Heimilisritið - 01.11.1951, Síða 39
í Heimsókn hjá mömmu
„Jóhanna, þú verður víst að skipta
um föt, áður en við borðum,“ sagði
mamma. „Við verðum að borða klukk-
an 12, af því að'gestirnir koma þá, en
við höfum menn í fæði.“
„Ég hef ekkert annað dót en það,
sem ég er í,“ svaraði ég, og rödd mín,
sem hafði vanizt því að reyna að yfir-
gnæfa hávaðann á hafinu, gall í stof-
unni frá gólfi til lofts.
„Hrópaðu ekki svona, telpa," sagði
mamma með áminningarhreim í rödd-
inni, en ég leit steinhissa á hana.
Mamma hafði leigt nokkrum mönn-
um herbergi í húsinu og þeir höfðu
einnig fæði hjá henni. Þetta hafði hún
orðið að gera til þess að fá peninga til
heimilisútgjalda.
:,Þetta eru prófessoramir frá háskól-
anum, Jóhanna mín, og þú mátt sitja
til borðs með þeim, ef þig langar til.“
„Eru það karlmenn?“ spurði ég, og
þegar mamma svaraði játandi, hélt ég
áfram. „Ég get nefnilega alls ekki þol-
að kvenfólk nálægt mér.“
Þá gekk systir mín burt úr stofunni.
Hún var nefnilega mjög vel upp alin
dama, og það var alveg auðséð, að henni
mislíkaði útlit mitt, framkoma mín og
orðbragð.
Um leið og við settumst til borðs, var
ég kynnt fyrir leigjendunum. Þeir fóru
strax að spyrja mig um allt milli him-
ins og jarðar og mér fannst að þeir
væru ágætir karlar, sem gott yrði að
lynda við. En svo sprakk fyrsta bomb-
an allt í einu.
„Já, en . . . en ætlarðu í raun og veru
að halda því fram, að þú hafir með eig-
in augum séð barn fæðast?“ spurði einn
þeirra alveg steinhissa. Hann var pró-
fessor í hagfræði.
„Vitanlega. Þér skuluð ekki halda,
að hún hafi hætt skothríðinni þó að
ég væri viðstödd," svaraði ég móðguð,
af því að mér skildist það allt í einu,
að þeir héldu, að ég sæti þarna og væri
að segja þeim lygasögur. Hvern fjand-
ann vissu þessir vesalingar eiginlega um
sjómannslífið?
Svo héldum við áfram að rabba sam-
an, en dálítáð seinna, þegar ég var að
segja þeim frá öðru merkilegu í Suður-
höfum sprakk önnur bomban.
„Nei, þú skalt ekki reyna að telja mér
trú um að í hinum siðaða heimi okkar
eigi sér enn stað þrælaverzlun,“ sagði
einn prófessorinn. Hann var kominn
—A'ið aldur og hafði mikið vangaskegg,
og til þess að undirstrika þýðingu orða
sinna, sló hann bylmingshögg í borðið.
„Jú, svo sannarlega, kunningi, það
geturðu bölvað þér upp á,“ svaraði ég
öskureið og lamdi hnefanum í borðið,
svo að það drundi í því, og ég hrópaði
þetta svo hátt, að það glumdi í öllu,
en prófessornum kom þetta svo á óvart,
að hann fálmaði eftir vangaskegginu
og faldi hendumar í því.
„Uss, Jóhanna, hvað er þetta, barn?“
sagði mamma fyrir öðrum enda borðs-
ins. Hún var víst hrædd um, að ég
myndi móðga gestinn, svo að hann ryki
burt úr fæðinu.
„Ég vil ekki heyra þetta uss í þér,“
öskraði ég enn reiðari. „Hann situr
þarna og gefur í skyn, að ég sé að fara
með lygi. Spyrjið það bara pabba, liann
getur sagt ykkur, hvort ég segi ekki
satt.“
NÓVEMBER, 1951
37