Heimilisritið - 01.10.1948, Side 52
„Það var nú þegar þið' voruð í
tilhugalífinu. Alltaf færði hann
þér blóm. Er hann ekki hættur
því?“
Dot svaraði: „Tim verður að
bera öll útgjöldin. En það er al-
gengt, að giftar konur verða að
halda stöðum sínum til þess að
heimilið' hafi nóga peninga. Tim
getur ekki veitt sér eins mikla
vasapeninga nú og áður en við'
giftumst. Þrátt fyrir það hefur
hann fjórum sinnum fært mér
blóm, þetta fyrsta hjónabands-
ár okkar“.
„Það eru viðbrigði fyrir Tim“,
sagði Amy. „Hann hafði ráð á
að nota svo mikla vasapeninga í
gamla daga. Honum hlýtur að
leiðast þessi breyting. — En á ég
annars ekki að fara að líta eftir
rúmfötum?“
„Handa hverjum?" spurði
Dot.
„Handa þér, góð'a mín. Þú sef-
ur þó ekki á allslausum legu-
bekknum“.
Það virtist svo sem Amy teldi
það sjálfsagt, að Dot gisti hjá
henni.
„Eg — ég ætla ekki að vera
hér“, sagði Dot.
„Nú, ég áleit að eins væri
komið fyrir ykkur og Betty og
Edward“, sagði Amy. „Hún sór,
að hún færi ekki heim, fyrr en
hann bæði hana fyrirgefningar“.
„Gerði hann það?“
50
„Nei, og Betty háttaði grát-
andi á hverju kvöldi“.
Dot tók hattinn og mælti:
„Við borð'uðum kvöldverð fyrir
skömmu hjá þeim Betty og Ed-
ward. Það er fjölgunarvon hjá
henni í desember. Edward var í
sjöunda himni. og afar stima-
mjúkur við Betty“.
ÞEGAR Dot kom heim og
stóð við útidyrahurðina, var
hún svo skjálfhent, að hún gat
naumast snúið lyklinum. Hún
kallaði: „Tim — Tim! Ég er
komin“.
Hann var ekki heima. En það
var búið að þrífa til í húsinu.
Matarílátin höfðu verið þvegin,
öskubakkar tæmdir, búið hafði
verið um rúmin o. s. frv.
Dot leit á klukkuna. Ef hún
flýtti sér gat hún haft miðdegis-
verðinn tilbúinn á venjulegum
tíma. Þegar hún hafði látið hæn-
una í pottinn, hringdi hún til
Barry Gardner.
Nei, Tim hafði ekki komið
þangað. En reynandi væri að
spyrjast fyrir hjá Bill Cullen.
Bill sagði, að Tim hefði setið
lengi hjá sér. En svo hefðu Amy
Shearer og frænka hennar kom-
ið. Með þeim fór Tim. En Bill
vissi ekki hvert þau hefðu farið.
Dot var milli vonar og ótta.
En hún gleymdi ekki hænunni.
Augu hennar voru full af tárum.
HEIMILISRITIÐ