Fréttatíminn - 17.05.2013, Page 45
húðvörur 45Helgin 17.-19. maí 2013
Njótum sólarinnar
áhyggjulaus með Piz Buin
Piz Buin veitir hámarksvörn gegn UVA- og UVB-geislum
Piz Buin sólarvörur eru ofnæmisprófaðar
Piz Buin sólarvörur eru rakagefandi og innihalda E-vítamín
Ofnæmisprófuð sólarvörn fyrir ljósa húð
sem er viðkvæm fyrir sól, þróuð í samvinnu
við húðlækna. Piz Buin Allergy inniheldur
Calmanelle sem styrkir náttúrulega vörn húðar
og veitir vörn fyrir ofnæmisviðbrögðum. Engin
paraben-efni eru í Allergy línunni.
Piz Buin Allergy
Piz Buin Tan Intensifier eykur náttúrulega virkni
litarfruma húðarinnar til eðlilegrar sólbrúnku og
verndar um leið húðina fyrir UVA- og
UVB-geislum.
Árangurinn er djúpur, jafn og fallegur litur sem
fæst án þess að taka áhættu.
Piz Buin Tan Intensifier
Sólarvörn sem gefur góðan raka og hefur
fyrirbyggjandi áhrif á öldrun húðar. Piz Buin In
Sun inniheldur Helioplex sem er áhrifarík vörn
bæði gegn UVA- og UVB-geislum sólar. Verndar
og veitir raka í langan tíma.
Piz Buin In Sun
H úð barna er þynnri en húð fullorðinna og því þarf að verja börnin sérstaklega vel. Í ráð-leggingum Landlæknisembættisins vegna
sólargeisla kemur fram að húðin gleymir aldrei og
í hvert skipti sem fólk sólbrennur aukast líkur á að
fá húðkrabbamein síðar á ævinni. Hættulegast er að
brenna á æskuárunum.
Landlæknir ráðleggur fólki að nota alltaf sól-
varnaráburð. Jafnvel hér á Íslandi er hægt að sól-
brenna á skömmum tíma og mælt er með að nota
áburð með sólvarnarstuðli 15 eða hærra. Mikilvægt
er að bera sólarvörnina á um hálfri klukkustund áður
en farið er í sólina og endurtaka síðan á um tveggja
tíma fresti.
Sterkastir eru geislar sólarinnar milli klukkan 11
og 15. Því er ekki mælt með því að liggja í sólbaði
á þessum tíma þegar kemur að heilsu húðarinnar
okkar enda er mesta hættan á að brenna þegar sólin
er hæst á lofti.
Ung börn ættu aldrei að vera óvarin í sól, sérstak-
lega ekki fyrsta æviárið. Gott er að verja hvítvoðung-
ana með því að klæða þau í ljós sumarföt og setja á
þau sólhatt. Barnavagninn er best að geyma í skugga
eða nota sólhlíf. Sólgleraugu verja alla vel fyrir sól-
inni, börn og fullorðna.
Embætti landlæknis beinir því til fólks að forðast
ljósabekki. Geislunin frá þeim er skaðleg bæði húð
og augum. Sú brúnka sem fæst úr ljósabekkjum ver
húðina heldur ekki fyrir geislum sólar og hentar því
ekki sem undirbúningur fyrir sólarlandaferð.
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.isMikilvægt er að bera sólarvörnina á um hálfri klukkustund áður en farið er í sólina.
Húð Sólbruni eykur líkur á Húðkrabbameini
Verndum húðina í sólinni
Margir kætast þegar sólin hækkar á lofti og
flestum finnst okkur við vera eilítið fersklegri
með smá sólbrúnku á andlitinu. Mikilvægt er
þó að fara að öllu með gát og sérstaklega er
mikilvægt að verja húð barna gegn geislum
sólarinnar.
Börn eru með þynnri húð en fullorðnir. Því er enn mikilvægara að bera sólarvörn á börn og verja þau fyrir sterkri sól. Mynd/Getty/NordicPhotos