Fréttablaðið - 29.12.2011, Blaðsíða 16
FRETTABLAÐIÐ
29. desember 2011 FIIWIW'
NÁTTÚRUHAMFARIR IJAPAN Hinn 11. mars varð jarðskjálfti úti af norðausturströnd Japans sem mældist 9 stig, sá stærsti sem
orðið hefur þar á seinni öldum. (framhaldinu lagði risaflóðbylgja stóran hluta strandbyggðarinnar í rúst. Þar á meðal urðu miklar
skemmdir á kjarnorkuveri I Fukushima. Meira en 18.000 manns létust og hundruð þúsunda misstu heimili sín. norordicphotos/afp
i Kreppa, hamfarir,
| byltingar og mótmæli
Erlendar fréttir ársins 2011 hafa markast af náttúruhamförum, efnahagserfið-
leikum og þjóðfélagsólgu, bæði í ríkjum arabaheimsins og kreppulöndum
Vesturheims, eins og sjá má á myndum frá nokkrum helstu viðburðum ársins
NÝTT RÍKIIAFRÍKU Ibúar Suður-Súdans fögnuðu ákaft 9. júlí þegar stofnun sjálf-
stæðs ríkis var orðin að veruleika. Aðildarríki Sameinuðu þjóðanna eru þá orðin 193
talsins. NORDICPHOTOS/AFP
BYLTINC I LlBlU Mynd af Múammar Gaddafí stungið í ruslagám ÍTripoli, höfuð-
borg Líbíu, þar sem íbúar gerðu byltingu með aðstoð NATO. Nærri fjörutíu ára veldi
Gaddafís féll i ágúst en hann náðist og var drepinn 20. nóvember. nordicphotos/afp
flóð f TAÍLANDI Hátt á sjöunda hundrað manns hafa látið lífið í einum verstu flóðumTaílands, sem hófust síðla sumars, náðu
hámarki í október og hafa enn ekki rénað til fulls. nordicphotos/
BIN LADEN drepinn Hryðjuverkaleiðtoginn Osama bin Laden fannst í vor, nærri átta
árum eftir 11. september 2001. Bandarískir sérsveitarmenn höfðu uppi á honum í
bænum Abbottabad í Pakistan og drápu. Líkinu var hent í haíið. nordicphotos/afp
SÆKIR UM AÐILD AÐ SAMEINUÐU ÞJÓÐUNUM
Mahmoud Abbas, forseti Palestínustjórnar, lagði
í haust fram umsókn um aðild Palestínu að Sam-
einuðu þjóðunum. Palestína fékk aðild að UNESCO í
nóvember og Island varð í desember fyrst vestrænna
ríkja til að viðurkenna sjálfstæði landsins.
NORDICPHOTOS/AFP
HRYÐJUVERKI NOREGI Anders Behring Breivik myrti 69 manns á ungliða-
samkomu norska Verkamannaflokksins I Úteyju 22. júlí og átta manns
að auki í sprengjuárás í Ósló sama dag. Nefnd geðlækna komst slðar að
þeirri niðurstöðu að hann sé ekki sakhæfur vegna geðsjúkdóms.
NORDICPHOTOS/AFP
FRAMHALD Á SÍÐU 18
Á SJÚKRARÚMII DÓMSAL Hosni Mubarak var steypt af stóli I Egyptalandi 11. febrúar,
eftir þriggja áratuga einræði. Réttarhöld yfir honum hófust 3. ágúst. Langvinnt
kosningaferli hófst svo í byrjun desember. nordicphotos/afp
ERLENDAR FRETTAIVIYNDIR ARSINS 2011