Heimilisritið - 01.10.1948, Page 20

Heimilisritið - 01.10.1948, Page 20
Ludlow standa á baðbrúnni í skrautlegri baðkápu,' brosandi vingjarnlega. Hann líktist ung- um fursta, sem veit, að það eitt að líta hann augum, er mikil náð til handa þegnum háns, og veitir þeim óblandna og saklausa gleði. Með hægum, fjaðurmögnuðum skrefum gekk hann niður þrepin og nálgaðist hópinn. Hann brosti stöðugt og fór úr baðkápunni með hátíðlegum tilburðum. Peter Olney brosti. Maður gat ekki annað en látið sér þykja vænt um Sam. Það var eitthvað' í sjálfsdýrkun hans, sem næstum neyddi mann til að taka þátt í henni. Hégómagirni Sams var ekki af þeirri gremjulegu tegund, sem krefst adáunar — hún virtist svo eðlileg. Það var eins og hann veitti öðrum af hreinni manngæzku þá náð að iíta hann augum og njóta þeirrar tilkomumiklu sýnar. Að það var í raun og veru náð, mátti sjá á ungu stúlkunum fjór- um, sem lágu fyrir fótum Sams á svo viðeigandi hátt. Sérhver þeirra færði sig til hliðar svo að' hann gæti setzt — þó ekki of mikið. En Sam hristi höfuðið. Peter hló lágt. Hann hafði séð Sam líta til hvítklæddu stúlk- unnar — séð hann hefja upp augabrúnirnar eitt andartak og lesið hugsanir hans greinilega. Og hann vissi, að þessar hugsanir báru vott um örlæti Sams. Hvers vegna skyldi ekki þessi unga stúlka einnig verða þeirrar ánægju aðnjótandi, er öðrum var veitt? Hún sneri að honum baki, þar sem hún lá og beindi athygl- inni að leiðinlegum sjónum, án þess að hafa hugmynd um töfr- andi návist hans. Það var hrein- asta synd, hugsaði Sam auðsjá- anlega. En þó að hún hefði ekki fylgzt með komu hans, skyldi hún samt ekki missa af þessum tilkomumikla viðburði. Þess vegna veifaði hann tigin- mannlega til hinna og hljóp eftir fjörunni. Hann bar sig til eins og ungur guð með fagrar og örugg- ar hreyfingar — munnurinn var lítið eitt opinn, svo hvítar tenn- urnar skyldu sjást í sólbrúnu andlitinu. Hann hugsaði auðsjá- anlega ekki um annað' en hlaup- ið sjálft. Hann sá ekki einu sinni ungu stúlkuna hvítklæddu á meðan hann hljóp. Peter Olney skemmti sér. Hann leit á ungu stúlkuna og sá, að hann hafði dæmt hana rétt. Hún hafði haft ástæðu til að vera ein lit af fyrir sig, og hér var ástæðan. Peter kinkaði kolli í viðurkenningarskyni. Aðferð' hennar var meira en lítið kæn- legri en hjá Sally og Helenu. Þeg- ar þessum leikþætti væri lokið, myndi liún hafa Sam Ludlow fyrir sig eina! 18 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.