mig
miklu meira í dag“
Svanhvít eyddi þrjátíu árum í að
reyna að vera karlmaður. Nú ætlar
hún að eyða afgangnum af lífinu í
að vera kona. Ljósmynd/Hari
26 viðtal Helgin 17.-19. maí 2013