Heimilisritið - 01.11.1951, Síða 7

Heimilisritið - 01.11.1951, Síða 7
ur einhver hafi verið á milli Þor- leifs og Jóns á Svalbarði, föður Páls. En Páll var ákafur og lét ekki vísa sér á bug. Sótti hann fast á, með atfylgi föður síns, Þórunnar á Grund og séra Sig- urðar á Grenjaðarstöðum. Aríð' 1556 fékk Páll vitnisburð tólf valinkunnra manna um, að jafn- ræði væri með sér og Helgu og hann væri lienni að öllu leyti samboðinn! Jafnframt var dóm- ur kveðinn upp í héraði með þeim úrskurði, að Þórunn á Grund mætti samkvæmt vilja Helgu og að' beztu manna ráði gifta hana Páli, hvað sem Þor- leifur segði. Lét Þorleifur loks undan síga, er svo var komið, og gaf samþykki sitt til hjúskapar þeirra. Var loks hinn 13. janúar 1558 gerður kaupmáli þeirra Páls og Helgu, eftir að staðið hafði í þessu stímabraki í fjög- ur eða fimm ár. Var Helga nú komin um tvítugt, en Páll hátt á þrítugsaldri. Eór nú fram brúð- kaup þeirra, og er mælt, að bæði hafi verið orðin jafn áköf að' komast á brúðarbeðinn, því svo áttu miklir kærleikar að hafa verið með þeim í fyrstu, að þau hafi hvílzt í einni sæng og ekki risið úr rekkju fyrstu sex vik- urnar eftir brúðkaupið. Svo mik- ið var „blæjubrumið“ fyrir þeim, segir í gamalli heimild, enda hefur þetta vafalaust þótt saga til næsta bæjar! Að vori reistu Páll og Helga bú að Eyrariandi í Eyjafirði, en bjuggu þar ekki nema eitt ár. Þá fluttust þau að Einarsstöð- um í Reykjadal, og varð Páll litlu síðar sýslumaður í Þingeyj- arsýslu. Um 1570 fluttust þau vestur að Staðarhóli og voru þar stutta stund, en fóru síðan að Reykhólum í Barðastrandar- sýslu, þar sem Páll bjó lengi síð- an. Þó að dátt væri með þeim Páli og Helgu í fyrstu, kólnaði brátt í milli þeirra, og nmn hafa vald- ið stórlyndi beggja, ráðríki og drambsemi. Hafði snemma á því borið, að Helga naut lítilla vin- sælda, og er t. d. frá því sagt, að allt heimilisfólk á Grund hafi orðið því allshugar fegið, er hún fór þaðan burt. Skaplyndi henn- ar þótti ekki gott, hún var dutt- lungafull úr liófi fram og ákaf- lega drambsöfn, blendin og ein- ráð. Hefur hún vafalítið goldið liins taumlausa eftirlætis, sem hún naut í æsku. Páll var einn- ig stórlyndur, örorður, hávaða- samur og meinstríðinn. Leið ekki á löngu unz kveðlingar þeir, sem hann orti um Helgu, breyttu allmjög um svip frá því, sem verið hafði í tilhugalífi þeirra. Er sagt, að Páli hafi ekki ævin- lega þótt orð konu sinnar svo viturleg sem .skykli. Einhverju NÓVEMBER, 1951 D

x

Heimilisritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.