Heimilisritið - 01.07.1945, Síða 17
hafsöldurnar sleikja þröskulda
þessara fiskimannabýla.
UMHVERFIS eru grynningar,
og sjóleið hættuleg. Að sunnan
er Hustadvika með óteljandi
grunnbrot. Að norðanverðu er
Smöla, umkringd sannkölluðum
ólgandi hrærigraut af boðum og
skerjum, svo að hvergi getur
verra meðfram Noregsströnd-
um. Að vestanverðu er Griptar-
en (þaragrunnmið), víðáttumikl-
ar grynningar, þar sem allsstað-
ar ólgar og sýður í ókyrrum sjó.
En í kyrru veðri er þar sléttur
sjór, ekkert, sem minnir á hætt-
ur, nema duflið, sem lagt er við
takmörk grunnsins, útbúið ljósi
og þokulúðri. Þetta grunn er
forðabúrið, gullnáman — eða
hvað, sem menn vilja kalla það,
því að Griptaren er afbragðs
fiskimið. Þar veiðist þorskur,
ufsi, langa og keila. Þar sjást
oft smáhveli í leit að æti.
Á þessi fiskimið hafa Grip-
verjar sótt lífsbjörg sína kyn-
slóð eftir kynslóð. Þau hafa ver-
ið metin til mikilla auðæfa af
erkibiskupinum í Niðarósi, og
engu síður af hinum dönsku kon-
ungum. Voldugar kaupmanna-
ættir hafa byggt auð sinn og
veldi á þessum blindskerjaklasa.
Það er því skiljanlegt, hvers
vegna Grip hefur verið svo
lengi byggð. Áður en gufuvélin
og hreyfillinn komu til sögunn-
ar, var það nauðsynlegra en nú,
að þurfa sem stytzt að sækja á
miðin. Og Grip lá næst þessum
miðum. Menn voru ekki að setja
það fyrir sig, þótt landrýmið
væri lítið og tilveran gæti ver-
ið nokkuð drungaleg þar úti.
Það er ekki laust við að það veki
nokkra undrun, er maður kynn-
ir sér sögu eyjarinar, að þarna
úti hafa verið ríkir jarðeigend-
ur, sem áttu landflæmi með
bæjum og skógum inni í landinu.
Þeim kom ekki til hugar, að setj-
ast að í hinum blómlegu byggð-
um. Þeim fannst bæði þægilegra
og skemmtilegra að búa úti í
eyjunni, þaðan sem þeir öfluðu
auðæfa sinna. Afkomendur
þeirra lifa þar áfram, og hafa
nákvæmlega sömu skoðun og
forfeður þeirra: Hvergi í veröld-
inni er betra að vera en í Grip.
í Kristiansund er alþekkt hvað
þeir eru elskir að heimilum sín-
um. Þegar Gripverji er staddur
í bænum með afla sinn, getur
vitanlega komið fyrir að skelli
á óveður með kvöldinu. En ær-
lega má hann blása til þess að
takist að telja hann á að liggja
í öruggri höfninni yfir nóttina.
Heim fer hann,thvað sem raul-
ar og túutar.
NÚ skulum við bregða okkur
út í eyna. Gufuskip getur ekki
HEIMILISRITIÐ
15