Heimilisritið - 01.03.1945, Side 31
Herbergið er þéttskipað af kátu
fólki, sem er þér ákaflega vel-
viljað. Þú ert tekinn með því,
sem á hernaðarmáli nefnist leift-
urárás, og áður en þú kemst til
að nudda stýrurnar úr augunum,
ertu orðinn skruggufullur.
Næsta morgun kemur þú til
sjálfs þín í alókunnugu herbergi,
snöggklæddur, á sokkaleistunum,
og með voðalegan höfuðverk. Á
gólfinu hrýtur ókunnugur maður
og annar liggur í kross yfir hann.
Þú ert í öðru rúminu en stór
ruggustóll í hinu.
Þegar þú kemur inn í þitt eig -
ið herbergi, er þar einnig fullt af
sofandi fólki, sem þú minnist ekki
að hafa séð fyrr. Þú finnur jakk-
ann þinn á gólfinu, en skóna
sérðu aldrei framar.
Þú ert nú orðin alls ófær til
þess að dvelja á fínu sumarhóteli.
Bæði er glóðaraugað orðið hel-
blátt og allsvakalegt, og svo hef-
urðu ekki haft með þér nema
þessa einu skó. Einn af þjónun-
um aumkast yfir þig og gefur
þér útslitin gúmmístígvél, sem
einhver hefur skilið eftir.
Þú biður um reikninginn. Þeg-
ar þú sérð hann verðurðu alveg
orðlaus og getur þar af leiðandi
ekki hreyft mótmælum. Þú átt
aðeins fyrir honum og tvær
krónur og sjötíu aura fram yf-
ir, sem yfirþjónninn fær í
drykkjupeninga. Hann lítur á
þig mieð óumræðilegri fyrirlitn-
ingu.
Þú verður að biðja áætlunar-
bílstjóran að lána þér farið heim.
Hann lítur á gúmmístígvélin þín
og glóðaraugað, skellir upp úr og
segir að það sé velkomið. Farþeg-
arnir stinga saman nefjum og
kíma.
Þegar þú ert kominn heim og
búinn að sofa út, ferðu að athuga
hótelreikninginn. Hann er eitt-
hvað á þessa leið:
Tvö morgunkaffi með extra
tilleggi, pr. kr. 5,50 .. kr. 11,00
Tveir kvöldverðir með extra
tilleggi, pr. kr. 19,50 .. — 39,00
Einn miðdagsmatur með extra
tilleggi, pr. kr. 27,80 .. — 27,80
Eitt eftirmiðdagskaffi
mi. e. k. pr. kr. 5,50 ..— 5,50
Fimm fl. öl pr. kr. 2,00 — 10,00
Gosdr. öl, smurt br. o. fl.
(til selsk. um nótt) sam-
kv. sérst. reikn..........— 159,00
Aukaræsting áherbergi — 10,00
Extra herbergi til selskaps-
halds um nótt, ........ 50,00
Eýðilögð læsing, ........ — 45,00
Skemdir á rúmfötum, sam-
kv. mati tveggja óvil-
hallra manna ............ — 200,00
Tjaldstæði, ............. — 100,00
Samtals kr. 657,30
Vér ætlum ekki að skreyta
þennan kafla með heimsþekileg-
um athugasemdum), né siðfræði-
legum ályktunum. Menn eru beðn-
ir að líta á hann sem saman-
þjappaða augnabliksmynd úr
daglega lífinu, sem lyft er á hærra
svið með skáldlegu flugi og stíl-
snilli.
HEIMILISRITIÐ
29