Heimilisritið - 01.11.1951, Síða 21

Heimilisritið - 01.11.1951, Síða 21
laust, fölt ancllit og starandi augu. Tindrandi augu aðkomukon- unnar, sem voru ótrúlega stór í litlu, mjóu andlitinu, virtu fyrir sér hvern einstakan liinna þriggja farþega. Burðarkarlinn setti dót henn- ar undir sæti í klefa nr. 7 og fór og skildi hana eftir þar sem hún stóð. Hún tók ódýra, litla hatt- inn af höfðinu og fór úr víðu kápunni sinni, sem hafði tekizt svo illa að hylja þunglamalegan líkania hennar, brosti feimnis- lega til mannsins með stranga svipinn, og þegar hún mætti ekki vingjarnlegu augnatilliti frá honum á móti, fór hún inn í svefnklefa sinn döpur í bragði og kastaði sér niður á koddann. Það snjóaði mikið. Napur, kaldur vindurinn þeytti órjúf- andi snjóflyksum móti lestinni. Lestin kipptist tvisvar til, áður en hún mjakaðist hægt af stað, og skömmu síðar fór hún á fullri ferð gegnum snjóstorminn. Inni í lestinni var bjart og hlýtt. Lestarþjónninn var önn- um kafinn við að' lagfæra rúm- in. Hann fór síðast inn í klefa nr. 7, því að litla, ólögulega konan leit ekki út fyrir að geta séð af miklum drykkjupeningum. KONAN á fyrsta farrými, sú með starandi augun, hellti með skjálfandi hendi einum skammti af hvítu dufti á tunguna. Síðan hallaði hún sér aftur á bak að svæflunum og lokaði augunum. Væri henni aðeihs unnt að slaka á taugunum, þá myndi duftið hafa sín áhrif innan tíu mín- útna og færa henni þá blessun- arlegu hvíld, sem hún þarfnað'- ist svo mjög. Hún varð fyrst og fremst að þvinga sig til að hugsa um aðra hluti, hluti, sem ekki yllu henni áhyggjmn. Hún varð að þoka hinum nagandi sárs- auka á burt og hugsa um eitt- hvað annað. Storminn úti, til dæmis. Æð- andi snjóflyksur — Jimmie hafði elskað snjóinn — dásamlegi, hnellni Jimmie, hann hafði ávallt þrýst litla nefinu sínu svo fast upp að rúðunni, að það varð flatt eins og hnappur — bláu augun hans Ijómuðu, þegar hann sá snjókornin. — Konan stundi. Það var þýð- ingarlaust. Alveg þýðingarlaust. Það var alveg sama, hversu mjög hún reyndi að hngsa um eitthvað annað, þar til duftið verkaði. Henni varð ávallt að lokum hugsað til Jimmie. Róleg, róleg, sagði hún við sjálfa sig. Þú veizt, hvernig þú átt að fara að því að losna við hugsanir þínar að eilífu. Þú hefur undir- búið þetta ferðalag, af því að þú hefur ávallt vitað, að til er NÓVEMBER, 1951 19

x

Heimilisritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.