Fréttablaðið - 29.12.2011, Blaðsíða 23

Fréttablaðið - 29.12.2011, Blaðsíða 23
skoðun FIMMTUDACUR 29. desember 2011 23 Nýr Landspítali: Slys aldarinnar? Nýr landspítali Cuðiön Balúursson læknir Seinni grein Látið er að því liggja að bygg- ing nýs Landspítala verði fjármögnuð fyrir sparifé lands- manna í lífeyrissjóðum sem verði fengið að láni og hafa margir af stærstu lífeyrissjóðunum undir- ritað viljayfirlýsingu þar að lút- andi. Þá hefur verið talað um að „hagræðing muni borga bygg- ingarkostnaðinn"! Þannig að við getum komið út í stórgróða, feng- ið spítalann gefins! Maður fyll- ist bara lotningu yfir svo mikilli reiknilist. Rökin fyrir nálægð spítalans við Háskóla íslands eru óskilj- anleg. Einkum með hliðsjón af fjarskiptatækni sem mun þróast æ hraðar á næstu árum og gera mönnum kleift að nota fjarfunda- búnað og fjarskipti sem okkur órar varla fyrir. Háskólakennarar á Landspítalanum koma sjaldan í Háskóla íslands. Þeir kenna á Landspítalanum sjálfum. Sjálfur var ég lektor við læknadeild HÍ í nokkur ár en ég man varla til þess að hafa átt erindi í Háskólann. Kennslan fór fram annars staðar. Af ummælum stjórnenda bygg- ingaverkefnisins mætti ætla að háskólakennarar á Landspítalan- um verði stöðugt hjólandi á milli Landspítalans og Háskólans. Þetta fræðaþorp með Land- spítalann og Háskólann og aðrar fræðastofnanir er að mínu viti ekkert annað en sýndarveru- leiki, stórt Lego-þorp sem stórir strákar í draumóraveröld eru að byggja. Rökin fyrir nálægð spítal- ans við Háskólann eru haldlaus. Byggðaþróun höfuðborgar- svæðisins á næstu áratugum verður í austur og norður af aug- ljósum landfræðilegum ástæðum. Hugsanlega gæti miðja svæðisins verið í kringum Rauðavatn, Reyn- isvatn eða enn austar og norðar miðað við Umferðarspá höfuð- borgarsvæðisins sem var unnin fyrir Vegagerðina árið 2004. Hringbrautarstaðsetningin er á þessari framtíðarmynd í jaðri byggðarinnar, fjærst nær allri annarri byggð og fjærst stofnæð- um umferðar. Þar sem samgöngu- æðar eru hvað þrengstar eins og Miklabraut/Hringbraut nema til komi fjöldi mislægra gatnamóta og/eða stokkar undir umferðar- æðar eins og Miklubrautina. Fjölgun íbúða fyrir stúdenta á háskólasvæðinu, Harpan, Háskólinn í Reykjavík og fjölgun gistirýma í miðborginni eykur umferðarþunga um Miklubraut/ Hringbraut og Bústaðaveg og gerir aðgengið að Hringbrautar- svæðinu enn verra en ella. Frá því svæði þar sem stofn- brautakerfi höfuðborgarsvæðis- ins mun mætast og miðja byggð- arinnar verða samkvæmt spám getur tími sjúkraflutninga að Vatnsmýrinni skipt verulegu máli. Hver mínúta í sjúkraflutn- ingi getur ráðið úrslitum um horf- ur sjúklinga sem fluttir eru. Landspítalinn er og verður spítali allra landsmanna. Stað- arval ætti að miðast við aðgengi og umferð fyrir allt landið en ekki einungis höfuðborgarsvæð- ið. Varðandi valkosti hafa verið nefndir nokkrir staðir á höfuð- borgarsvæðinu: Elliðaárósar, Ártúnsholt, Vífilsstaðir, Keldur. Allir þessir staðir eru að mínu mati miklu betri valkostir en Hringbrautarstaðsetningin með hliðsjón af umferð og öryggi sjúk- linga. Við ákvörðun staðsetning- ar ber ekki að horfa til ástands- ins í dag, heldur byggðaþróunar næstu áratugina meðan spítalinn á að þjóna landsmönnum öllum. Staðhæft er af forvígismönn- um spítalans að þetta staðarval sé allt of dýrt. Það er ugglaust kannski 5 ár. Ég tel að við ættum að bíða að minnsta kosti þann tíma með byggingu nýs spítala. Á meðan getum við nýtt okkur það húsnæði sem við höfum. Það hús- næði er raunar komið á viðhalds- stig, sem er dýrt, en því húsnæði þyrfti jú hvort eð er að halda við. Nýr spítali ætti svo þegar efnahagslegar aðstæður leyfa að rísa austan Elliðaárósa þar sem aðgengi að honum er best, umferðaröryggi er tryggt og öryggi og velferð sjúklinga er höfð að leiðarljósi. Á Landspítalanum í Foss- Petta fræðaþorp með Landspítalann og Háskólann og aðrar fræðastofnanir er að mínu viti ekkert annað en sýndar- veruleiki, stórt Legoþorp sem stórir strákar í draum- óraveröld eru að byggja.. rétt en það er örugglega dýrara að ráðast í framkvæmdir ef stoð- ir þeirra eru ekki nógu styrkar frá upphafi og tjaldað til einnar nætur. Hafa menn ekki dregið þann lærdóm af hruni íslenska fjár- málakerfisins að maður eyðir ekki meiru en maður aflar, bygg- ir ekki alltaf fyrir lánsfé? Væri ekki rétt að staldra við, líta til hægri og vinstri áður en gengið er yfir götuna svo forðast megi slys? Gangi viðreisn efnahags- lífsins á íslandi eftir mætti ætla að við værum komin á þokka- lega siglingu efnahagslega eftir vogi (Borgarspítalanum) hefur öll aðstaða bráðaþjónustu verið stórbætt en þarf eflaust að bæta frekar. Ég tel að unnt sé að sinna allri bráðaþjónustu í Fossvogin- um. Spítalinn er tiltölulega vel staðsettur, hann er byggður aðal- lega á hæðina, sem er kostur að mati margra arkitekta. Flutning- ur sjúklinga tekur miklu skemmri tíma en um langt og flókið und- irgangakerfi eins og á teikning- um spitalans við Hringbraut. Við spítalann er þyrlupallur. Með góðri stjórnun og vel skipulagðri verkaskiptingu ætti að vera hægt að reka hér sjúkrahúsþjónustu eins og hún gerðist best fyrir nokkrum árum. Til viðbótar má geta þess að fyrirtaks aðstaða er fyrir hendi á jaðarsjúkrahúsunum fjórum: Sólvangi í Hafnarfirði, Reykja- nesbæ, Selfossi og á Akranesi. Öll þessi sjúkrahús hafa legu- rými og eru tækjum búin til þess að stunda svokallaðar val- aðgerðir - í stuttu máli aðgerðir aðrar en bráðaaðgerðir svo sem minni bæklunaraðgerðir, kven- sjúkdómaaðgerðir, háls-, nef- og eyrnaaðgerðir, lýtaaðgerðir og speglanir. Spítali sem er sveltur fjárhags- lega, þar sem allt viðhald og öll verkefni sitja á hakanum, á ekki að ráðast í nýtt steinsteypuverk- efni. Starfsemi spítalans er ekki undir því komin að um hana séu veglegir salir heldur byggist hún á starfsfólkinu sem þar vinn- ur, mannauðnum. Illu heilli fer njannauðurinn þverrandi, læknar og hjúkrunarfræðingar flytja úr landi og fáir koma heim úr fram- haldsnámi. Hverjir munu starfa á hinu,„nýja“ sjúkrahúsi? Væri ekki nær að hlúa að starfsfólkinu sem heldur spítalanum gangandi, sem hefur fengið að axla þyngri og þyngri byrðar og skert kjör hin síðari ár? Áformuð bygging Landspítala við Hringbraut er stórslys 21. aldarinnar. Svo mikið stórslys að engin bráðaþjónusta mundi geta ráðið við afleiðingar þess. Við verðum með öllum ráðum að fyrirbyggja að þetta slys eigi sér stað. Framtíð íslenskrar heil- brigðisþjónustu er í húfi, ekki bara á næstu árum heldur á allri þessari öld. ■ OXFOND „MUtNllHÁFOA/i ttCXUNGFQMn HAGKAUP Bónus BONG BONG 1 ■ j . i :rilí -v ii:
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.