Fréttablaðið - 29.12.2011, Blaðsíða 20
20
FRÉTTABLAÐIÐ
29. desember 2011 FIMMTUDAGUR
ERLENDIR VENDIPUNKTAR 2011
Snúningur
sögunnar
Efnalegar, hugmyndalegar og pólitískar forsendur
vestræns forræðis í heiminum eru að hverfa, segir
Jón Ormur Halldórsson. Við stöndum við vatnaskil
en sjáum varla út úr augum. Breyttur heimur
mun birtast eftir skuldakreppu Vesturlanda sem
dundi yfir vegna sjálfsblekkinga og ábyrgðarleysis.
etta var vont ár fyrir
Vesturlönd. Eitt það
versta í minni flestra
manna. Og verra en
marga grunar. Vand-
ræðunum mátti þó
afstýra með sæmilegri skynsemi,
dálítilli hófsemi og minna ábyrgð-
arleysi þeirra sem aðrir treystu.
Þess vegna varð þetta líka ár virð-
ingarleysis hins almenna manns
fyrir öílum þeim sem á liðnum
árum hafa krafist tiltrúar í krafti
þess að kunna eitthvað sem öðrum
var hulið, hvort sem þeir klæddust
gráum búningum bankamanna,
kuflum kennimanna, virðulegum
fötum valdamanna eða kauðslegri
flíkum fræðimanna. Þetta var
ekki ár stórra sanninda heldur ár
reiði og ringlunar.
Þungir straumar
Það var auðvitað mikið um stóra
atburði á árinu en fæstir þeirra
skiptu þó miklu máli svona einir
og sér. Saman opna þeir okkur
hins vegar sýn á þunga strauma
sögunnar. Til þess að skilja atburði
ársins 2011 og sjá snúning mann-
kynssögunnar nægir að líta tutt-
ugu ár aftur í tímann. Þá sýndust
um stund öll vötn falla til einnar
áttar. Menn ræddu jafnvel um
enda sögunnar í þeim skilningi að
tími átaka um skipan framleiðslu
og almenna skikkan stjórnmála
heyrði fortíðinni til. Alþjóðlegur
kapítalismi og vestrænt lýðræði
hefði unnið fullan sigur. Nú sýnast
vötn falla til allra átta í senn. Við
erum greinilega á vatnaskilum en
sjáum varla út úr augum.
Annus mirabilis
Sumarið 1991 opnaði breski vís-
indamaðurinn Tim Berners-Lee
veraldarvefinn með belgískum
aðstoðarmanni sínum við evr-
ópska stofnun í Sviss. Vefurinn bjó
til tæknilegar forsendur heims-
væðingar í atvinnulífi, menningu,
mannlífi og stjórnmálum. Heims-
væðingin hefur bylt viðfangs-
BANDARÍKJAHER FARINN FRÁ ÍRAK Bandaríska heimsveldið, akkeri alþjóðakerfisins, hrökklaðist frá frak undir árslok, rúið trausti
og virðingu. nordicphotos/afp
efnum stórs hluta jarðarbúa, stöðu
heilla þjóða, sýn milljarða manna
og flestum hlutföllum í heimin-
um. Mánuði fyrr hafði gjaldeyris-
kreppa neytt Indland til að tengj-
ast hagkerfi heimsins. Atvinnulíf
þessa risaríkis hafði verið lokað á
bak við háa múra því þarna, eins
og víða, höfðu menn lengi litið
svo á að alþjóðlegur kapítalismi
og nýlendustefna væru eitt og það
sama. Um vorið hafði sigur Banda-
ríkjanna í stríðinu um Kúveit virst
marka nýja skipan heimsmála.
Staðfesting
Á annan dag jóla var svo stað-
fest nýtt hagkerfi heimsins, ný
skipan alþjóðamála og pólitísk-
ar forsendur heimsvæðingar.
Þá var fáni Sovétríkjanna dreg-
inn niður í hinsta sinn. Ekki var
aðeins helsi létt af hálfri Evrópu
heldur var heimurinn líka leystur
úr viðjum staðnaðra átaka um
gamla hagsmuni klædda í flíkur
hugmynda. Kapítalisminn átti sér
ekki lengur keppinauta í orði né
á borði.
Stækkun heimsins
Nema, héldu menn, helst í Kína
sem var að lokast aftur eftir að
misræmið á milli viðskiptafrelsis
og pólitískrar þvingunar varð
meira en kommúnistaflokkurinn
réði við. En vorið 1992 fór Deng
Xiao Ping í afdrifaríkustu ferð
sem eftirlaunþegi hefur nokkru
sinni farið. Deng var að nálgast
nírætt og formlega valdalaus. í
Austur-Asíu eru tákn dýrari en
orð og prívat heimsókn Dengs til
frjálslyndustu borga Suður-Kína