Heimilisritið - 01.08.1951, Síða 11
fjöldinn \’ar mjög nærrí því, sem
vísindin telja rétt, og þessi börn
voru hraustari í maga, uxu
meira og þyngdust en annar
Jiópur, sem fékk venjulegt
barnafæði.
Niðurstöður vísindanna stað-
festa oft, af hversu öruggri eð'l-
ishvöt frumstætt fólk velur sér
fæði. Þegar negrar í frumskóg-
um Afríku fara í aðdráttarferð-
ir, eta þeir blöð af ýmiskonar
trjám og runnum. Séu blöðin of
gróf eða bragðvond, brenna þeir
þau og eta öskuna. 1 Kína er
það eldforn siður að gefa móð-
urinni strax eftir fæðingu barns-
ins grísatá súrsaða í ediki. Þetta
sælgæti kemur í góðar þarfir,
því grísatær innihalda mikið
kalk, en móðirin hefur orðið að
sjá af miklu kalki til fóstursins.
En margt af því, sem næring-
arsérfræðingarnir vita með
vissu, er algerlega andstætt
skoðunum almennings. Fyrir
nokkrum árum ályktaði bíl-
stöðvareigandi einn á þessa leið:
„A-vítamín læknar náttblindu.
Gulrætur innihalda mikið A-
vítamín. Ergo getur maður
læknað náttblindu með því að'
borða gulrætur“. Allir bílstjórar
fengu þess vegna skannnt af gul-
rótum, þegar þeir áttu að aka
að næturlagi, og áður en langt
um leið fækkaði næturökuslys-
um mjög svo ánægjulega.
En það voru tveír agnúar á
þessari tilraun. I fyrsta lagi er
ekki sannað, að menn sjái betur,
hvorki að nóttu né degi, þó
menn eti A-vítamín. Og í öðru
lagi innihalda gulrætur að vísu
mikið' af karotin, en tilraunir
hafa sannað, að gulrætur veita
líkamanum aðeins sjötta hluta
þess A-vítamínsmagns, sem vís-
indamenn reiknuðu með áður.
Það er sennilegast, að það hafi
verið japlið á gulrótunum en
ekki karotínið, sem gerði bíl-
stjórana aðgæt nari.
Munið' þið þá tíð, þegar það
var í tízku að eta ger? Næring-
arfræðingarnir höfðu komizt að
raun um, að ferskt bakstursger
væri fullt af B-vítamínum, sem
sé tiamin og riboflavin. Það var
að vísu rétt, að ger innihélt viss
vítamín, og gerir það enn. En
gallinn er bara sá, að það slepp-
ir þeim ekki. Og ekki nóg með
það: með ítarlegum tilraunum
hefur nýlega verið staðfest, að
hráar gersellur stela nokkru af
því tiamini, sem líkaminn fær í
annarri fæðu. Hið sama gera
reyndar hrár kræklingur og ým-
is önnur sædýr. Þau innihalda
nefnilega enzvm, sem sundur-
leysir tiamin.
Spínat er auðugt af kalki og
járni. En þessi mikilvægu efni
eru í þess konar ástandi í spín-
ati, að líkaminn á örðugt með
HEIMILISRITIÐ
9