Heimilisritið - 01.07.1945, Side 56
Hér hefst ný ákaflega spennandi framhaldssaga
eftir JOHN DICKSON CARR
Dick Markham átti bágt með að trúa því, að
stúlkan sem hann elskaði væri morðingi..
ÞEGAR Dick Markham for
að hugsa út í það eftir á, taldi
hann líklegt, að hægt hefði ver-
ið að sjá ýmsa slæma forboða
í tjaldi forlagaspámannsins eða
í skotmannatjaldinu og á mörg-
um öðrum stöðum á basartorg-
inu.
En hann var svo hamingju-
samur, að það var langt frá þvi.
að hann hefði látið sér detta í
hug nokkuð þess efnis.
Hann og Lesley gengu inn
um basarhliðið. Það var eitt-
hvað ári fyrir Hitlersstríðið.
Lesley sagði: „Við erum orð-
in alltof sein, ems og þú veizt.“
Hann horfði á hana — hún
var brosandi, hélt hattinum sín-
um föstum á höfðinu og náði
varla andanum fyrir rokinu.
Hann tók líka eftir því, að í
augum hennar var alvara, þótt
munnurinn væri brosandi. All-
ar hugsanir hennar og tilfinn-
ingar virtust sameinast i
þessum brúnu augum og endur-
spegla það, sem hún hafði sagt
við hann kvöldið áður.
„Elskarðu mig?“
„Já, það veiztu“.
Þau höfðu ekki þreyzt á að
endurtaka svona setningar frá
því um kvöldið.
„Heldurðu“, sagði Dick eftir
54
HEIMILISRITIÐ