Fréttablaðið - 29.12.2011, Blaðsíða 49
FIMMTUDAGUR 29. desember 2011
sboðun
25
Eru ráðamenn þjóðarinnar veruleikafirrtir ?
Fjármál
Vílbelm
Jónsson
fjárfestir og fv.
atvinnurekandi
Það er uppgangur í útflutnings-
greinum okkar svo sem álút-
flutningi sem hefur aldrei verið
meiri, ásamt hagstæðu verði, einn-
ig í sjávarútveginum sem er rang-
Iega skipt. Atvinnustiginu hefur
verið haldið uppi með lántökum
síðustu 20 ár ef ekki lengur, svo
sem hjá sveitarfélögum, fyrirtækj-
um og heimilum sem eru skuldsett
upp í rjáfur. Okkur stendur ekki
lengur til boða að halda byggingar-
iðnaðinum í gangi með skulda-
söfnun, sem er búin að vera mikið
lengur en 2007 bólan og við getum
síðan ekki borgað.
Því miður er allt sem bendir til
að fyrirhyggjuleysið viðgangist
áfram, með tilheyrandi eyðslu og
sinnuleysi, sem er einungis til þess
fallið að auka til muna á erfiðleika
almennings og heimila. Ef fram
fer sem horfir munu þúsundir
heimila flosna upp á næstu árum
vegna fjárhagserfiðleika með til-
heyrandi erfiðleikum fyrir þjóð-
ina.
Verðtrygging var tekin upp
1979, fljótlega eftir það fór allt
á hvolf með kollsteypu og verð-
bólgu upp á tugi prósenta allan
níunda áratuginn. Ef við berum
ekki gæfu til að koma verðtrygg-
ingunni í betra horf eigum við ekki
möguleika á að koma hagkerfinu
í lag, ekki væri óeðlilegt að bæði
skuldari og lánveitandi bæru 50%
áhættu af verðtryggingu, sem
myndi stuðla að því að hafa hemil
á verðbólgunni.
Það er kominn tími til að þjóðin
axli ábyrgð og átti sig á að ráða-
menn virðast vera takmarkaðir
ef ekki siðblindir, sem hefur sýnt
sig í gegnum árin með byggingum
og mannvirkjum sem við höfð-
um aldrei efni á. Svo sem hring-
leikahúsið í Öskjuhlíðinni, Héð-
insfjarðargöng, Landeyjahöfn,
Tónlistarhúsið Hörpu, Orkuveitu-
húsið og varðskipið Þór sem við
getum ekki einu sinni rekið. Nýtt
Háskólasjúkrahús er á döfinni með
sína traustu kostnaðaráætlun að
ógleymdum Vaðlaheiðargöngum
í sárabætur fyrir álver á Bakka.
Það stendur til að byrja að
byggja nýtt fangelsi á Hólms-
heiði, þó að búið sé að benda ráða-
mönnum á mun ódýrari leið, eins
og að flytja nýlegar gámabúðir
frá Reyðarfirði sem Alcoa á, að
Litla-Hrauni. En þessar vinnu-
búðir eru víst ekki nógu fínar eða
boðlegar föngum þar sem flottræ-
filshátturinn er alger. Að minnsta
kosti sækjast háttvirtur fangelsis-
stjóri og aðrir ráðamenn eftir því
að stórt og flott fangelsi verði
byggt, með stórum turni og fang-
elsisgarði í anda Ameríku með
tilheyrandi lúðraþyt ef einhver
fangi skyldi verða leiður og vilja
útskrifa sig sjálfur. Með auknu
fangelsisplássi væri hægt að kalla
inn nýja sakamenn til refsingar
sem myndi gera kleift að ná sekt-
argreiðslum í ríkiskassann upp á
fleiri hundruð milljónir ef ekki
milljarða, þar sem sektirnar yrðu
greiddar til að sleppa við afplánun.
Það er með ólíkindum að Lands-
virkjun skuli þurfa 11% arðsemi
"^Þúkemstptoa!
FUDGE
uviace ...cnþúgefejrlíkapantodtíma
FUDGCG^
WlftOE
Gr
FUDGE
•*“” Rakarastofan
Klapparstíg
fuðge S: 5513010
þegar arðsemi hefur aðeins verið
2% og lífeyrissjóðir hafa viljað
3,5% og hefur þótt mikið. Þessi
arðsemiskrafa virkar helst sem
lélegur pólitískur kattarþvottur til
að verja að ekki náðist samkomu-
lag um raforkuverð fyrir álverið
að Bakka við Húsavík, að minnsta
kosti væri ekki óeðlilegt að þessi
11% arðsemiskrafa yrði líka leið-
andi fyrir raforkusölu til Norður-
áls í Helguvík og aðra stóriðju-
kaupendur.
Reyndar er ekki ósennilegt
að raforkuverðið sé of lágt til
álbræðslu Alcoa á Reyðarfirði
miðað við afkomu Kárahnjúka-
virkjunar, þar sem raforkuverð
er tengt álverði sem hefur verið
mjög hátt síðustu ár. Gefur það til
kynna vafasamt orkuverð þó for-
stjóri Landsvirkjunar telji ekkert
athugavert við fyrri raforkusamn-
ing!
Þjóðartekjur koma aldrei til
með að standa undir þessari óráð-
síu sem virðist viðgangast hvert
sem litið er, t.d. með því að vitna
í Ríkisendurskoðun sem gerir
alvarlega athugasemd við inn-
kaup Ríkislögreglustjóra vegna
löggæslustofnana og Ögmundur
Jónasson innanríkisráðherra segir
í versta falli óheppilega hafa verið
staðið að!
Eðlilegast væri að núverandi
F>ví miður virðist
allt hagkerfið í
landinu vera gegnumsýkt
og einkennast af spillingu
og óráðsíu hvert sem litið
er...
flokksforingjar færu frá eins og
Ingibjörg Sólrún og Geir Haarde
gerðu eftir að þau voru búin að
ferðast um allan heim að reyna
að fullvissa umheiminn um að
allt væri í himnalagi á íslandi í
aðdraganda á hruninu, við ættum
nóg af peningum og þetta væri
bara allt einn misskilningur.
Það er búið að viðgangast hér i
áraraðir óábyrg og galin fjármála-
stjórnun, sem Sjálfstæðisflokkur-
inn ber höfuðábyrgð á, til dæmis
með afskriftum, kúlulánum,
kvótabraski, kennitöluflakki og
hruni fjármálakerfisins. Flokkur-
inn er gjörsamlega í afneitun með
að bera ábyrgð þó þjóðin sé nánast
komin að fótum fram. Því miður
virðist allt hagkerfið í landinu
vera gegnumsýkt og einkennast af
spillingu og óráðsíu hvert sem litið
er þannig að manni dettur helst til
hugar að líkja því við Simbabve.
Fimmtudagur
nema Skeifan
29. des.
Dalvegur og Skútuvogur
30. des.
Dalvegur og Skútuvogur
Föstudagur
nema Skeifan
Laugardagur 31. des.
Sunnudagur l.jan.
Mánudagur 2. jan. L
Opið eftir talningu í eftirtöldum Vínbúðum
Skeifan
Austurstræti, Borgartún,
Mosfellsbær, Stekkjarbakki, Akureyri,
Selfoss og Reykjanesbær
Lokað
Nánari upplýsingar um opnunartíma er að finna á vinbudin.is
VINBUÐIN
Vínbúðirnar á höfuðborgarsvæðinu,
Akureyri, Reykjanesbæ og Selfossi