Heimilisritið - 01.09.1951, Side 61

Heimilisritið - 01.09.1951, Side 61
,,Þér megið ekki láta hann gera það, frú,“ sagði hann biðjandi. ,,Ég hef gert allt, sem ég hef getað fyrir yður. Ég myndi aldrei hafa skert eitt hár á höfði yðar. Hugsið líka út í það, að þér eigið mér að þakka að þér eruð komnar hing- að aftur." „Ég get nú ekki fundið, að það sé neitr, sem ég þarf að vera þakklát fyr- ir,“ sagði Joan og fann að Hilary horfði á hana. „Ég heyri að þér hafið framið marga glæpi, en hvaða glæpi, sem þér kunnið að hafa framið, hafið þér senni- lega aldrei talið konu trú um, að þér væruð ástfanginn af henni og gert hana ógæfusama á eftir. Þann glæp hafið þér sjálfsagt ekki framið, eða er það?“ „Nej, kæra frú, það get ég svarið við guð í himninum að ég hef aldrei gert,“ sagði Howes og skddi hvorki upp né niður, en fullyrti þetta af mikilli ákefð. „Ég hef aldrei gert lukku hjá kven- fólki og ég skil ekki vel, hvað þér eigið við með þessu, scm þér sögðuð. En seg- ið nú við hann, ég meina Sterling, að hann skuli lofa mér að fara, og ég skal aldrei vera yður til ama. Yður er líka óhætt að treysta því, að ég skal sjá um að svarti Doyle ónáði yður ekki fram- (< ar. Þrátt fyrir allt kenndi Joan í brjósti um manninn, og hún leit framan í Sterling, cn gat ekkert Iesið úr svip hans. „Láttu hann fara, Hilary,“ sagði hún. „Hvað græðir þú á að afhenda hann yfirvöldunum? Þú gleymir víst að þú hefur líka brotið lögin.“ „Brotið lögin?" endurtók Hilary og hló. „Nei, fullnægt réttlætinu. Eigi að síður, ef þú biður mig um að láta How- es sleppa, skal ég gcra það með því skilyrði að.....“ „Biðjið hann um það, ungfrú!" tók Howes fram í fyrir honum í bænarrómi og kastaði sér á hné fyrir Joan, sem mótmælti óttaslegin, þegar Ugi ógnaði honum með hnífi 'sínum. „Ég bið þig um það Hilary," sagði hún. „Lofaðu manninum að fara.“ „Eins og þú vilt,“ sagði Hilary eftir dálitla þögn og yppti öxlum. „Gott og vel, Howes, þér eruð frjáls og getið snú- ið aftur til glæpafélaga yðar, og ég vona að þér efnið loforð yðar og sjáið fyrir svarta Doyle. Ugi, þú láta hvíta náungann, fara og ekki gera honum neitt mein.“ Hann bætti við einhverju á máli eyj- arskeggja, og Ugi blés út gúlann, auð- sjáanlega mjög vonsvikinn, en Kellock Howes flýtti sér að rísa á fætur. „Þakka yður fyrir, ungfrú, margfald- ar þakkir, herra,“ sagði þorparinn. „Ég vissi að yður myndi farast vel við hvít- an mann og gera mér ekki neitt, eftir allt sem ég hef gert fyrir yður. Og ég heiti yður því við drengskap minn sem Englendings, ég á við sem amerísks borgara, að ég skal svei mér sjá um að svarti Doyle fái makleg málagjöld. Hann skal ekki pretta mig fyrir ekki neitt. En þér gætuð nú víst ekki lánað mér föt, Sterling, ef ég má spyrja? Og ef þér gætuð gefið mér hressingu og eina eða tvær sígarettur, myndi ég vera yður mjög þakklátur." XXI „Fyrirg-efðu mér!“ EFTIR að Howes hafði rakað sig og þvegið og klæðst nýjum fötum, sem HEIMILISRITIÐ 59

x

Heimilisritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.