Heimilisritið - 01.11.1951, Side 14
þess meðvitandi, leit Crosby í
kring um sig með tortryggni.
„Nei, en ég lief orðið vör við
þá, það er einn hér í nótt, —
vondur draugur“.
„Hvaða bjánaskapur og vit-
leysa!“ sagði Crosby. „Imyndun
yðar og ekkert annað. A morg-
un verður kominn nýr eigandi.
Eg hef frétt af væntanlegum erf-
ingjum. Þeir koma hingað allir
sex. Þeir ættu að koma á hverri
mínútu“, og Crosby leit tauga-
óstyrkur á úrið sitt. Hann yppti
öxlum og gekk yfir að peninga-
skápnum í veggnum, studdi á
fjöðrina og veggdvrnar opnuð-
ust. Ilann tók pappírsmiða upp
úr vestisvasa sínum, sneri skíf-
unni á peningaskápnum og opn-
aði hann. Hann varð agndofa,
þegar hann sá, að fluga flaug út
úr skápnum.
„Hvað er þetta, Mammy Plea-
sant? Þessi skápur hefur verið
lokaður í tuttugu ár og samt er
fluga í honum. Hefur nokkur
verið hér?“
„Þér eruð sá eini, hr. Crosby“,
sagði ráðskonan rólega.
„Ég lokaði þessum peninga-
skáp fyrir tuttugu árum og mér
er kunnugt um, að ég hef ekki
stigið fæti inn fyrir dyr hér síð-
an, eða hef ég gert það?“
„Nei, lir. Crosby“.
Með skjálfandi höndnm þreif-
aði lögfræðingurinn um skápinn
að innan og dró út úr honum
þrjú umslög, sem hvert um sig
var innsiglað með þremur rauð-
um vaxinnsiglum. Ostyrkum
skrefum gekk hann að borðinu
og rannsakaði þau við lampaljós-
ið. Að því búnu leit hann á ráðs-
konuna með óútmálanlegri undr-
un í skásettum augunum.
„Hver hefur verið hér í hús-
inu?“ spurði hann.
„Enginn“, svanaði Mammy
rólega og spennti greipar, „nema
ég og afturgangan hans“.
„Draugar opna ekki umslög,
en sérhvert þessara umslaga hef-
ur verið opnað“.
Ráðskonan gekk hægt að lög-
fræðingnum, þar til andlit henn-
ar var ekki fet frá andliti hans,
og illgirnislegir, háðslegir drætt-
ir komu fram við munninn, er
hún sagði hægt og skýrt:
„En þér eruð sá eini, sem
þekkir læsingu peningaskáps-
• CC
ms .
Erfingjarnir
HÖGG á útidyrnar rauf þess-
ar óþægilegu samræður. En
þegar Mammy Pleasant gekk til
dyra, algerlega ósnert af því sem
skeð hafði, leit Crosby lengi og
rannsakandi á baksvip hennar.
Sem betur fór hafði hann afrit
af öllum þeim skjöhun, sem í
skápnum voru, en þau höfðu á
sínum tíma verið afrituð til
12
HEIMILISRITIÐ