Fréttablaðið - 29.12.2011, Blaðsíða 28
4 MARKAÐURINN
29. DESEMBER 2011 FIMMTUDAGUR
GRfMSSTAÐIR Á FiÖLLUM Álitsgjafar Markaðarins segja flestir að meðhöndlun stjórnvalda á sölu jarðarinnar til Huang Nubo séu verstu viðskipti ársins sem er að llða. Mynd/Sigga Hallgríms
Meðferð Grímsstaðamáls
talin mikill afleikur stjórnvalda
Álitsgjafar Markaðarins nefna flestir meðferð stjórnvalda á fyrirhuguðum kaupum Huang Nubo á Grímsstöðum á Fjöllum þegar spurt er um
umdeildustu eða verstu viðskipti ársins. Talið er að málið geti reynst afdrifaríkt fyrir erlenda fjárfestingu.
VERSTU/UMDEILDUSTU
VIÐSKIPTIÁRSINS
Þorgils Jónsson
thorgils@frettabladid.is
Þegar spurt er um verstu eða
umdeildustu kaup ársins nefndu
flestir álitsgjafar Markaðarins
meðhöndlun máls Huang Nubo,
sem vildi festa kaup á landar-
eigninni Grímsstöðum á Fjöllum.
Það var mikið pólitískt bitbein,
enda töldu margir að fjárfesting
af þeirri stærðargráðu sem um
ræddi hefði getað hjálpað mikið
við endurreisn efnahagslífsins.
f öðru sæti var salan á SpKef
til Landsbankans, þar sem ríkis-
sjóður mun sennilega þurfa að
greiða 11 til 30 milljarða í milli-
gjöf vegna mismunar á skuldum
SpKef og innistæðum.
í þriðja sæti var sá gerningur
þegar Arion banki gaf fimm
stjórnendum Haga hluti í fyr-
irtækinu, sem eru nú að verð-
mæti 230 milljónir króna, fyrir
að skuldbinda sig til að vinna hjá
fyrirtækinu fram til júlíloka á
næsta ári.
Fá mál ollu jafn miklu fjarg-
viðri í ár og fyrirhuguð kaup kín-
verska fyrirtækisins Zhongkun
Group á Grímsstöðum á Fjöll-
um. Stjórnarformaðurinn Huang
Nubo hafði í ágúst samið við eig-
endur 72% af Grímsstöðum um
kaup á landi undir 200 herbergja
hótel og aðra starfsemi tengda
ferðaþjónustu og afþreyingu.
Þar sem lög kveða á um að aðil-
ar utan Evrópska efnahagssvæð-
isins megi ekki kaupa fasteign-
ir hér á landi voru kaupin alltaf
háð undanþágu frá Ögmundi Jón-
assyni innanríkisráðherra. Um-
sókninni var hafnað í lok nóvem-
ber með þeim rökum að ekki
væri hægt að víkja frá lögum
þegar um jafnstórt svæði væri að
ræða. Engin fordæmi væru fyrir
því að „jafnstórt landsvæði á ís-
landi hafi verið fært undir erlend
yfirráð" eins og segir í svari inn-
anríkisráðuneytisins.
Álitsgjafar Markaðarins telja
að þessi málsmeðferð hafi skaðað
hagsmuni íslands, og meðal ann-
ars allt fjárfestingarumhverfi,
með því að draga úr möguleikum
á því að ná erlendri fjárfestingu
til landsins og koma í veg fyrir
uppbyggingu ferðamannaiðnað-
ar á Áusturlandi.
Huang áformaði að Zhongkun
myndi fjárfesta fyrir allt að tutt-
ugu milljarða króna við uppbygg-
inguna á næsta áratug. Þá áætlaði
greiningardeild Arion banka að
fyrirhuguð umsvif Huang hér á
landi myndu skapa um þúsund
varanleg störf hér á landi, og
enn fleiri meðan á framkvæmd-
um staeði. Þá gætu gjaldeyris-
tekjur íslands aukist um marga
milljarða á ári.
nQ milljarðar er
""Ovl milligjöfin
vegna mismunar á skuldum
SpKef og innistæðum. Salan á
SpKef varð í öðru sæti.
Halldór Jóhannsson er talsmað-
ur Huang á íslandi og hann segir
í samtali við Markaðinn að hann
hafi ekki órað fyrir því að málið
fengi þá efnislegu meðferð sem
svo varð.
„Huang var búinn að ræða
málið við marga ráðherra og taldi
að hann væri að eiga við ríkis-
stjórn með sameiginlega stefnu.
Það kom því á óvart að einn ráð-
herra tæki geðþóttaákvörðun í
þessu máli sem síðar reyndist.“
Halldór segir að ekki sé útilok-
að að eitthvað verði úr þar sem
þeir hafi verið í viðræðum við
iðnaðarráðuneytið og Fjárfest-
ingarstofu um fjárfestingarleið,
væntanlega með leigufyrirkomu-
lagi. Huang hefur lýst sig tilbú-
inn að vinna með þeim hætti ef
búið verði að tryggja að fyrir-
tækið fái að reisa hótel og reka
þá starfsemi sem hann hafi hugs-
að sér. „Við erum búin að eyða
miklu púðri í verkefnið og það er
synd og skömm ef þetta tækifæri
glutrast niður. Ég held að við ís-
lendingar megum ekkert við því
að gefa þetta frá okkur. Við verð-
um að leita leiða til að leysa þetta
með farsælum hætti.“
VERSTU/UMDEILDUSTU VIDSKIPTIÁRSINS
1. Meðhöndlun stjórnvalda á fyrir-
huguðum kaupum Huang Nubo á
Grímstöðum á Fjöllum.
2. Kaup Landsbankans á SpKef.
3. Gjöf Arion á hlutabréfum til
stjórnenda Haga.
önnur viðskipti sem voru nefnd:
„Ógagnsæ sala bankanna á eignum
sínum." (Salan á N1 sérstaklega
nefnd.)
„Kennitöluflakk World Class."
„Hlutafjáraukningin í lceland
Express í haust."
„Hjarðhegðun f islensku viðskiptalífi
sem hefur látið Framkvæmdasjóð
fslands mæta mótlæti."
„Kjarasamningarnir i vor."
Ummæli álitsgjafa
„Kaup Huang Nubo á Gríms-
töðum á Fjöllum, eða öllu heldur
meðhöndlun þess máls. Skaðar
umhverfi og möguleika á að ná
erlendri fjárfestingu til íslands meira
en flestir átta sig á."
„Bann ráðherra við sölu Gríms-
staða til erlends fjárfestis sem þar
með kom í veg fyrir gríðarlega
atvinnuuppbyggingu í ferða-
mennsku á svæðinu."
„Yfirtaka Landsbankans á SpKef
á uppsprengdu mati var varla í
„Skuldaniðurfellingar fyrirtækja."
„Eigendur FSÍ kaupa hlut (lcelandair
af sjálfum sér."
„Farseðlakaup fslendinga hjá
lceland Express."
„Viðskipti með þýfi."
„Kaup íslandsbanka á Byr."
„Sala Seðlabankans á Sjóvá."
þágu skattgreiðenda. Eignir SpKef
lækkuðu að mati kaupenda um 15
milljarða króna á fáeinum mánuðum
eftir yfirtökuna. Sérlega súr díll."
„Arion banki gaf fimm stjórn-
endum Haga hluti í fyrirtækinu
sem eru í kjölfar hlutafjárútboðsins
230 milljóna króna virði, fyrir að
skuldbinda sig til að vinna hjá fyrir-
tækinu fram í júli 2012. Auk þess
greiddi bankinn skatt af þessari gjöf
fyrir 170 milljónir króna. Þurfti 400
milljónir til að fá stjórnendurna til
að festa sig í 9 mánuði?"
A KATUN
PERFORMANCE
Tónerhylki og varahlutir
í flesta prentara.
Vínlandsleið 6-8, S. 588 9000
r^KUOCERa nashuutei: RICOH Lexm^rk
sharp brather caiion C3
KONICA MINOLTA
Optlma er aðili að rammasamningi Rlkiskaupa