Heimilisritið - 01.07.1945, Side 36

Heimilisritið - 01.07.1945, Side 36
Eigingjarnir karlmenn og uppskafningar aka oft til öxl- unum við hvert spor, sem þeir taka. Þeir vænta aðdáunar, en hafa engan hug á að láta frelsi sitt af hendi. Konur, sem snúa til mjöðmunum hafa mikla löng- un til ásta. Við munum t. d. eft- ir Mae West og mjaðmavindingi hennar. Þeir sem bera höfuðið hátt eru tíðast stærilátir, sjálfstæðir í hugsun og hugrakkir. Hinir, sem eru niðurlútir, skortir oft fram- girni og frumleika, eru tauga- óstyrkir og auðmjúkir. Konur, sem halla undir flatt, eru venju- lega daðurdrósir og veikar af forvitni. Það geta allar konur átt von á því, að slíkar konur steli eiginmanni þeirra og bá- súni út það um fortíð þeirra, sem sízt skyldi. Loks er konan sem alltaf er að líta aftur, eins og kona Lots. Hún veit allt um alla og er eins og lifandi frétta- blað. Menn, sem hallast stífir fram á við, þegar þeir ganga, eru oft vanstilltir og vantar alla met- orðagirnd. Hinir, sem hallast aftur fyrir sig, eins og skakki turninn í Písa, eru strangir og ósveigjanlegir. Illsviti er það, að ganga með útstandanda sitj- anda, hallast fram frá mjaðm- arlið. Er ólíklegt, að fólk, sem þannig gengur, afli sér fjár eða frama í lífinu, jafnvel þótt það' gefi glæsilegar vonir í fyrstu. Getum við hugsað okkur nokk- urn konung eða sigurvegara, sem gengur með búkinn fram- beygðan? Það er ekkert smáræði, sem hægt er að fræðast um ókunn- ugt fólk með því eina móti að athuga, hvernig göngulag þess- er! Það verður gaman að vita hvernig árangurinn verður, þeg- ar við förum að athuga göngu- lag kunningjanna, — og okkar sjálfra. SKRÍTLUR RIFRILDI — Skrifstofustúlkan mín er alltaf í bölvuðu rifrildi síðustu dagana. — Er það? — Já, hún veit ekki af því að> kjóllinn hennar er rifinn að aft- an. I góðri trú ' Halli litli kom þjótandi inn til pabba síns og sýndi honum nýjan vasahníf, sem hann sagð- ist hafa fundið úti á götu. „Ertu nú viss um að honum hafi verið týnt?“ spurði faðir- inn. „Náttúrlega var hann týndur“ svaraði drengurinn. „Eg sá mann vera að leita að honum“. 34 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.