Heimilisritið - 01.10.1948, Page 30

Heimilisritið - 01.10.1948, Page 30
þér til að synda á eftir mér?“ „Ég — —Peter þagnaði skyndilega. Allt í einu skildi hann, hvers vegnu hann hafði gert það, hann varð lostinn skelf- ingu, og skildi líka hve hræði- lega heimskur hann hafði verið. Hann greip fast um kaldar, vot- ar axlir hennar. „Fær — en ótryggur“, sagði hún hátíð'lega. „Ár eftir ár — rykkir og skrölt, Peter! TJmferð á eigin ábyrgð!“ Hann heyrði sjálfan sig hlæja, þegar hann — þrátt fyrir aðvör- un — beygði inn á hinn hættu- lega veg! ENDIR íslenzk sögukorn: FRÚ LÓA ÞAÐ VAR ung og fögur kona, sem sat út við gluggann sinn og horfði yfir Illjóm- skálagarðinn. Sunnangolan bterði þunn gluggatjöldin og lék sér að fögru, ljósu lokkunum hennar frú Lóu. Svo blés hún hlýtt og milt um kinnar hennar og hvísl- aði í smágert eyrað: „Eu hve þær eru silkiinjúkar!" Tveir smáfuglar vögguðu sér á grein, stungu saman nefjum og sungu: „Tí, ti, en hvað hún er lagleg og fín!“ Frú Lóa hélt á bók í annarri hendinni og rós í hinni. Hún bar rósina að vitum sér og andaði að sér ilminum. Nú þurfti hún ekki að gera annað en láta sér liða vel og skemmta sér. Þegar hún kom fyrst í þetta hús, hafði annað verið uppi á teningnum. Hún var þá ráðin sem vikastelpa, og köllin gengu allan daginn: „Lóa, Lóa“, „Lóa, gerðu þetta" og „Lóa, gerðu hitt“. Nú var það hún, sem var frúin og skipaði fyrir verkum. Enn gat hún hlegið, þegar lienni datt i hug, hve hissa allir urðu, er hún og Oskar, souur hjónanna, giftu sig. Göndu hjónin voru svo sem ekki upp með sér af tengdadótturinni; sei, sei, nei! En það kom á daginn, að hvorki þau né aðrir þurftu að skammast sín fyrir hana. Ilún var nú framarlega í allri velgerðarstarfsemi Kven- félagsins og stofnandi að Bókmenntafélag- inu, sem mikið þótti til koma. Já, hún frú Lóa var fyririnynd ungra eiginkvenna! Einliver tekur i stofuhúrðina og kemur inn. Það er þrekleg kona með hvassan augnasvip. „Hvað ert þú að gera hérna, Lóa? Ég er ekki vön því, að vinnukonurnar mínar haldi til í stofunum. En kannske þú viljir fara fram og taka til kaffið?" Lóa hentist á fætur. Burt var frú Lóa hin fína og allir draumar um- frægð og frama, en eftir stóð vikastelpa með rauð- ar hárfléttur sína í hvora áttina. Um leið og hún liljóp fram ganginn, varð lienni litið í spegilinn stóra. Kartöflunef, freknur og bólur, ásamt vatnsbláum aug- um, blöstu við. Lóa gretti sig og rak út úr sér tunguna framan í spegilmyndina. Einhverntíma gæti hún ef til vill ekki stillt sig um að brjóta þessa bannsettu spegla, en þá yrði vistin ekki lengri í þessu liúsi. Það gerði þá ekki svo mikið til, það var dauft að búa hjá barnlausum hjónum, sem hugsuðu bara um sjálf sig. Dollý. 28 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.