Heimilisritið - 01.08.1951, Page 20
bar hana á hÖndum sér. Jens
var duglegur og ákveðinn og
bezti maðurinn í heiminum!
Allan seinni hluta dagsins
naut hún öfundar vinkonu sinn-
ar. Þær töluðu um félagana í
verksmiðjunni. ,,Þú manst eftir
Emu? Þessari rauðhærðu með
ljóta litarháttinn. ... Hún er
ólétt ... og á eitt fyrir ... það
er víst stúlka, eins árs. Nú
hefur maðurinn hennar fundið
aðra. Hann fór þegjandi og
hljóðalaust. Hún skrúfaði frá
gasinu, en þeir komu og dældu
upp úr henni nógu snemma.
Helle fór á spítala eftir hóp-
skoðunina í sumar. Berklar —
mig var reyndar farið að gruna
það. Þessi hósti, sem hún var
alltaf með. ...“
Sígarettureykurinn leið um
loftið, það var lávær tónlist í
útvarpinu, frá Vívex ... en
hvað ég lifi góðu lífi . .. ég er
lukkunnar pamfíll ... þær tala
um mig í verksmiðjunni ... ég
ætla að bjóða þeim hingað í
sumar ... í stórt boð. ... En
svo fór Alice að tala um að fara
heim.
„Vertu hjá mér í nótt,“ sagði
íris. „Gerir það nokkuð til? Þú
getur símað frá kaupmanninum
og sagt að þú komir ekki.“
„Þú ættir að vita, hvað mig
langar til þess. Það væri dásam-
legt, en ég get það ekki, íris.
Ég verð að vera þar. Annars
gera pabbi og Leó út af við
hvorn annan. Það verður að
vera eldingavari, og hann er því
miður ég.“
íris fylgdi vinkonu sinni að
áætlunarbílnum. Hún var á-
nægð með stöðu sína í heim-
inum. Þangað til áætlunarbíll-
inn hvarf. Þá gekk hún heim á
leið. Ein. Það rigndi í sífellu.
Matsalan í sumarhúsaþorpinu
var eyðileg og byrgð. Gríman
glotti á sinnepsgula húsinu. Og
mávamir. Aldrei gátu þeir hætt
að garga. Nú fór hana að verkja
í fingurinn. Og Alice hafði sagt,
að það væri ekkert. En hvað
vissi hún? Ekki var þetta henn-
ar fingur.
Hún lokaði sig inni. Og nú
fannst henni hlýjan og öryggið,
sem hafði fyllt húsið, meðan
vinkona hennar var hjá henni,
hafa seytlað út. Hér var veru-
lega einmanalegt. Og hún átti
að sofa ein ■.. og svo var þessi
maður, sem seldi pappír og var
grunsamlegur á svipinn. Og nú
varð hún að fara og gefa hæn-
unum. Hæna númer sautján
myndi með ánægju höggva úr
henni augun ... íris brauzt í
gegnum leðjuna. Hún hratt
hænsnahurðinni upp á gátt, og
inni görguðu hænurnar hátt og
gremjulega. ...
ENDIK
18
HEIMILISRITIÐ