Fréttatíminn - 17.05.2013, Page 79
7ÍSLENSKT GRÆNMETIVOR 2013
Afurðir eru
svo sendar
samdægurs frá
garðyrkjustöðinni
og eru komnar
í verslanir
nokkrum
klukkutímum
steinselja
Við höfum lagt mikla alúð við steinseljuna og höfum náð
góðum árangri. Við höfum
stöðugt bætt við ræktunina
og neytendur hafa tekið
okkur mjög vel“ segir Ómar
Sævarsson garðyrkjubóndi
á Heiðmörk í Laugarási.
Ómar segir að steinseljan sé
ein algengasta kryddjurtin í
Evrópu. „Eftirspurnin hefur
aukist ár frá ári svo það er
greinilegt að við erum á sama
róli og Evrópubúar. Steinseljan
er líka bráðholl, í henni er
mikið af góðum vítamínum
og steinefnum“, segir Ómar.
„Ég þarf endilega að bæta því
við að hún er mjög góð við
andremmu“.
Steinselju má nota í
súpur, salöt og alls konar
grænmetisrétti. Hún fer vel
með öðrum kryddjurtum
til dæmis með hvítlauk og
kóríander.
Best er að geyma steinseljuna
í plastpoka í ísskáp við 0 til 2
gráður. Það má einnig frysta
hana í hæfilegum skömmtum
og setja hana frosna út í salöt og
í alls konar rétti.
Garðyrkjustöðin Heiðmörk
er í eigu hjónanna Ómars
Sævarssonar og Sigurlaugar
Angantýsdóttur. Ómar er
uppalinn á Heiðmörk. Hann
byrjaði sjálfur grænmetisrækt
árið 1985 en þau hjónin
keyptu garðyrkjustöðina af
foreldrum Ómars árið 1994.
Sigurlaug er kennari að mennt
og kennir í Reykholti auk
þess sem hún heldur utan um
bókhald og starfsmannahald í
garðyrkjustöð þeirra hjóna.
Árið 2003 stækkuðu
Ómar og Sigurlaug við sig
og keyptu Birkiflöt sem er
Paprikuplantan er upprunnin í Mið-Ameríku og Suðaustur-Asíu. Spánverjar fluttu hana
með sér frá Ameríku til Evrópu á
sautjándu öld. Orðið paprika er
dregið af latneska orðinu piper og
gríska orðinu piperi, sem þýðir pipar.
Eftir síðari heimsstyrjöldina barst
paprikan til norðanverðrar Evrópu.
Lengi vel var paprika mest ræktuð í
Ungverjalandi, Búlgaríu, Rúmeníu
og Miðjarðarhafslöndunum en nú
eru vinsældir hennar það miklar að
hún er ræktuð í flestum löndum
Evrópu, bæði utandyra og í
gróðurhúsum.
Paprika er samheiti yfir aldin
tegundarinnar capsicum annuum
sem eru stór og mild á bragðið.
Til eru margar gerðir af papriku
sem eru ólíkar að stærð, lögun og
lit en einnig er talsverður munur
á bragðinu. Plantan myndar fyrst
græn aldin sem síðan verða rauð, gul,
appelsínugul, hvít eða dökkfjólublá
þegar þau eru fullþroskuð. Rauð og
gul paprika er því í raun fullþroskuð
græn paprika sem hefur skipt um lit.
Við meiri þroska eykst sætuinnihald
aldina, þannig að lituð aldin eru að
jafnaði bragðbetri en þau grænu.
Sérstök sæt paprika er ræktuð hér
á landi og er mjög vinsæl. Hún er í
laginu eins og litla kryddpaprikan
(chilli), en miklu stærri.
næringargildi
Best er að fá vítamín og steinefni
úr fæðunni og þá sérstaklega úr
grænmeti og ávöxtum. Allt grænmeti
er hollt fyrir líkamann en dökkt
og litsterkt grænmeti er almennt
næringarríkara en það ljósara.
Paprika er mjög rík af C vítamíni.
Í rauðum aldinum er þrisvar sinnum
meira C vítamín en í appelsínu og
í grænum aldinum tvöfalt meira af
C vítamíni en í appelsínu. Í papriku
er einnig mikið af A vítamíni, B
vítamíni, steinefnum og trefjum.
Grænar og gular paprikur
eru mjög ríkar af beta-karótíni
sem umbreytist í A-vítamín í
líkamanum. Beta-karótín flokkast
sem andoxunarefni og ver frumur
líkamans gegn slæmum áhrifum
súrefnis og mengunar. Einnig er
talið að andoxunarefni eins og
beta-karótín og C-vítamín minnki
hættu á myndun krabbameins í
líkamanum auk þess að draga úr
oxun LDL kólesteróls í æðum
sem hefur bein áhrif á lægri tíðni
kransæðasjúkdóma. Í papriku
eru einnig svokölluð plöntuefni
(phytochemicals) sem flokkast ekki
með vítamínum en efla varnir
líkamans og auka heilbrigði hans. Í
papriku, eins og öllu grænmeti, eru
trefjar sem eru nauðsynlegar fyrir
heilbrigði meltingarkerfisins.
Paprika er hitaeiningasnauð, í
100g eru 36 hitaeiningar (kcal).
geymsla
Geymsluþol papriku er nokkuð
mismunandi. Græn óþroskuð aldin
geymast best. Réttur hiti er 8 – 12
°C. Papriku hættir nokkuð til að
tapa vatni í þurru lofti. Hún þolir illa
að vera nálægt vörum sem mynda
etýlen t.d.eplum, tómötum og
perum.
steinseljan frá Heið-
mörk sló í gegn
-svo er hún líka bráðholl
Tómatasalat með osti
1 grand-salathöfuð
800 g tómatar, stórir og vel þroskaðir
1 ostarúlla með lauk og blönduðum jurtum frá Ostahúsinu
nokkrar timjangreinar (má sleppa)
½ knippi basilíka
2 msk furuhnetur
2 msk nýrifinn parmesanostur
safi úr ½ sítrónu
nýmalaður pipar
salt
100 ml ólífuolía
Salatið tekið sundur, skolað, þerrað og blöðunum raðað á fat eða stóran disk.
Tómatarnir skornir í sneiðar og ostarúllan einnig. Raðað ofan á salatblöðin og
svolitlu timjani e.t.v. dreift yfir. Basilíkan, furuhneturnar og parmesanosturinn sett
í matvinnsluvél eða blandara og maukað. Sítrónusafa, pipar og salti hrært saman
við og síðan er ólífuolíunni þeytt saman við smátt og smátt. Hluta af sósunni er svo
dreypt yfir salatið og afgangurinn borinn fram með í lítilli skál. - NR
Frísklegt og hollt rækjusalat sem getur jafnvel verið aðalréttur með grænu salati og
góðu brauði.
Gúrkan skorin í mjóa stauta, 3-4 cm langa, eða í teninga. Rauðlaukurinn saxaður og
ólífurnar einnig. Rækjurnar settar í skál og gúrku, rauðlauk og ólífum blandað saman
við. Síðan er kotasælu og jógúrt hrært saman við, ásamt paprikuduftu, pipar, salti og
steinselju. Borið fram með brauði (t.d. rúgbrauði) og smjöri, eða með kexi. - NR
Rækjusalat með gúrkum og lauk
1 íslensk gúrka
1 rauðlaukur
nokkrar svartar eða grænar ólífur
250 g rækjur
1 dós (200 g) kotasæla
1 dós (180 g) hrein jógúrt
1/2 tsk paprikuduft
nýmalaður pipar
salt
söxuð steinselja
stutt frá Heiðmörk og reka allt saman undir merkjum
garðyrkjustöðvarinnar Heiðmerkur. Hjónin rækta
steinselju og tómata, kirsuberjatómata og hefðbundna
tómata. Þá rækta þau einnig gúrkur og blaðsalat sem selt
er í pottum.
Gróðurhúsin í Heiðmörk og Birkiflöt þekja um
5000 fermetra. Þau eru hituð upp með hveravatni en
hverasvæði er í nágrenni garðyrkjustöðvarinnar. Býflugur
sjá um að frjóvga tómatana og notast er við lífrænar
varnir í ræktuninni. Einnig er ferskt neysluvatn notað til
að vökva plönturnar.
Um 120 tonn af tómötum og 100.000 búnt af steinselju
eru send á markað á ári hverju, ásamt miklu magni
af gúrkum. Tómatarnir eru tíndir þrisvar í viku og
handflokkaðir í neytendapakkningar og gúrkur eru
skornar daglega og þeim pakkað. Afurðir eru svo sendar
samdægurs frá garðyrkjustöðinni og eru komnar í
verslanir nokkrum klukkutímum síðar.
Ómar byrjaði grænmetisrækt árið 1985 en þau hjónin
keyptu garðyrkjustöðina af foreldrum hans árið 1994.
Það fyllir okkur barnslegri gleði að kynna, Káta
kroppa, nýjan íslenskan barnamat framleiddan
samkvæmt ströngustu gæðakröfum úr íslensku
grænmeti, sem er fullt af orku hins íslenska sumars.
Þú veist hvaðan það kemur,við sækjum það ferskt af
akrinum, vinnum og frystum. Þessi aðferð hefur notið
mikilla vinsælda því með frystingu er hægt að tryggja
meiri ferskleika og betri varðveislu næringarefna en í
niðursoðnum barnamat.
Kátir kroppar
paprika
Paprika er rík af beta karótíni
sem ver frumur líkamans