Heimilisritið - 01.09.1951, Blaðsíða 62

Heimilisritið - 01.09.1951, Blaðsíða 62
Hilary hafði gefið honum, fylgdu menn Hilarys honum að ytri mörkum yfirráðasvæðis Sterhngs og skildu þar við hann. Joan og Hilary sátu nú við morgun- verðarborðið, og enda þótt Kuku hefði aldrei tekizt betur matargerðin og fram- reiddi sérstakt lostæti í tilefni af aftur- komu þeirra, virtist sem þeim Hilary og Joan smakkaðist ckki maturinn sem bezt og töluðu varla orð saman. Joan horfði næstum alltaf á diskinn sinn, en hún fann vel, að Hilary var alltaf að líta til hennar. En í raun og vem naut Joan þessarar máltíðar, bæði hins prýðilega tilbúna matar og hins ágæta víns, og hún naut þess líka hvað þetta var snyrtilega og látlaust framborið. I huganum gerði hún samanburð á þeirri snyrtimennsku, sem var á öllu hér, og fábreytninni sem hún hafði kynnzt í frumskógavirkinu. Þrátt fyrir þetta var henni engin gleði í huga eða ánægja. Hún var enn reið við Hilary og velti fyrir sér, hvernig hann myndi koma fram við hana. Aðeins það, að hann sat þarna þögull og talaði ekkert við hana, gerði hana crgilega. Það var fyrst þegar þau höfðu lok- ið við að borða, og Ugi hafði borið kaffi og líkjör á borð á svölunum, að þessi þreytandi þögn var rofin. Hilary settist á grindverkið og kveikti sér í sígarettu, en Joan settist í körfustól og dreypti á kaffinu sínu. „Hefur þ ér alls ekki komið til hugar, að ég hafi rétt til að biðja um skýr- ingu?“ spurði hann rólega. „Morguninn eftir að þú svo gott sem segist elska mig, flýrðu út á haf í mótorbát, og þegar ég finn þig næst, er það í örm- unum á svarta Doyle, svörnum óvini mínum og aðal mótstöðumanni hér á eyjunni." Brennandi roði breiddist út yfir and- lit Joan, en hvarf fljótt aftur, og hún var föl er hún leit upp og mætti rann- sakandi augnaráði hans. „Ætlarðu að láta sem þú hafir gleymt þvf, að þú hæddir mig og móðgaðir gróflega, þann sama morgun,“ svaraði hún æst. „Hverskonar skýring er það, sem þú þykist eiga rétt á? Þarftu aðra skýringu en þá, að ég vildi komast í burtu frá þér, og að mér var alveg sama hvað um mig yrði?“ „Ég vil gjarnan fá skýringu á því, hversvegna þú varst í faðmlögum við svarta Doyle, þegar við Ugi fundum þig!“ sagði Hilary rólega. „Þér þýðir ekki að segja mér, að þetta hafi verið gegn vilja þínum, og að þú hafir strit- azt á móti, því að þú Iagðir báða hand- leggi um háls honum og hann kyssti þig. Það virðist sem hin ómettanlega þörf þín til að gera karlmenn ástfangna af þér, sé í fullum blóma, meira að segja lengst itini í frumskóginum, þrátt fyrir þrumur og eldingar umhverfis og þrátt fyrir tilraunir mínar til að kenna þér betri siði, sjálfrar þín vegna." „Ég lítillækka mig ekki til að gefa neina skýringu,“ svaraði Joan. „Það var leiðinlegt, því að ég er hræddur um að ég verði að krefjast skýringa!“ hélt Hilary áfram kesknis- lega. „Þú verður að minnast þess, að þú ert konan mín. Eiginmaður hefur þó alltaf nokkurn rétt til að krefjast skýr- inga, þegar hann finnur konuna sína í faðmi annars manns, jafnvel hér á Mu- afa.“ (Frh. i ruesta hefti). 60 HEIMILISRITIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Heimilisritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.