Heimilisritið - 01.11.1951, Qupperneq 33
ÁST ÁN ENDURGJALDS
Sp.: Kæra Eva. Hvað á ung stúlka
að gera, þegar liún er fram úr hófi ást-
fangin af pilti, sem alls ekki lítur við
henni? — Þ. S.
Sv.: Hún á fyrst og fremst að draga
sig í hlé og hafa stjórn á sér.
UM VASAPENINGA
Til „Tops og Trillu': — Það fer auð-
vitað eftir fjárhag ykkar eða foreldra
ykkar, hvað hæfilegt mætti teljast að
þið fengjuð í vasapeninga. Ég vil ekki
hætta mér út á þann hála ís, að dæma
mál ykkar, a. m. k. ef ég fæ ekki nán-
ari upplýsingar um hagi ykkar.
HÚN VILL MÁLA SIG
Sp.: Kæra Eva. Heldur þú { hrein-
skilni sagt, að ungir menn kjósi heldur
að við stúlkumar notum ekki varalit
eða naglalakk? Vinkonur mínar mála
sig, og mér virðist þær mæta meiri hylli
hjá karlmönnum heldur ég ég, sem ekk-
ert hef málað mig, og virðist því lit-
Iaus og lítilfjörleg í samanburði við þær,
þótt ég hafi orð fyrir að vera þeirra
fríðust og smekklegust í klæðaburði.
Gjafvaxta mœr.
Sv.: Lífsglöð og indæl stúlka ætti
helzt ekki að mála sig. Ef til vill koma
þau tækifæri fyrir, að liún púðri á sér
nefið, beri á sig næstum glært nagla-
lakk og jafnvel máli ofurlítið varimar,
en það er þó yfirleitt ekki ráðlegt, fyrr
en hún er eldri. Ég hugsa að þú ímynd-
ir þér það, að piltamir vilji fremur vin-
konur þínar. Skyldirðu ekki ganga með
einhverjar grillur í höfðinu, því þú veizt
a. m. k. vel um fegurð þína!? Það er
heppilegra að aðrir dáist að manni, held-
ur en að maður geri það sjálfur. Hver
veit nema þessi sjálfsgleði þín hafi verk-
að fráhrindandi á piltana.
HEIMILISFÖNG LEIKARA
Það spyrja mig margir um heimilis-
föng amerískra leikara. Eins og ég hef
áður sagt, er nóg að skrifa nafn leikar-
ans, og svo kvikmyndafélag það, sem
viðkomandi leikari er ráðinn hjá.
Stærstu félögin eru þessi:
Metro-Goldwyn-Mayer, Culver City,
California, U.S.A.
Columbia Pictures, Hollywood, Caji-
fornia, U.S.A.
Paramount Pictures, 5451 Marathon
St., Hollywood, Califomia, U.S.A.
RKO-Radio Studios, 780 Gower St.,
Hollywood, Califomia, U.S.A.
2oth Cenmry Fox, Beverly Hills,
Hollywood, Califomia, U.S.A.
United Artists Smdios, Hollywood,
California, U.S.A.
Wamer Brothers, Burbank, Califor-
nia, U.S.A.
Universal-International, Universal
City, California, U.S.A.
jRepublic Picmres, 4024 Radford Ave.,
No. Hollywood, California, U-S.A.
Sumir em ekki fastráðnir hjá neinu
sérstöku félagi, og þeirra adressa er:
Screen Actor’s Guild, Hollywood, Cali-
fomia, U.S.A.
Eva Adams
NÓVEMBER, 1951
31