Heimilisritið - 01.11.1951, Síða 35

Heimilisritið - 01.11.1951, Síða 35
„Ó, McLean," sagði ég skyndilega, „heldurðu að ég geti nokkurn tíma fengið svona fallegt skip á brjóstið á mér?“ McLean flutti tóbakstöluna frá öðru munnvikinu í hitt horfði á mig með ávítur í svipnum og eftir mikil heila- brot tókst honum að safna saman þess- um orðum: „Nei—ei—- þú getur að minnsta kosti ekki látið tattóvera þig svona vel, fyrr cn það er komið hár á brjóstið á þér.“ Þetta virtist vera fullnaðarósigur fyr- ir mig í fyrstu atrennu, þv{ að brjóstið á mér var slétt og mjúkt ejns og fín- asta silki. En ég vildi ekki gefast alveg upp að svo komnu máli. Ég fór því beint til föður míns og spurði hann, hvernig maður færi að því að láta hár vaxa á brjóstinu á sér. Svo virtist, sem spurningin væri honum kærkomin og ekki væri erfitt að svara henni, því að hann svaraði undir eins: „Það, telpa mín, það er ekki mikill vandi. Ef þú borðar gulræturnar þínar vel, þá verð- ur brjóstið á þér áreiðanlega kafloðið á skömmum tíma.“ Nú hataði ég gulrætur og fyrirleit, en hvað var það, sem ég ekki vildi gera tál þess að verða eins loðin á brjóstinu og McLean? Ég hámaði því í mig gul- rætur á hverjum einasta degi í margar vikur, í þeirri voní að einhvern morg- uninn, þegar ég vaknaði, væri komið hár á brjóstið á mér. Tíminn leið. Við lukum sjóferðinni og tókum höfn í Adelaide, og enn sást ekki stingandi strá á brjóstinu á mér. Mér leiddist þetta ákaflega og fór að óttast, að ég mundi aldrei verða aðnjótandi þessarar dásamlegu brjóstprýði. Eftir að hafa hugsað málið frá öllum hliðum sneri ég mér til McLeans, sem var þá niðrí í lest að losa kopra og hvíslaði að honum í trúnaði: „McLean, nti er ég búin að gá að hárum á brjóstinu á mér á hverj- um einasta morgni í níu vikur, og það er enn þá ekki komið eitt einasta hár, já, ekki einu sinni ló.“ McLean hló með öllu andlitinu, sem hann gerði annars mjög sjaldan. Loks- ins sagði hann: „Jæja, kallinn. Er það þá svona. Heyrðu, hvar er sá gamli? Er hann um borð?“ „Nei, liann er hjá ameríska ræðis- manninum og verður þar allan dag- inn.“ McLean brosti enn breiðara brosi, og svo sagði hann: „Það getur ekki ver- NÓVEMBER, 1951 33

x

Heimilisritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.